Fréttablaðið - 26.01.2023, Page 70
Félag kvenna í atvinnulíFinu
Ein stærsta vertíð ársins er
fram undan hjá Nóa Síríusi,
tímabilið þegar páskeggja-
framleiðslan fer fram. Gríðar-
legur fjöldi eggja rennur af
færiböndunum yfir þann
tíma því fyrirtækið fram-
leiðir rúmlega eitt páskaegg
fyrir hvern Íslending á ári
hverju.
Starfsmenn Nóa Síríusar eru um
130, þar af helmingurinn konur.
„Við leggjum mikið upp úr fjöl-
breytileika en hjá okkur starfar fólk
af yfir tíu þjóðernum. Starfsaldur
er almennt hár og starfsánægja
mælist mikil,“ segir Harpa Þor-
láksdóttir, framkvæmdastjóri
mannauðs hjá Nóa Síríusi. „Enda
eru það forréttindi að fá að vinna
með vörur eins og okkar. Það sést
vel á áhuga almennings á starfinu
hér, flestir vilja komast í hinn
fræga bragð panel sem er hópur
fólks sem sér um að smakka fyrir
okkur nýjungar,“ bætir Helga Beck
markaðsþróunarstjóri við. „Það
spillir sannarlega ekki fyrir,“ segir
Harpa og brosir.
„Við leggjum mikla áherslu á fjöl-
breytileika í sinni víðustu mynd og
leggjum okkur fram um að mæta
fólki á þeim stað sem það er statt á
hverju sinni. Við þurfum breiðan
starfsmannahóp sem endurspeglar
margbreytileika viðskiptavina
okkar. Til þess að ná háleitum
markmiðum okkar um vöxt
þurfum við að ná til eins breiðs
hóps og mögulegt er. Með fjöl-
breyttum starfsmannahópi aukum
við möguleikana á að mæta kröfum
sem flestra. Þar fyrir utan er svo
miklu skemmtilegra að vinna í fjöl-
breytilegum hópi fólks því þannig
víkkar maður sjóndeildarhringinn
og verður betri manneskja.“
Áhersla á samfélagslega ábyrgð
Þó að Nói Síríus hafi verið samferða
þjóðinni í rúma öld þýðir það ekki
að fyrirtækið fylgi ekki stefnum
og straumum. „Páskaeggjafram-
leiðslan okkar er gott dæmi um
samfélagslega vitund en við höfum
reynt að gera hana umhverfisvænni
undanfarin ár,“ segir Helga. „Við
viljum fjarlægja allt óþarfa plast og
því er plast utan um nammi innan
í egginu í algjöru lágmarki. Að auki
hefur flestum plastfígúrum verið
skipt út fyrir ætar kanínur. Svo
breyttum við ytri kössum eggjanna
og fjarlægðum millispjöld sem
sparaði umtalsverðan pappa í þeim
rúmlega 18.000 kössum sem við
sendum frá okkur.“
Allt súkkulaði frá Nóa Síríusi ber
Cocoa Horizons-vottun sem tryggir
betri lífsgæði fyrir kakóræktarsam-
félögin þaðan sem kakóið kemur.
„Síðan 2013 höfum við eingöngu
keypt kakóhráefni sem bera þessa
vottun en það er okkur mikilvægt
að mannréttindi séu höfð að leiðar-
ljósi í gegnum alla virðiskeðjuna.
Með Cocoa Horizons er verið að
stuðla að aukinni menntun bænda,
vinna með valdeflingu kvenna og
efla skólagöngu barna. Að auki eru
samfélögin frædd um ræktunar-
aðferðir til að koma í veg fyrir
eyðingu skóga og ofræktun lands,
sem skiptir miklu máli í baráttunni
við loftslagsvána,“ segir Helga.
„Svo má bæta við að þar sem við
erum íslenskt fyrirtæki þá reynum
við að sjálfsögðu að versla sem mest
við innlenda birgja. Einn þeirra er
Örvi starfsþjálfun sem sér um fram-
leiðslu á páskaeggjaformunum sem
notuð eru til að steypa eggin,“ bætir
Harpa við.
Stórt hlutverk kvenna og aukin
tækifæri til starfsþróunar
Ein fyrsta konan til að gegna stjórn-
arformennsku í íslensku fyrirtæki
var Ingileif Bryndís Hallgrímsdóttir
sem tók við sem stjórnarformaður
Nóa Síríusar árið 1954 og gegndi
þeirri stöðu allt til ársins 2004
þegar dóttir hennar, Áslaug Gunn-
arsdóttir, tók við. „Það er mikil
hefð innan fyrirtækisins fyrir stóru
hlutverki kvenna í starfseminni og
óslitin stjórnarformennska kvenna
í rúm 65 ár er gott dæmi um það,“
segir Harpa.
Líkt og fjallað var um í fréttum
var Nói Síríus seldur til fjárfestinga-
sjóðsins Orkla árið 2021. Harpa
segir fyrirtækið hafa notið góðs af
stuðningi Orkla og það skapi mikil
tækifæri til starfsþróunar fyrir
starfsfólk, jafnvel á erlendri grundu.
Það séu miklir möguleikar fyrir fólk
að geta sótt námskeið erlendis og
sinnt endurmenntun hjá afar þekk-
ingarmiðuðum eigendum. n
Fjölbreytileiki og samfélagsábyrgð hjá nóa Síríusi
Helga Beck markaðsþróunarstjóri og Harpa Þorláksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, leggja mikið upp úr fjölbreytileika innan starfsmannahóps fyrirtækisins.
Fréttablaðið/Valli
Við leggjum mikla
áherslu á fjöl-
breytileika í sinni víð-
ustu mynd og leggjum
okkur fram um að mæta
fólki á þeim stað sem
það er statt á hverju
sinni.
Harpa Þorláksdóttir
Skemmtileg páskavertíð
Páskaeggjaframleiðsla Nóa Síríusar er að miklu leyti
drifin áfram af sterkum konum en framleiðslan er
mannaflsfrek, því hvert egg er handgert. Sylwia Mal-
gorzata Lichy verkstjóri og Marjulie Oquino Miano
hópstjóri leiða hópinn í páskaeggjaframleiðslunni
en þær hafa báðar starfað hjá fyrirtækinu í 10 ár.
„Það verða allir að vinna saman ef við ætlum að ná
að framleiða öll eggin í tæka tíð og þá er nú gott að
hafa alla þessu öflugu vinnufélaga í framleiðslunni,“
segir Sylwia. „Það er alltaf gaman þegar páskavertíð-
in hefst og skemmtileg stemning sem fylgir henni,“
bætir Marjulie við en þær Sylwia vinna náið saman.
„Það er gott að vinna hjá Nóa Síríusi og vel haldið
utan um starfsfólkið, enda vinna flestir hérna lengi,“
segir Marjulie og tekur fram að það sé gefandi að
vinna hjá fyrirtæki þar sem starfi jafn fjölbreyttur
hópur fólks. „Og öll fáum við að njóta okkar á eigin
forsendum,“ bætir hún við. Sylwia nefnir að það sé
frábært að hafa möguleika á að vinna sig upp og
vaxa í starfi. „Svo er auðvitað mjög gaman að taka
þátt í framleiðslu á vöru sem býr til páskastemning-
una,“ bætir hún brosandi við að lokum.
Sylwia Malgorzata Lichy verkstjóri og Marjulie Oquino Miano hópstjóri leiða páskaeggjaframleiðsluna sem er
komin í fullan gang enda framleiðir Nói Sírius meira en eitt páskaegg á hvern landsmann ár hvert. Fréttablaðið/Valli
54 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGUR