Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 63
Það sem kom mér
virkilega á óvart
var þegar María Sigrún
fréttakona varð allt í
einu „viral“ á mexíkósk-
um miðlum.
Ég flutti í rauninni
bara vegna þess að
mér bauðst þetta frábæra
starf og skoraði á sjálfa
mig að prófa eitthvað
nýtt. En það hjálpaði
klárlega að ég og unnusti
minn fundum okkur
strax draumaíbúðina á
Akureyri.
Ólöf Rún Erlendsdóttir
fréttamaður hóf störf hjá
RÚV á Akureyri í septem-
ber en hafði áður starfað á
fréttastofunni í Efstaleiti og
var því enginn nýgræðingur.
Hún flutti norður til að prófa
eitthvað nýtt.
„Ég er Breiðhyltingur í húð og hár
og þetta er í fyrsta skipti sem ég
bý utan Reykjavíkur,“ segir hún.
„Ég á hins vegar rætur hér fyrir
norðan og hef eytt miklum tíma
þar. Móðir mín er Dalvíkingur og
það var yfirleitt hápunktur sum-
arsins hjá okkur fjölskyldunni að
heimsækja ömmu og afa á Dalvík.
Bróðir minn flutti svo til Akur-
eyrar fyrir nokkrum árum og ég
á frændfólk hérna úti um allt, svo
það vantar ekki tengingarnar,“
bætir hún við.
„Ég flutti í rauninni bara vegna
þess að mér bauðst þetta frábæra
starf og skoraði á sjálfa mig að
prófa eitthvað nýtt. En það hjálp-
aði klárlega að ég og unnusti minn
fundum okkur strax draumaíbúð-
ina á Akureyri, eftir að hafa boðið í
margar, margar íbúðir í Reykjavík,
án árangurs,“ segir Ólöf Rún.
Þegar hún var spurð hver
væri munurinn á starfinu fyrir
norðan og í Efstaleitinu svarar hún:
„Munurinn liggur náttúrulega
helst í áherslunni á landsbyggðina.
Okkar hlutverk hjá RÚV á lands-
byggðinni er fyrst og fremst að
fjalla um mál utan borgarinnar,
þótt við séum að sjálfsögðu líka
hluti af fréttamannateyminu í
Efstaleiti og fjöllum líka um mál-
efni sem snerta landið allt.
Er að venjast sjónvarpinu
Ég hafði hins vegar sjálf mjög
lítið unnið fréttir fyrir sjónvarp
áður en ég kom norður svo það er
kannski stærsta breytingin fyrir
mig. Mér líður vel fyrir framan
hljóðnemann í útvarpinu en að
vera andlit í sjónvarpi er eitthvað
sem ég er enn að venjast. Þetta er
ótrúlega skemmtilegt starf – bæði
hér og í Reykjavík. En það er ekki
spurning að það getur verið mjög
skemmtilegt að vera fréttamaður
á landsbyggðinni. Það verður til
sterk tenging við samfélagið og
ég nýt þess mjög mikið að hafa
frelsi til þess að vinna skemmti-
legar fréttir meðfram því að sinna
þyngri fréttamálum,“ segir hún.
„Sem dæmi þá vann ég þunga
frétt um álag á læknum á lands-
byggðinni í síðustu viku, en dag-
inn eftir heimsótti ég tvo ótrúlega
hressa fuglaáhugamenn á Akur-
eyri, sem kenndu mér allt sem þarf
um fóðrun smáfugla. Það er svo
ótrúlega gott fyrir sálina að hafa
svona jafnvægi, vera ekki alltaf
í þungu málunum, þótt þau séu
almennt ofar í forgangsröðuninni,“
segir Ólöf Rún, sem segist aldrei
vita nákvæmlega hvernig næsti
dagur verði. „Ég get mætt í vinnuna
með einhver verkefni í huga, en
hálftíma seinna verið komin með
míkrófón í hönd einhvers staðar
uppi á heiði að segja frá atburði
sem ég vissi ekki af þegar ég lagði
af stað til vinnu. En ef fjölskyldan
mín yrði spurð þá er það óvæn-
tasta líklega það að ég skyldi flytja
mig úr borginni og hingað norður
með litlum sem engum fyrirvara,“
segir hún.
Tíu starfsmenn starfa hjá RÚV
á Norðurlandi, þar af þrír frétta-
menn. „Ég, Amanda Guðrún
Bjarnadóttir og Ágúst Ólafsson,
sem er jafnframt ritstjóri lands-
byggðarfrétta. Hjá fréttastofunni
hér fyrir norðan vinnur svo einn
tökumaður, Sölvi Andrason. Ég
segi fyrst og fremst fréttir frá
norðurhluta landsins en stekk líka
í verkefni víðar um landið, eftir því
sem þarf,“ segir Ólöf Rún, en frétta-
mannsstarfið hafði lengi blundað
í henni áður en hún hóf störf hjá
RÚV.
