Fréttablaðið - 26.01.2023, Page 68
Sandra Yunhong She er
eigandi og framkvæmda-
stjóri Arctic Star, sem selur
hágæða heilsuvörur sem
unnar eru úr íslenskum
sæbjúgum.
„Við höfum sérhæft okkur í
að framleiða og selja afurðir
úr sæbjúgum og Arctic Star
sæbjúgnahylkin eru framleidd
úr íslenskum hágæða sæbjúgum.
Okkar markmið er að framleiða,
markaðssetja og selja hreinar og
ómengaðar heilsuvörur sem eru
aðallega framleiddar úr hreinu og
ómenguðu hráefni,“ segir Sandra,
en sæbjúgu hafa oft verið nefnd
„ginseng hafsins“ enda innihalda
þau fjöldann allan af gagnlegum
efnum.
Sandra segir að það séu þrjár
tegundir af sæbjúgnahylkjum sem
eru komnar á markað, en starf-
semi Arctic Star hófst árið 2015.
„Í fyrstu vorum við bara með
sæbjúgnahylki en nú erum við
einnig komin með Marine Colla-
gen sem inniheldur líka kollagen
og sæbjúgnahylki, +D3 innihalda
líka D-vítamín,“ segir Sandra.
Innihalda mikið prótein
Spurð hvað sé svona hollt og
gott við sæbjúgun segir Sandra:
„Sæbjúgun innihalda mikið
prótein og innihalda mörg nær-
ingarefni, steinefni, amínósýrur
og vítamín. Efnin í sæbjúgunum
eru mjög góð fyrir þá sem eru með
liðverki og sæbjúgnahylkin henta
þeim vel sem eru að fást við gigt,
slitverki, bakverki og fyrir þá sem
eru með veikt ónæmiskerfi. Þá
auka þau blóðflæðið í líkamanum
og þau hafa reynst sumum konum
hjálpleg sem glíma við ófrjósemi,“
segir Sandra, sem sjálf segist hafa
afar góða reynslu af taka inn
sæbjúgnahylkin.
„Ég var með mjög veikt ónæmis-
kerfi og var oft lasin og fékk
gjarnan flensu. Eftir að ég fór
að taka inn sæbjúgnahylkin að
staðaldri árið 2013 hef ég sjaldan
orðið veik. Á Covid-tímanum voru
margir að veikjast en ég fann aldr-
ei fyrir neinum einkennum,“ segir
Sandra. Hún er fædd í Anshan í
Kína og ólst þar upp áður en hún
færði sig til Dalian í Norðaustur-
Kína áður en hún flutti til Íslands
árið 2002.
Sandra segir að sæbjúgun séu
veidd í Atlandshafinu við strendur
Íslands. „Við notum eingöngu
íslensk sæbjúgu í okkar fram-
leiðslu og við fáum nóg af þeim
til að framleiða hylkin. Sæbjúgun
eru ekki öll eins en þau íslensku
innihalda meiri virk efni heldur en
þau sem eru í Asíu. Til dæmis er
próteinmagnið í þeim íslensku 70
prósent á móti 30 frá Asíu,“ segir
Sandra, en sæbjúgu hafa í langan
tíma verið þekkt sem heilsufæði
með ríkan lækningamátt í löndum
eins og Kína, Japan og í Indónesíu.
Góð viðbrögð
frá viðskiptavinum
Sandra segir að viðtökurnar á
sæbjúgnahylkjunum hér á landi
hafi verið mjög góðar.
Hágæða heilsuvörur frá Arctic Star
Sandra Yunhong She, eigandi og framkvæmdastjóri Arctic Star, sem selur hágæða heilsuvörur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Arctic Star selur
sæbjúgnahylki
sem eru fram-
leidd úr íslensk-
um hágæða
sæbjúgum.
Marine Collagen
inniheldur líka
kollagen og C-
vítamín og Sæ-
bjúgnahylki+D3
innihalda líka
D-vítamín.
