Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 50
Hjá Lífi og sál er unnið náið
með einstaklingum, fyrir-
tækjum og stofn unum víðs
vegar um landið og telja
eigendur stofunnar sig
mjög lánsama hvað varðar
tengingu og innsýn í íslenskt
atvinnulíf.
Katrín Kristjánsdóttir og Vigdís
Ásgeirsdóttir eru sál fræðingar og
ráðgjafar í mannauðs málum hjá
stofunni Lífi og sál. Þær segja að í
ljósi þess hversu fjölbreytt mann
leg flóra er sé margt sem komi inn
á borð sálfræðinganna hjá Lífi
og sál. „Það er í eðli okkar flestra
að vilja öðrum vel, vilja stuðla að
vellíðan fólksins í kringum okkur
og síst viljum við lenda upp á kant
við annað fólk. Sú tilhneiging getur
auðveldlega leitt til meðvirkni,
hvort sem er í vinnunni eða í
einkalífinu,“ segir Katrín og heldur
áfram:
„Annað og alls ekki óskylt fyrir
bæri ratar gjarnan inn á okkar
borð og það er skortur á ákveðni.
Sértu ákveðin í samskiptum við
annað fólk hjálpar það bæði þér og
þeim sem þú átt í samskiptum við.
Það þýðir að þú getur sagt skoðanir
þínar og hlustar á skoðanir ann
arra, setur hegðun og framkomu
annarra sem þú telur neikvæða
skýr mörk, gagnrýnir á uppbyggi
legan hátt, talar beint við fólk í
stað þess að baktala, svo fátt eitt sé
nefnt. Sértu skýr og ákveðin í sam
skiptum, þá ertu oftast nær ekki
meðvirk,“ útskýrir Katrín og bætir
við: „Fólk veit hvar það hefur þig
og veit að þú ert manneskja sem
segir hlutina eins og þeir koma þér
fyrir sjónir, án þess að vera með
yfirgang.“
Að vera ákveðin í samskiptum er
ekki það sama og að vera frekja eða
yfirgangsseggur. Það sem konur
og annað fólk óttast oft mest, ætli
það að temja sér aukna ákveðni í
samskiptum, er að annað fólk telji
það frekt, og það þykir okkur ekki
þægilegt að heyra. Því höfum við
margar lært að oft sé best að segja
ekki neitt og bera skoðanir okkar
eða harm í hljóði og þola yfirgang
annarra. Önnur birtingarmynd
er sú að við verðum ólíklegri til
að taka skýra afstöðu í málum og
höfum okkur þá ekki í frammi,“
segir Vigdís.
„Það er sérlega gefandi fyrir
okkur sem sálfræðinga að aðstoða
skjólstæðinga okkar í að setja
skýrari mörk, vinna með aukna
ákveðni og þar með minnka með
virkni. Hugsanleg leið til að jafna
hlut kvenna í atvinnulífinu er að
ýta undir þessa umræðu enn frekar.
Að fólk af öllum kynjum, hvort sem
er starfsfólk, mannauðsfólk eða
atvinnurekendur, geri sér betur
grein fyrir neikvæðum afleiðingum
meðvirkni og skorts á ákveðni.
Þá getur meðvirkni og skortur á
ákveðni haft mjög slæm áhrif á
líðan starfsfólks og samskipta
menningu vinnustaða,“ segja þær.
„Það fylgir því mikil ábyrgð
að vera stjórnandi og því mikil
vægt að geta speglað í fullum
trúnaði þau mál sem upp koma á
Forðumst meðvirkni og tökum skýra afstöðu
Katrín Kristjáns
dóttir og Vigdís
Ásgeirsdóttir
eru sál fræðingar
og ráðgjafar
í mannauðs
málum hjá
stofunni Lífi og
sál.
MYND/AÐSEND
vinnustaðn um með utanað
komandi fagaðila sem hefur engra
hagsmuna að gæta annarra en
þeirra að vinna vinnuna sína vel,“
segir Vigdís.
Við sjáum í okkar starfi að konur,
kvár og auðvitað líka karlar, mega
gjarnan vera óhræddari við aukna
ákveðni í samskiptum, að sjálf
sögðu með jákvæð samskipti og
vellíðan okkar sjálfra og annarra að
leiðarljósi,“ segir Vigdís. n
Þórey Sigþórsdóttir leikkona
veit mjög vel hversu mikil-
vægt verkfæri röddin okkar
er og býður einstaklingum
og fyrirtækjum upp á radd-
þjálfunarnámskeið.