Með stjörnur í augunum
„Ég hef alltaf verið ákveðin og
haft mikið að segja, krafðist
þess til dæmis að vera ritstjóri
skólablaðsins í grunnskóla og
einn kennarinn minn kallaði mig
oft Ólöfu fréttakonu. Að hluta
til af því ég talaði út í eitt og var
alltaf að segja hinum krökkunum
nýjustu fréttir, en auðvitað líka
vegna nöfnu minnar, Ólafar Rúnar
Skúladóttur, sem var áberandi í
fréttunum á þessum árum. Mér
leiddist sá samanburður nákvæm-
lega ekki neitt. Það var frekar
súrrealískt að vera svo ráðin sem
fréttamaður hjá RÚV tuttugu
árum síðar, á sama tíma og nafna
mín Skúladóttir kom aftur til
starfa á fréttastofunni. Ég var
með stjörnur í augunum í svona
mánuð eftir að ég var ráðin, enda
alger heiður að vinna með öllum
þessum úrvals fréttamönnum.“
Ólöf Rún er með BA-próf í
félagsráðgjöf og er hálfnuð með
MA í blaða- og fréttamennsku. „Ég
hef unnið við ýmislegt í gegnum
tíðina, en ekki fundið mína hillu
fyrr en núna. Ég hef til dæmis
verið forstöðumaður á frístunda-
heimili, aðstoðað við kennslu í HÍ,
sinnt umönnun á hjúkrunarheim-
ili og afgreitt í verslunum.“
Eru einhverjar breytingar fyrir-
hugaðar eða nýtt að gerast á nýju
ári hjá þér?
„Það eru engar stórar breyt-
ingar í kortunum eins og er, ég
er í rauninni enn að koma undir
mig fótunum á nýjum stað. Þegar
kemur að starfinu vinn ég auð-
vitað stöðugt að því að verða
öflugri fréttamaður, mig langar
alltaf að verða betri penni og
betri í að rýna í samfélagið. Ég er
almennt lítið fyrir áramótaheit,
en ég setti mér það markmið að
lesa minnst 20 bækur á árinu.
Það er það eina sem er niðurneglt
eins og er! Svo er innan sviga að
drekka minna kaffi og borða oftar
grænkál. En ég gleymi því líklega
Sinnir fréttum á landsbyggðinni
Ólöf Rún starfar ásamt tveimur öðrum fréttamönnum hjá RÚV á Akureyri. Hún
segir fréttir frá norðurhluta landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Ingunn Lára Kristjánsdóttir
hóf störf á RÚV fyrir ári
til að sinna og þróa frétta-
miðlun á samfélagsmiðlum.
Hún einblínir á yngri kyn-
slóðir og segist ánægð með
viðtökur þeirra.
„Ég einblíni fyrst og fremst á að ná
til yngri lesenda, kynslóðarinnar
sem hvorki horfir á línulega dag-
skrá né les blöðin. Ég geri fréttir
í myndbandsformi sem henta
símanum. Þetta er knappt form
en í grunninn bara hefðbundin
fréttamennska. Ég skrifa fréttir,
tek upp myndbönd, klippi efnið og
birti það,“ segir Ingunn.
Hún segir viðbrögðin hafa
verið jákvæð. „Það er augljóst að
ungt fólk hefur ekki síður áhuga á
fréttum en eldri kynslóðir, frétta-
miðlar hafa bara ekki lagt nógu
mikla áherslu á að nálgast þetta
fólk á þess grundvelli. Mér þótti
ótrúlega vænt um að heyra frá
grunnskóla- og framhaldsskóla-
kennurum að nemendur þeirra viti
meira um málefni líðandi stundar
þökk sé fréttaumfjöllun á miðlum
eins og TikTok. Auðvitað eru
áhyggjuraddir um að nota TikTok,
miðillinn safnar miklum upp-
lýsingum um notendur sína og er í
eigu kommúnistaflokksins í Kína.
Kenningar eru uppi um að miðill-
inn ritstýri efni, eins og til dæmis
með svokölluðu „shadow-ban“,
þannig að ákveðin myndbönd fá
minna áhorf en önnur. Ég fylgist
grannt með þessu og stefni líka á
að færa efni í þessu formi í auknum
mæli yfir á vef RÚV í framtíðinni
svo maður þurfi ekki að reiða sig á
milliliði,“ upplýsir Ingunn og bætir
við að þetta sé sannkallað drauma-
starf.