Sigrún B. Gunnhildardóttir
verkfræðingur starfar sem
framkvæmdastjóri vöruþró-
unar hjá AGR. Hún segir að
fyrirtækið sé í miklum vexti
og því séu tækifærin mörg
fyrir starfsfólk sem vill vaxa
í starfi.
AGR var stofnað árið 1998 út frá
meistaraverkefni í verkfræðideild
Háskóla Íslands og frá upphafi
hefur fyrirtækið ráðið til sín mikið
af ungu fólki í gegnum samstarf
við háskólana. AGR er með skrif-
stofur í Danmörku, Svíþjóð, Nor-
egi, Bretlandi og Bandaríkjunum
en höfuðstöðvarnar eru á Íslandi.
„Ég kynntist AGR í gegnum nám
mitt í HR. Þá var mikið um gesta-
kennara í HR sem störfuðu hjá
AGR en við höfum farið reglulega
inn í verkfræði- og tölvunarfræði-
deildir háskólanna með fyrir-
lestra. Einnig höfum við tekið á
móti nemendum í starfsnám, stutt
við lokaverkefni og meistaraverk-
efni og f leira. Þannig sækjum við
mikið af okkar tæknimenntaða
starfsfólki, í vöruþróun og ráð-
gjöf,“ útskýrir Sigrún.
„Margar af ungu konunum sem
við höfum ráðið inn beint að loknu
námi eru í leiðtogahlutverkum
hjá okkur í dag. Við viljum skapa
umhverfi sem gerir metnaðarfullu
fólki kleift að finna sína hillu og
taka þátt í að drífa vöxt fyrirtækis-
ins til framtíðar. Hjá okkur starfar
töluvert af konum meðal annars
við forritun, ráðgjöf og verkefna-
stjórnun, einnig erum við með
jafnt kynjahlutfall í stjórnunar-
stöðum. Það er eftir okkur tekið
á erlendri grundu en það þykir
frekar óvenjulegt hvað við erum
bæði með hátt hlutfall af ungu
starfsfólki í ábyrgðarhlutverkum
og jafnt kynjahlutfall.“
Hlutu viðurkenningu Jafnvægis-
vogarinnar tvö ár í röð
AGR hlaut viðurkenningu Jafn-
vægisvogarinnar í fyrra, annað
árið í röð, vegna vinnu við að jafna
kynjahlutföll innan fyrirtækisins.
„Í gegnum tíðina höfum við
ráðið þrjá til fimm nýútskrifaða
nemendur árlega, en við höfum
unnið markvisst að því á síðustu
fimm til sex árum. Þannig höfum
við jafnað kynjahlutfallið jafnt og
þétt. Nú erum við með jafnt kynja-
hlutfall á íslensku skrifstofunni
en 40% starfsfólks fyrirtækisins í
heild eru konur,“ segir Sigrún.
„Ég er framkvæmdastjóri vöru-
þróunar (CPO) og leiði nýþróun
á hugbúnaðinum okkar. Um það
bil 20 manns starfa í vöruþróun,
langflestir á Íslandi og 80 hjá fyrir-
tækinu í heild. Eitt af slagorðum
AGR er að þú getur skapað þín
eigin örlög. Allir hafa tækifæri til
að koma sínu á framfæri og þróast
í þá átt sem styrkleikar þeirra og
áhugasvið liggja. Við brennum
fyrir vörunni og þeim áskorunum
sem hún leysir fyrir viðskipta-
vinina. Við erum heppin að fólk
stoppar almennt lengi hjá okkur
og vex í starfi með fyrirtækinu.“
Útrýma sóun í aðfangakeðjunni
Aðalmarkmið AGR er að útrýma
sóun í aðfangakeðjunni. Til að
ná markmiðinu hefur fyrirtækið
þróað hugbúnað sem reiknar
út áætlað magn af vörum sem
viðskiptavinurinn selur og segir
honum út frá því hversu mikið
hann á að panta inn af vörunni.
