Fréttablaðið - 26.01.2023, Page 48
Í dag er
fram-
kvæmda-
stjórn
skipuð
þremur
konum og
einum
karli.
Verkfræðistofan Lota er
verkfræðistofa með sögu
sem nær allt aftur til ársins
1960. Í dag er Lota framar-
lega í orkumálum og iðnaði
með áherslu á rafmagn,
lýsingu, hönnun, verkefna-
stjórn, eftirlit og fleira.
Árið 2020 var ráðist í gagngerar
breytingar á innra skipulagi fyrir-
tækisins og áhersla lögð á að fá
konur meira að borðinu í ákvarð-
anatöku. Í dag er framkvæmda-
stjórn skipuð þremur konum og
einum karli. Þau Ásta Logadóttir
verkfræðingur og sviðsstjóri, Erlen
Björk Helgadóttir mannauðsstjóri,
Ólöf Helgadóttir, verkfræðingur og
sviðsstjóri, og Trausti Björgvinsson
framkvæmdastjóri eru sammála
um að einkar vel hafi tekist til við
breytingar á framkvæmdastjórn
og að kynblönduð stjórnun sé
lykillinn að farsælum stjórnarhátt-
um. Enn í dag virðist erfitt að fá
konur til starfa á verkfræðistofum,
svo við byrjum á að spyrja verk-
fræðingana í hópnum af hverju
þær völdu verkfræðina.
Ólöf: „Mér fannst stærðfræði
og eðlisfræði skemmtilegustu
fögin í menntaskóla, við fengum
kynningu frá rafmagns- og tölvu-
verkfræði inn í stærðfræðitíma
og það virkaði áhugavert þann-
ig að ég ákvað að prófa. Það sem
heillaði var samt félagsskapurinn
í náminu en ekki námið sjálft, til
Berskjöldun
og hlátur góð
verkfæri
Framkvæmda-
stjórnarteymið
hjá Lotu leggur
áherslu á hlátur
og berskjöldun
í samskiptum.
Frá vinstri:
Erlen Björk
Helgadóttir
mannauðsstjóri,
Ásta Logadóttir
sviðsstjóri,
Ólöf Helga-
dóttir sviðs-
stjóri og Trausti
Björgvinsson
framkvæmda-
stjóri. Frétta
blaðið/Ernir
að byrja með. En síðan fékk ég að
vinna í háspennu með skóla og þá
komst ég að því hvað rafmagn er
skemmtilegt.“
Ásta: „Ég ætlaði að verða flug-
maður, en það er yfirleitt minna að
gera í f luginu á veturna þannig að
ég sá að ég myndi þurfa eitthvað
varastarf til að sinna á veturna og
valdi verkfræði. Svo sá ég að verk-
fræðin hentaði mér bara prýði-
lega.“
Ólöf: „Konur eru í miklum
meirihluta í verkfræðinámi en
ekki í starfi á verkfræðistofunum.
Okkur gengur erfiðlega að ná
stelpunum í vinnu eftir námið. Ég
hugsa að þar ráði mestu gamlar
mýtur um mikið álag og yfirvinnu
á verkfræðistofum og að þær séu
ekki fjölskylduvænir vinnustaðir,
en staðan er allt önnur í dag. Verk-
fræðistofan okkar er frábær staður
fyrir konur og við erum að vinna
í því að fá fleiri konur til starfa til
dæmis með því að bjóða þeim í
starfsnám. Verkfræðistofur eru frá-
bær starfsvettvangur fyrir konur ef
þær bara opna á það.“
Ásta: „Í Lotu höfum við lagt til
atlögu við þetta vandamál með
því að setja konur í stjórnunar-
stöður og vonast til þess að þær séu
fyrirmyndir fyrir ungar konur úr
verkfræðingastétt sem eru á leið út
á vinnumarkaðinn.“
Erlen: „Að undirlagi Trausta,
núverandi framkvæmdastjóra,
voru gerðar breytingar árið 2020.
