Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 66
Dagný Jónsdóttir og Lilja
Magnúsdóttir gegna mikil-
vægum störfum hjá HS Orku
sem deildarstjóri Auðlinda-
garðs og yfirforðafræðingur.
Í störfum þeirra beggja er rík
áhersla lögð á að nýta auð-
lindir HS Orku sem allra best.
HS Orka er stærsti orkufram-
leiðandi á Íslandi í einkaeigu og
leiðandi í framleiðslu endurnýjan-
legrar orku. Nýsköpun hefur ætíð
verið hluti af starfsemi fyrirtækis-
ins og er grunnurinn að Auðlinda-
garðinum. Þar leggur fyrirtækið
áherslu á að allir auðlindastraumar
séu nýttir.
Störf í orkugeiranum eru
almennt séð fremur karllæg en
HS Orka hefur náð verulegum
árangri í að jafna kynjahlutfall í
efsta lagi stjórnunar. Stjórn félags-
ins er með jafnt kynjahlutfall og
yfirstjórn skipa 40% konur. HS
Orka var viðurkenningarhafi Jafn-
vægisvogarinnar á síðasta ári og
er stefna fyrirtækisins að halda
áfram á þessari vegferð og tryggja
fjölbreytta samsetningu starfs-
fólks, fyrirtækinu til heilla.
Óhefðbundinn bakgrunnur
Dagný Jónsdóttir starfar sem
deildarstjóri Auðlindagarðs HS
Orku. „Ég endaði eiginlega alveg
óvart í orkugeiranum. Ég er með
frekar óhefðbundinn bakgrunn
í mitt starf enda lögfræðingur að
mennt, með BA og ML í lögfræði
frá HR. Í kjölfarið fór ég í Master
of Management í Duke University
í Bandaríkjunum og útskrifaðist
2016.
Eftir útskrift fékk ég starf
hjá Landsvirkjun og starfaði
þar í markaðs- og samskipta-
málum, viðskiptaþróun og síðast í
nýsköpun. Ég vann að verkefnum
tengdum þróun grænna iðngarða
og var afar spennt þegar mér
bauðst að vinna að uppbyggingu
Auðlindagarðs HS Orku sem er
sterkasti vísirinn að grænum iðn-
garði á Íslandi í dag.
Það sem kom hvað mest á
óvart þegar ég byrjaði að starfa í
orkugeiranum var hvað hann er
skapandi og býr til mörg tækifæri
til að hafa bein áhrif á samfélagið,“
segir Dagný.
Áhugi á verkfræði
Lilja Magnúsdóttir er yfir forða-
fræðingur hjá HS Orku. „Það lá
lengi fyrir að ég færi í verkfræði
og lá áhugi minn helst í verk-
fræðilegri hönnun og bestun við
ákvarðanatöku með líkanagerð
að vopni. Mér hefur alltaf fundist
spennandi að herma eftir raun-
verulegum kerfum með því að
beita verkfræðilegum aðferðum
og reiknilíkönum, hvort sem ég
er að greina varmaþenslu, álag og
spennur í hlutum eða streymi og
hitastig vökva sem flæðir í gegnum
heilu jarðhitageymana.
Í meistaranámi í vélaverkfræði
frá HÍ bauðst mér styrkur til að
vinna meistaraverkefni tengt
þessu. Ég hafði tekið ýmis nám-
skeið í skólanum tengd jarðhita
sem kveiktu áhuga minn á orku-
geiranum og urðu til þess að ég
sótti um styrk til doktorsnáms í
jarðhitahóp orkuverkfræðideildar
Stanford-háskóla í Bandaríkj-
unum, þaðan sem ég útskrifaðist
með doktorsgráðu 2013.
Næst lá leiðin í nýdoktorsstöðu
hjá Lawrence Berkeley National
Laboratory. Eftir það fór ég að
vinna hjá sólarrafhlöðudeild Tesla
í Kaliforníu. Hlutverk mitt var
að finna nýjar lausnir varðandi
hönnun, efnisval og allt fram-
leiðsluferli sólarpanelanna, og
leiddi ein hönnun mín til einka-
leyfis. Ég fékk að kynnast rekstri
þekkts fyrirtækis þar sem hlutirnir
gerast hratt og nauðsynlegt er
að taka skjótar ákvarðanir við
krefjandi aðstæður.
Að auki hef ég unnið með
gervigreind í rannsóknum við
Háskóla Íslands. Árið 2020 flutti
ég til Íslands og fór að vinna hjá
HS Orku. Ég er einnig að ljúka í vor
diplómanámi í verkefnastjórnun
og leiðtogafærni hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands og svo er
ég varaformaður í stjórn Jarðhita-
félags Íslands,“ segir Lilja.
Samfélag án sóunar
Dagný tók við nýrri stöðu deildar-
stjóra Auðlindagarðs í nóvember
2021. Þar sinnir hún fjölbreyttu
starfi í markaðs- og kynn-
ingarmálum fyrir garðinn auk við-
skipta- og iðnaðarþróunar. „Þetta
er draumastaða enda vildi ég alltaf
starfa í alþjóðlegu umhverfi og fá
tækifæri til að taka þátt í að byggja
upp innlend og erlend fjárfestinga-
verkefni,“ segir Dagný. „Auðlinda-
garðurinn er samfélag fyrirtækja
sem eiga það sameiginlegt að nota
bæði raforku og aðra strauma
beint frá jarðvarmavirkjunum
HS Orku. Nú eru yfir tíu fyrirtæki
í Auðlindagarðinum og fleiri að
bætast í hópinn. Auðlindagarður-
inn er samfélag án sóunar því við
búum til verðmæti úr því sem sóað
er í jarðvarmavinnslu.
Við vinnslu jarðvarma verða
til ýmsir auðlindastraumar sem
vanalega fara til spillis. Í okkar
tilfelli eru það auk raforku: heitt
vatn, kalt vatn, jarðsjór, ylsjór,
varmaorka/gufa og koltvísýringur.
Þessa auðlindastrauma má þó
nýta, eins og fyrirtækin í garðinum
gera. Hringrásarhugsunin er ávallt
hluti af heildarmynd Auðlinda-
garðsins og því höfum við í huga
hvernig fyrirtækin passa inn í
garðinn. Hvort hægt sé að nýta
úrgang sem aðföng í starfsemina
og enn fremur hvort úrgangur frá
þeim bjóði upp á tækifæri til enn
annarrar framleiðslu.
Stærsta verkefnið okkar núna
er uppbygging Auðlindagarðsins.
Framtíðarsýnin er sú að þarna
verði fyrsta hringrásarhagkerfið
á Íslandi í svokölluðum „grænum
iðngarði“ þar sem úrgangur bæði
frá virkjun og viðskiptavinum
verður að verðmætum fyrir annan
rekstur. Í dag er ekki til nein
fyrirmynd að hringrásargarði
byggðum á jarðvarma svo þetta er
skemmtileg og skapandi þróunar-
vinna sem krefst þess að hugsa út
fyrir kassann.
Mitt starf snýst ekki bara um að
selja Auðlindagarðinn sem aðlað-
andi kost, heldur einnig Ísland. Ég
sinni samskiptum og samningum
við erlenda og innlenda viðskipta-
vini, en það er mikil vitundar-
vakning um sjálfbæra framleiðslu
um allan heim. Stöðugir langtíma-
samningar um raforku verða líka
sífellt eftirsóttari, sérstaklega eftir
óstöðugleika raforkumarkaða í
Evrópu í vetur. Viðskiptaþróun í
orkugeiranum er langhlaup og það
getur tekið mörg ár þar til samn-
ingar nást við fyrirtæki og verkefni
kemur til framkvæmda. Starfið
krefst því mikillar þrautseigju og
þolinmæði.
Í ljósi þess að við erum á leið í
þriðju orkuskiptin, með allri þeirri
hröðu þróun og nýsköpun sem
þeim fylgja, er orkugeirinn á fullri
ferð og það er virkilega spennandi
að taka þátt í þeirri vegferð,“ segir
Dagný.