„Við erum í raun að besta inn-
kaupamagn viðskiptavinanna
svo þeir panti rétt magn á réttum
tíma inn á rétta staði. Auk þess að
gefa yfirsýn og auðvelda stýringu
aðfangakeðjunnar sparar tæknin
flutningskostnað og birgðahalds-
kostnað, losar fjármagn bundið
í birgðum og sparar tíma við
innkaup og áætlanagerð. Kerfið
er í raun viðbót við viðskiptakerfi
fyrirtækja. Þetta er innkaupahug-
búnaður sem byrjað var að þróa
árið 1998, upphaflega í samstarfi
við Aðföng og Húsasmiðjuna.
Fyrstu árin störfuðum við ein-
göngu á íslenskum markaði, en
í dag koma 90% af okkar tekjum
erlendis frá, það má því segja að
við séum í útflutningi á íslensku
hugviti,“ útskýrir Sigrún.
Ávinningur af nýrri tækni
Nýlega fékk AGR styrk frá Rannís
til að bæta spáaðferðir sínar og
bæta gervigreind inn í þær.
„Við reynum stöðugt að bæta
kerfið fyrir viðskiptavini okkar og
höfum fjárfest yfir 20% af okkar
veltu í þróun síðastliðin ár. Við
hjálpum viðskiptavinum okkar að
lækka óþarfa birgðir. Að meðaltali
minnkum við birgðir hjá við-
skiptavinum okkar um 15% frá
því þeir koma í viðskipti við okkur
með tilheyrandi sparnaði í f lutn-
ingskostnaði, minni birgðasóun
og minni fjárfestingu í birgðum.
Það er töluverður ávinningur af því
að nota tækni eins og okkar,“ segir
Sigrún. „Með því að spá betur fyrir
um sölu á þínum vörum og stýra
birgðunum vel má ná betri tökum
á aðfangakeðjunni, við leggjum
einnig ríka áherslu á að sjáfvirkni-
væða innkaupaferla til að spara
tíma við innkaup og áætlanagerð.“
Stór hluti íslenskra heild- og
smásala eru viðskiptavinir AGR í
dag en erlendis má nefna Søstrene
Grene, Toys’R’Us, Ferm Living og
Didrikson.
Sigrún segir að nýlega hafi fyrir-
tækið fengið fjárfestingasjóðinn
Vex inn í fyrirtækið sem hefur
gert þeim kleift að umbreyta hug-
búnaðinum svo innleiðingartími
hans verði styttri. Fleiri fyrirtæki
geta því nýtt sér tæknina sem AGR
býður upp á og viðskiptavinum
fjölgar ört. n
Breyta heiminum í gegnum viðskiptavini sína
Sigrún Gunnhildardóttir leiðir nýþróun á hugbúnaði AGR. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Íslendingar hafa tekið mjög vel í
sæbjúgnahylkin. Salan hefur verið
stöðug á þeim og í fyrra bættust
á markaðinn kollagen sæbjúgna-
hylkin og sæbjúgnahylkin+D3. Við
höfum fengið virkilega góð við-
brögð frá okkar viðskiptavinum
enda eru þetta frábærar heilsu-
vörur.“
Artic Star Marine Collagen eru
framleidd úr Atlandshafsþorsk-
roði og sæbjúgum sem eru veidd
í Norður-Atlantshafinu. Kollagen
er þekkt fyrir að seinka öldrun
húðarinnar, bæta háræðaslit-
kerfi, stuðla að frásogi kalsíums,
kalsíum uppbótar og styrkja
ónæmiskerfið.
Artic Star sæbjúgnahylki+D3 eru
framleidd úr sæbjúgum en nýjar
rannsóknir sýna að D3 gegnir hlut-
verki í hjarta-og æðastarfsemi og
styður heilbrigða bólgusvörun. n
Vörur frá Arctic Star er hægt að
nálgast í vefversluninni arcticstar.
is, en þær eru einnig fáanlegar í
flestum apótekum, heilsubúðum
og í Hagkaupi og Fjarðarkaupum.
52 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélAg kvennA í AtvinnulíFinu