„Alveg frá því að ég byrjaði í fjöl-
miðlum hef ég haft áhuga á framtíð
blaðamennskunnar á stafrænum
tímum. Lesendur og áhorfendur
verða sífellt eldri og upplýsinga-
óreiða í hyldýpi samfélagsmiðla
kallar á breyttar áherslur. Neysla
fjölmiðla hefur breyst gríðarlega
og það á ekki að hræða okkur. Að
miðla fréttum á TikTok er ekki
róttæk hugmynd, í raun erum við
frekar eftir á miðað við aðra miðla
í Evrópu. En þetta er vandmeðfarið
og mikilvægt fyrir fréttastofur að
halda í sjálfstæði sitt og reiða sig
ekki of mikið á aðra miðla,“ bendir
hún á.
Staða Ingunnar er ný og hún
hefur verið að þróa hana í sam-
starfi við fréttastjóra. „Sjálf
er ég menntaður leikari, með
bachelorgráðu í amerískri leik-
húsfræði frá Rose Bruford-leik-
listarskólanum í London og með
mastersgráðu í ritlist og tók þar
aukaáfanga í fréttamennsku. Það
þarf fjölmiðlareynslu, þekkingu á
samfélagsmiðlum og að geta klippt
efni og miðlað því.“
Ingunn starfaði áður sem blaða-
maður á Fréttablaðinu í rúm þrjú
ár og var síðan nýmiðlastjóri þar
sem hún þróaði fréttamiðlun á
samfélagsmiðlum Fréttablaðsins.
„Ég stofnaði TikTok-síðu fyrir
Fréttablaðið og skrifaði bæði á vef
og í blað, fór yfir fréttir á Frétta-
vaktinni á Hringbraut og klippti
myndbönd. Þar fyrir utan hef ég
starfað sem leikari, leikstjóri og
handritshöfundur. Ég skrifaði
og leikstýrði óperu um Twitter,
#bergmálsklefinn, með Alþýðu-
óperunni og Aequitas Collective
og talaði inn á nýjan og spennandi
tölvuleik hjá Myrkur Games svo
fátt eitt sé nefnt,“ segir Ingunn Lára
sem er dóttir hins kunna frétta-
manns á Stöð 2 Kristjáns Más
Unnarssonar.
Ingunn segist geta nýtt þekkingu
og reynslu úr fjölmiðlum, óperunni
og samfélagsmiðlum til að þróa
þessa nýja stöðu. „Það er eins og
þessi reynsla hafi leitt mig hingað,
hér get ég lagt alla mína orku í eitt
stórt og spennandi verkefni.“
Þegar hún er spurð um eitthvað
óvænt í starfinu, svarar hún: Það
sem kom mér virkilega á óvart var
þegar María Sigrún fréttakona
varð allt í einu „viral“ á mexí-
kóskum miðlum. Ég byrjaði á
að birta létt efni á föstudögum á
TikTok til að sýna bak við tjöldin
á fréttastofunni. Fréttamenn eiga
til að gíra sig upp fyrir tíufréttirnar
með því að spila hressandi lög í
myndverinu rétt fyrir útsendingu.
Ég fann skemmtilegt myndband
af Maríu Sigrúnu að syngja með
lagi eftir Ice Cube. Ég birti það
með leyfi hennar og það fékk svo
mikið áhorf að ég fékk næstum
áfall,“ segir Ingunn hlæjandi, en
hún starfar á fréttastofu RÚV en er
sú eina sem starfar á þessum vett-
vangi. „Ég fæ innblástur frá sam-
starfsmönnum mínum, reynslu-
boltum sem hafa brjálæðislegan
áhuga á alls konar fréttamennsku.
Þetta starf er í stöðugri þróun
þannig að ég held að ég muni seint
staðna í þessu. Ég fylgist mikið
með VJ-starfi (e. video journalism)
fréttamiðla á Norðurlöndum og í
Þýskalandi. Ég er á leið til Berlínar,
vonandi til Deutsche Welle, í nokkr-
ar vikur til að sérhæfa mig í þessu
formi. Þar sem ég er eini frétta-
maðurinn á Íslandi sem einblínir
á þessa miðlun þá er mikilvægt að
ég leiði þetta vel. Þjóðverjar hafa
stúderað þetta mikið og eru mjög
harðir á hvernig fréttamiðlar nota
samfélagsmiðla. Fjölmiðlar verða
að aðlaga sig breyttum tímum og
einblína ekki bara á afburða rann-
sóknarvinnu heldur einnig bestu
mögulegu miðlunina. Ég ætla að
leggja áherslu á þetta á nýju ári, að
vanda mig og þora.“ n
Útbýr fréttir fyrir
samfélagsmiðla
Fjölmiðlar
verða að aðlaga
sig breyttum
tímum og ein-
blína ekki bara
á afburða rann-
sóknarvinnu
heldur einnig
bestu mögulegu
miðlunina, að
sögn Ingunnar
Láru.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
kynningarblað 47FIMMTUDAGUR 26. janúar 2023 Félag kvenna í atvinnulíFinu