Hugmynda- og reiknilíkön fyrir
hagkvæmari jarðhitavinnslu
Lilja var ráðin inn hjá HS Orku sem
sérfræðingur í forðafræði árið 2020
og var orðin yfirforðafræðingur
innan við ári síðar. „Mitt fyrsta
verkefni sem yfirforðafræðingur
var að hanna nýtt reiknilíkan frá
grunni af jarðhitakerfinu á Reykja-
nesi. Vel tókst til og var dýrmætt
að fá reiknilíkan innanhúss með
góðri samsvörun við mælingar af
svæðinu. Nú leiði ég öflugt teymi í
þróun hugmyndalíkana og reikni-
líkana innan deildar Auðlinda-
stýringar.
Til að vinna orku úr jarðhita
eru boraðar holur ofan í jörðina
til að sækja bæði heitt vatn fyrir
hitaveitur og gufu sem knýr áfram
hverfla til að framleiða rafmagn.
Jarðhitinn er endurnýjanleg auð-
lind en mikilvægt er að meta fram-
leiðslugetu hverju sinni svo hægt
sé að stuðla að sjálfbærari vinnslu.
Erfitt er að vita hvað er að gerast
2–3 kílómetrum undir yfirborði
jarðar en til að fá innsýn í jarðhita-
geyminn eru notuð líkön.
Hjá HS Orku er metnaður til
að nýta auðlindirnar sem allra
best og eru þessi líkön forsenda
þess að hægt sé að besta nýtingu
svæðanna í sátt við umhverfið. Þau
gera okkur kleift að skilja betur
hvernig jarðhitakerfið bregst við
ákveðinni vinnslu og hvernig
þróunin mun verða í framtíðinni.
Þannig stuðla þau að því að hægt
sé að taka réttar ákvarðanir við
rekstur virkjananna.
Fram undan eru spennandi
verkefni tengd borun nýrrar holu
á Reykjanesi og ferilefnapróf-
unum þar sem ferilefnum verður
dælt niður í holu og mælingar á
ferilefninu gerðar í öðrum nær-
liggjandi holum. Þannig er hægt
að meta samband á milli holanna
sem nýtist inn í reiknilíkönin til
að besta niðurdælingu á svæðinu.
Við erum einnig vakandi fyrir
nýjungum eins og nýtingu gervi-
greindar í jarðhitanum og höfum
náð góðum árangri við að tengja
framleiðslulíkön við forðafræði-
líkönin. Markmiðið er að hámarka
notagildi líkananna til að stuðla að
hagkvæmari jarðhitavinnslu.“
Björt framtíðarsýn
Framtíðarsýn HS Orku er björt og
er næst á dagskrá að auka raforku-
framleiðslu í Svartsengi með því
að skipta út nokkrum eldri vélum
fyrir nýjan hverfil sem nýtir
orkuna betur. „Við erum einnig að
ljúka stækkun Reykjanesvirkjunar
þar sem jarðhitavökvinn sem
unninn er fyrir háþrýstihverfla
virkjunarinnar er áframnýttur í
nýjum lágþrýstihverfli til að auka
afkastagetu vökvans sem tekinn
er upp úr jörðinni,“ segir Lilja.
„Hvað lýtur að Auðlindagarðinum
þá er framtíðarsýnin að bæta við
viðskiptavinum og byggja upp
hringrásarhagkerfi í garðinum,“
segir Dagný. n
Fullnýting auðlinda hjá HS Orku
Lilja Magnúsdóttir (t.v.) og Dagný Jónsdóttir gegna báðar draumastöðu hjá HS Orku. Fréttablaðið/anton brink
Framtíðarsýnin er
sú að þarna verði
fyrsta hringrásarhag-
kerfið á Íslandi í svoköll-
uðum „grænum iðn-
garði“ þar sem úrgangur
bæði frá virkjun og
viðskiptavinum verður
að verðmætum fyrir
annan rekstur.
Dagný Jónsdóttir
Við erum einnig
vakandi fyrir
nýjungum eins og nýt-
ingu gervigreindar í
jarðhitanum og höfum
náð góðum árangri með
að tengja framleiðslu-
líkön við forðafræði-
líkönin.
Lilja Magnúsdóttir
50 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélag kvenna í atvinnulíFinu