Þá var sviðum fækkað úr fjórum
í tvö og þeim stjórna tvær konur,
Ásta og Ólöf, en áður voru það
karlar sem stýrðu sviðunum
fjórum. Það var svo gaman að það
voru allir mjög til í þessar breyt-
ingar, líka karlarnir og það studdu
okkur allir í þessu.“
Trausti: „Með þessu er ekkert
endilega verið að segja að konur
séu almennt og alltaf betri yfir-
menn en ég tel að fjölbreytileikinn
sé mjög mikilvægur. Verkfræði-
geirinn hefur orð á sér fyrir að vera
karllægur bransi og hann hefur
alveg verið það en er það ekki
lengur og til að breyta viðhorfum
þarf að breyta til. Og það er það
sem við viljum gera. Það er ekkert
í eðli starfs verkfræðinga sem segir
að því þurfi að vera sinnt af karl-
mönnum.“
Fjölbreyttur hópur betri
Hver er kosturinn við að hafa jafn-
hlutfall kynja á vinnustað?
Trausti: „Mín reynsla er sú að ef
þú hleypir konum að borðinu þá
fer út af borðinu þetta neikvæða
karllæga sem hefur verið ráðandi í
áratugi á atvinnumarkaði. Karlar
eru líklegri til að vera kurteisari og
orða hlutina öðruvísi í blönduðu
teymi sem breytir dýnamíkinni
og það koma aðrir vinklar fram
heldur en ef það væru bara karlar
eða kannski bara konur, það er
heldur ekki endilega betra. Það er
betra að hafa þetta blandað þannig
að allir eiginleikar og sjónarmið
komi að borðinu. Við erum að
vinna dálítið með berskjöldun og
hlátur sem er betra að ná fram í
blönduðum hóp.“
Erlen: „Sem mannauðsstjóri þá
sé ég mikla kosti í því að vera með
fjölbreyttan hóp starfsmanna og
ekki síður stjórnenda. Við erum 13
konur á stofunni af 48 starfsmönn-
um og við höfum verið að reyna að
hækka það hlutfall. Við reynum til
dæmis að fá stelpur í sumarstörf
sem vonandi skila sér svo til okkar
þegar þær útskrifast.“
Ólöf: „Mér finnst stundum að
ég hafi fengið tækifæri innan verk-
fræðigeirans af því að fólk hefur
verið opið fyrir því að fá fleiri
konur. Konur eru enn í minni-
hluta í verkfræðistörfum, sérstak-
lega í rafmagninu, og í náminu í
háskólanum, þannig að mér finnst
þarna vera tækifæri fyrir fullt af
stelpum.“
Minni yfirvinna og færri tarnir
Af hverju haldið þið að konur séu
ekki að skila sér úr náminu inn á
stofurnar?
Ásta: „Ég hreinlega veit það
ekki. Ég fór sjálf úr akademíunni
inn á stofu af því mér fannst meira
spennandi verkefni þar. En þetta
var ekki eitthvað sem við stelp-
urnar vorum að ræða í skólanum,
vorum ekki búnar að ákveða að
við vildum ekki fara á stofur frekar
en eitthvað annað.“
Ólöf: „Mér fannst praktíkin
töluð niður þegar ég var í náminu
og þess vegna var ég ekki að horfa
á að fara á stofu. Ég held að þar hafi
kennararnir verið að hugsa um
akademíuna sem þeim fannst eina
rétta leiðin, fara alla leið í námi
og fara svo að kenna einhverjum
öðrum. Sem endar kannski ekki
vel ef allir mennta sig til að kenna
öðrum en enginn fer síðan út í
praktíkina.“
Trausti: „Ég held líka að þetta
séu leifar frá fyrri tíð þegar var
mikil yfirvinna á stofunum og
langar og miklar tarnir. Núna er
Okkur gengur
erfiðlega að ná
stelpunum í vinnu eftir
námið. Ég hugsa að þar
ráði mestu gamlar mýtur
um mikið álag og yfir-
vinnu á verkfræðistofum
og að þær séu ekki fjöl-
skylduvænir vinnustaðir
en staðan er allt önnur í
dag.
Ólöf Helgadóttir
32 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu