Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 30
Það er fátt
skemmtilegra en
að koma ofan í laugina
með öllum þessum
fjölskyldum og krílum
og njóta þess að vera í
núinu með þeim.
Harpa Þrastardóttir er fær
og reyndur ungbarnasund-
kennari, en að sögn hefur
kvíði á háskólaárum gert
henni kleift að verða enn
betri í sínu fagi en ella.
Harpa Þrastardóttir er eigandi
Sundskóla Hörpu í Mörkinni
Reykjavík og í Suðurbæjarlaug í
Hafnarfirði. Hún starfar einnig sem
sviðsstjóri gagna og miðlunar hjá
Hafrannsóknastofnun. Að sögn var
hún nánast alin upp í Suðurbæjar-
laug og því hafi sundkennslan legið
vel fyrir henni. „Ég bjó í hverfinu
og varði miklum tíma í lauginni
og lærði að synda þar. Ég fór svo í
Sundfélag Hafnarfjarðar og hélt
áfram að sækja laugina fram á
unglingsárin,“ segir Harpa.
Mikilvægur félagsskapur
Harpa er 37 ára gömul og er með
meistaragráðu í iðnaðarverkfræði
frá Háskóla Íslands. Árið 2017 lauk
hún einnig námi í ungbarnasund-
kennslu hjá Busla, félagi ungbarna-
sundkennara á Íslandi. Að sögn
Hörpu er FKA félagsskapurinn
einstaklega gefandi og það er
mikilvægt að hann sé í boði. „Nú
kem ég inn í FKA með tvo ólíka
bakgrunna og að mínu mati skiptir
það ekki máli hvað kona gerir, það
er alltaf gott að koma á fundi hjá
FKA og kynnast nýjum konum og
því hvernig þær horfa á lífið og til-
veruna. Oft spretta upp umræður
sem leiða til nýrra hugmynda og
möguleika, hvort sem ráðist er í
þau verkefni strax eða ekki.“
Lét leiðast út í sundkennarann
Harpa byrjaði að kenna sund á
meðan hún var í námi. „Í háskóla
var prófkvíði að trufla mig. Ég kaus
að vinna frekar með námi en að
treysta á námslán, því sú pressa
jók enn á kvíðann. Á þessum tíma
þjálfaði vinkona mín hjá SH og
ég fór að þjálfa með henni. Eftir
nokkur ár var ég komin með allt
starfið í Suðurbæjarlaug.
Árið 2016 eignaðist ég dóttur
mína. Með minn bakgrunn var ég
spennt að fara með hana í ung-
barnasund. Við byrjuðum hjá
Erlu í Suðurbæjarlaug þegar dóttir
mín var tveggja og hálfs mánaðar
gömul. Erla var í stjórn Busla og
þegar félagið hélt kennaranám-
skeið 2017 hvatti hún mig til þess
að skrá mig. Ég sló til og hef kennt
síðan.“
Ólíkar laugar, ólík stemning
„Ég byrjaði á að kenna í Suður-
bæjarlaug á laugardögum. Í upphafi
Covid hætti ég að kenna hjá Sund-
félagi Hafnarfjarðar og fór að kenna
í Mörkinni, Suðurlandsbraut 64. Í
dag kenni ég í báðum laugum. Ég er
ein með sundskólann en fæ Röggu
og Heklu ljósmyndara reglulega í
laugina til okkar í kafmyndatökur.
Þrátt fyrir að námskeiðin í
laugunum tveimur séu þau sömu þá
myndast ólík stemning vegna þess
hve ólíkar laugarnar eru. Í Mörk-
inni er meiri nánd. Aðstaðan er
minni og þar eru eingöngu ungbörn
og foreldrar þeirra. Það myndast
því ákveðin stemning í lauginni
þegar kennsla er í gangi. Í Suður-
bæjarlaug eru systkini velkomin
með ofan í laugina og þetta verður
meiri fjölskyldustund.
Þótt það sé mjög skemmtilegt
fyrir kennarann að leika við börnin
þá er það betra til framtíðar fyrir
fjölskyldurnar að foreldrarnir læri
æfingarnar með börnunum og
geti gert þær áfram af öryggi með
barninu þegar námskeiði lýkur.
Í báðum laugum eru í boði
námskeið fyrir tveggja mánaða til
þriggja ára en í Suðurbæjarlaug eru
einnig í boði námskeið fyrir 2-6 ára
og hafmeyjusundnámskeið. Nám-
skeið fyrir 2-6 ára hafa verið mjög
vinsæl, líka fyrir vatnshrædd börn
í grunnskóla. En reynsla mín af
kvíða hefur gert mig að betri sund-
kennara þegar kemur að vatns-
hræðslu og kvíða barna.“
Nýtur þess að vera í núinu
Þetta er fimmtándi veturinn sem
Harpa kennir í Suðurbæjarlaug
og að sögn er hún ekki að hætta í
bráð. „Það er fátt skemmtilegra en
að koma ofan í laugina með öllum
þessum fjölskyldum og krílum
og njóta þess að vera í núinu með
þeim. Þetta gefur mér alls ekkert
minna en þeim og þetta er líka gott
mótvægi við stjórnunarstarfið.
Ungbarnasund er í boði á
mörgum stöðum í heiminum í dag
en það eru líklega fáir staðir, þar
sem jafnhátt hlutfall ungbarna fer
í skipulagt ungbarnasund og hér á
landi. Sund er stór hluti af menn-
ingu okkar og aðgengi okkar að
almenningslaugum er einstakt.
Undanfarin ár hafa verið gerðar
nokkrar íslenskar rannsóknir á
áhrifum ungbarnasunds á krílin
og foreldrar eru meðvitaðir um
kosti þess. Reksturinn hefur gengið
vel en við finnum fyrir samdrætti
núna eins og fleiri í svipaðri
þjónustu. Það er greinilegt að
ungar fjölskyldur þurfa að horfa
meira í krónurnar en oft áður. Það
er enn þannig að menntaðir for-
eldrar eru líklegri til að koma með
börnin sín á námskeiðin og koma á
fleiri námskeið. Ég finn einnig fyrir
því að það er að aukast að börn séu
að koma í ungbarnasund vegna
ábendinga lækna og sjúkraþjálfara.
En ungbarnasundið getur hjálpað
börnum að styrkjast og það er
gaman að fylgjast með því,“ segir
Harpa. n
Gott mótvægi við
stjórnunarstarfið
Harpa segist
finna fyrir aukn-
ingu í því að
sjúkraþjálfarar
og læknar bendi
foreldrum á að
ungbarnasund
geti hjálpað við
að auka styrk
barna.
Fréttablaðið/
Ernir
Berglind Jónsdóttir hefur
starfað sem hönnuður og
sérfræðingur í markaðs-
málum hjá Unimaze síðast-
liðið ár og hefur orðið vitni
að hröðum og spennandi
vexti fyrirtækisins á inn-
lendum sem og erlendum
mörkuðum.
Unimaze er spennandi íslenskt
fyrirtæki sem býður upp á breitt
vöruúrval af lausnum tengdum
bókhaldi og bókhaldskerfum.
„Lausnir Unimaze byggja á skýja-
lausn sem aðstoðar notendur
við að senda og móttaka rafræna
reikninga og önnur stöðluð við-
skiptaskjöl,“ segir Berglind Jóns-
dóttir.
Fjölbreytt starf
í alþjóðlegum geira
Berglind er með menntun í
„Advertising“ og „Art Direction“
frá Willem de Kooning Academie
í Rotterdam og Istituto Europeo
di Design í Barcelona. Hún
hefur starfað við allt sem tengist
markaðssetningu og hönnun í að
verða ellefu ár. „Meðal annars var
ég listrænn stjórnandi hjá dóttur-
fyrirtæki fjölmiðlafyrirtækisins
Conde Nast í Þýskalandi, tók þátt
í að koma AD Design Award á
laggirnar, starfaði sem hugmynda-
smiður samfélagsmiðla fyrir
Icelandair og Vodafone, og margt
fleira,“ segir Berglind.
„Hjá Unimaze tek ég þátt í öllu
sem tengist markaðssetningu
fyrirtækisins. Ég sé um heima-
síðuna, auglýsingahönnun og UX/
UI á vefsíðunni, leitarvélabestun,
hugmynda- og textavinnu, sé um
samfélagsmiðlana, sölu, viðburði,
almannatengsl, kynningarefni og
tek þátt í stefnumótun.“
Unimaze er alþjóðlegt fyrirtæki
með starfsstöðvar í tveimur Evr-
ópulöndum og með viðskiptavini
um allan heim. „Við erum mjög
þétt og samstillt teymi og þó við
séum ekki stödd í sama landinu þá
vinnum við vel saman. Það er ótrú-
lega gaman að vinna með svo fjöl-
breyttu teymi með mismunandi
skoðaðnir og menningu og að læra
um ólíkar áherslur í alþjóðlegri
markaðssetningu. Ég hef unnið
að markaðssetningu í Danmörku,
Sviss, Bretlandi, Þýskalandi, Hol-
landi og Spáni áður en ég hóf störf
hjá Unimaze. Nú fæ ég tækifæri til
að sinna því enn víðar, í Serbíu og
nærliggjandi löndum sem ég hef
ekki fengist við áður.“
Kynjamál í réttum farvegi
„Rafræni viðskiptageirinn er ekki
stór á Íslandi og líklega er ég eina
eða ein af fáum konum sem vinn
fyrir skeytamiðlun hér á landi.
Hins vegar erum við þrjár konur
í alþjóðlega teyminu sem spilum
lykilhlutverk í að kynna Unimaze
á erlendum mörkuðum. Ég kann
ágætlega við það að vera „ein af
strákunum“ hér heima þótt auð-
vitað vilji ég sjá fleiri konur í raf-
ræna viðskiptageiranum á Íslandi.
Hins vegar starfar hátt hlutfall af
konum í bókhaldi og fjármála-
deildum sem ég á í tíðum sam-
skiptum við í mínu starfi.
Sameiginlegt markmið mitt
með viðskiptavinum mínum snýst
um sjálfvirkni í fjármálateymi og
bókhaldi, góða og örugga þjónustu
og að þróa nútímalegar lausnir,
til dæmis notumst við mikið við
gervigreind í vöruþróun. Rafrænir
reikningar og bókhald snýst um
rökvísi, gæði og raunverulegan
sparnað. Ef þú ert með góða vöru
í höndunum þá skiptir engu máli
hvort þú sért kona eða karl að
kynna vöruna.
Sem kona í tæknigeiranum, þá
hef ég séð jákvæðar breytingar
innan hans og konum fer fjölgandi.
Þeir karlmenn sem ég starfa með
eru meðvitaðir um mikilvægi þess
að hafa jafnara kynjahlutfall á
vinnustöðum og deila ábyrgðar-
stöðum jafnt. Karlmenn og konur
eru bæði lík og ólík á margan hátt
og við erum sífellt að læra að skilja
styrkleika hvors annars, því öll
kynin hafa margt fram að færa.
Vonandi heldur sú þróun áfram
að við lærum að meta styrkleika
hvort annars í stað þess að líta á
hvert annað sem ógn eða minni-
máttar. Þetta snýst um samvinnu,
virðingu og betri samskipti.“
Einstök tækni á heimsvísu
Unimaze hefur þróað þessa
tækni í tuttugu ár og hóf að láta
vita af sér fyrir tæplega þremur
árum. „Á stuttum tíma höfum við
náð góðum árangri á erlendum
mörkuðum og enn betri á íslenska
markaðnum. Heimasíðan sem
við settum í loftið í sumar, sem er
og var mitt helsta verkefni, hefur
sýnt 300 prósenta aukningu á
milli ára í heimsóknum og upp-
lifun inni á síðu.
Þegar ég byrjaði hjá Unimaze
fannst mér magnað að læra hve
fátt hefur gerst í bókhaldsheim-
inum síðan árið 1985. Helsta
breytingin er sú að bókhaldið
færðist yfir í tölvurnar. Í dag taka
notendur eftir hraðri uppsveif lu
með tilkomu rafrænna reikninga
og við sjáum ótrúlega jákvæðar
sparnaðartölur fyrirtækja sem
nýta sér okkar þjónustu. Einnig er
þetta umhverfisvænni leið í bók-
haldi, en notendur eru almennt
meðvitaðri um umhverfið í dag.“
Unimaze er á meðal topp
fyrirtækja í heiminum sem bjóða
upp á þessa þjónustu. „Við erum
í hröðum vexti þessa stundina
og gæði og framsetning á Uni-
maze kerfinu skiptir öllu máli.
Við kappkostum að vera á undan
kúrfunni við að þróa aðferðir til
að straum línulaga vinnuferli við-
skiptavina okkar. Þessi metnaður
leiðir til þess að stórir aðilar hafa
samband við okkur að fyrra
bragði.
Til dæmis má nefna að Microsoft
hafði samband við okkur og bað
okkur um að þróa með þeim lausn
til að bjóða upp á rafræna reikn-
inga í Teams. Það að geta skoðað
og rætt reikninga beint í gegnum
kerfið er eiginleiki sem önnur
fyrirtæki í heiminum, á borð við
Unimaze, bjóða ekki upp á.“
Þjóðarstolt
„Unimaze byggir á íslensku hug-
viti og ég viðurkenni alveg að það
hellist ákveðið þjóðarstolt yfir
mig þegar ég er í vinnunni. Það
er óneitanlega spennandi að vera
með vöru í höndunum sem fær jafn
mikla athygli erlendis og er talin
með því besta sem er í boði í heim-
inum. Eitt það skemmtilegasta sem
ég geri í vinnunni er að taka viðtöl
við núverandi kúnna. Þá sé ég svart
á hvítu hvað varan sem við bjóðum
upp á, breytir miklu fyrir fjármála-
teymi fyrirtækja í sparnaði, og
hagræðingu.“ n
Alþjóðlegt fyrirtæki byggir á íslensku hugviti
Berglind segir það heiður að starfa hjá fyrirtæki sem er jafn mikils metið á
alþjóðavísu og Unimaze er. mynd/maría Guðrún rúnarsdóttir
14 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélAG kvennA í AtvinnulíFinu