„Röddin er lykilatriði í sam
skiptum og góð raddbeiting skapar
góða nærveru,“ segir hún um
ástæðu þess að hún hóf að halda
námskeiðin, sem njóta mikilla vin
sælda. „Í dag er sú krafa gerð, sama
nánast við hvaða fag þú vinnur,
að þú getir staðið fyrir máli þínu.
Kynnt sjálfa þig og hugmyndir
þínar af öryggi, rökrætt hugmynd
ir þínar og annarra, og haft þá
færni sem þarf til að kynna niður
stöður verkefna. Ef þú ert kennari,
með hlaðvarp, leiðtogi í verkefni
eða fyrirtæki, leiðsögumaður eða
leikari, þá er það auðvitað ekki
spurning að það skiptir máli að
sinna þessu atvinnutæki.“
Hún segir að fólk geri sér
almennt ekki grein fyrir mögu
leikum þess að þjálfa röddina.
„Það þekkir ekki mátt hennar af
því að það hefur aldrei upplifað þá
tilfinningu. En ef við upplifum það
oft að finna kökk í hálsinum, ótta
við að tala og tilfinninguna af því
að treysta sér ekki til að tjá sig, þá
er það mjög valdeflandi að styrkja
röddina. Að hafa sterka rödd í
lífi og starfi eru lífsgæði sem við
eigum öll rétt á því að njóta.“
Mikilvægt fyrir konur
að skapa eigin tækifæri
Þórey hefur starfað sjálfstætt
árum saman, ýmist sem verktaki
eða launþegi. „Starfið mitt, ólík
verkefni hjá ólíkum fyrirtækjum,
kallar á það að ég reki mig sem
fyrirtæki,“ segir hún og bætir við
að starfsumhverfi einyrkja sé ekki
einfalt. „Flækjustigin eru mörg, til
dæmis varðandi fyrirtækjarekstur
og réttindi, barnseignarleyfi,
lífeyrisréttindi og fleira. Fyrirbæri
sem er freistandi að horfa fram
hjá en nauðsynlegt að setja sig inn
í.“ Meðal annars þess vegna hefur
henni reynst mikilvægt að vera í
FKA. „Ég fæ innsýn í það sem aðrar
konur eru að gera, mynda tengsla
net og það er valdeflandi í sjálfu sér.
Ég var líka að viðurkenna það fyrir
sjálfri mér með því að ganga í þessi
samtök að ég er atvinnurekandi.
Staðreynd sem í mínum huga var
alltaf svo fjarlæg því að vera lista
maður. Ég vinn sem leikkona, leik
stjóri, höfundur, fyrirlesari, kennari,
heilari, leiðsögumaður og menn
ingarmiðlari. Störf sem eiga það
sameiginlegt að miðla menntun,
menningu og skapa list. Þegar þú
vinnur sjálfstætt sem listamaður,
framleiðir eigin verk og sýningar, þá
verður þú um leið atvinnurekandi.
Það er mjög praktískt að átta sig á
þeirri staðreynd.“
Þórey segir mikilvægt fyrir
konur að skapa sér sín tækifæri
sjálfar. „Í sjálfstæða geiranum
eru margar mjög öflugar konur
og ásamt listinni er það ástríða
mín að valdefla konur í gegnum
raddþjálfun, skapandi starf og
sjálfstyrkingu.“ Næsta námskeið
RÆKTAÐU RÖDDINA hefst 7.
febrúar. Einnig má finna upp
lýsingar um sérsniðin námskeið
eða fyrirlestra fyrir fyrirtæki og
stofnanir á heimasíðu Þóreyjar. n
Nánari upplýsingar um námskeiðin
má finna á thoreysigthors.com
Sterk rödd er lífsgæði í lífi og starfi
Þórey Sigurðar
dóttir, leikkona
og markþjálfi.
„Mín ástríða
er að valdefla
konur í gegnum
raddþjálfun,
skapandi starf
og sjálfstyrk
ingu.“
fréttAblAÐiÐ/
ErNir
Ef þú ert kennari,
með hlaðvarp, leið-
togi í verkefni eða fyrir-
tæki, leiðsögumaður eða
leikari, þá er það auð-
vitað ekki spurning að
það skiptir máli að sinna
þessu atvinnutæki.
Þórey Sigþórsdóttir
34 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu