Fréttablaðið - 26.01.2023, Blaðsíða 80
Vinnupallar eru sex ára
gamalt fyrirtæki, stofnað
af hjónunum Sigríði Hrund
Pétursdóttur og Baldri Ing-
varssyni. Fyrst um sinn var
félagið rekið heima, en þegar
þau festu kaup á Smiðsbúð
10 í Garðabæ var loksins
hægt að opna verslun því
aðstaðan var hin ákjósan-
legasta með læstu hliðar-
porti og rúmgóðum lager-
geymslum.
„Eðlilega óx fyrirtækinu ásmegin
við góða vinnuaðstöðu. Í febrúar
verður opnuð ný og glæsileg
verslun Vinnupalla að Vagnhöfða
7 þar sem boðið verður upp á enn
frekari breidd í vöruúrvali og rými
til frekara umfangs. Það er að sjálf-
sögðu þannig að fyrirtækið hefur
vaxið langt út fyrir nafngiftina og
ekki aðeins eru seldir og leigðir
vinnupallar hjá Vinnupöllum
heldur flest allt sem tengist öryggi
við framkvæmdir. Auðvelt er að
fá vörur heimsendar, aðstoð við
uppsetningar og við að taka niður/
saman. Þjónustustig er hátt og
vinnugleðin við völd.
Þegar velja skal vöru til sölu hjá
Vinnupöllum er grunnatriði að
hún styðji við sýn fyrirtækisins og
markmið, sem eru að veita framúr-
skarandi þjónustu með gæða-
vörum á góðu verði. Fallvarnir
eru okkur ofarlega í huga sem
og persónuvarnir. Það eru seldir
stigar, tröppur og pallar fyrir fjöl-
breyttar vinnuaðstæður, fallvarnir
sem belti, línur og taugar ásamt
persónuhlífum eins og hjálmum,
gleraugum, rykgrímum, hönskum
og ljósum. Verksvæði geta auðveld-
lega verið örugg með girðingum,
göngubrúm og umferðaröryggis-
vörum. Stoðvörur til að auðvelda
framkvæmdir eru meðal annars
hitablásarar knúnir dísel, raf-
magni, vatni eða gasi, iðnaðarryk-
sugur og vatnssugur.
Persónuleg þjónusta
Vinnupallar hafa ávallt lagt mikla
áherslu á öryggi vinnustaða og per-
sónulega lausnamiðaða þjónustu.
Viðskiptavinum er kennd rétt
notkun varanna, vakin er athygli
á mikilvægi öruggra lausna og
árvekni við störf hverju sinni.
Öryggismenning í mannvirkjageir-
anum fer batnandi en er þó sífelld
endurtekning, því aðstæður breyt-
ast hratt á verkstöðum. Einnig er
iðnaðurinn ríkur af fjölmenningu
sem krefst þess að öryggisupplýs-
ingar séu aðgengilegar og sýnilegar
á fleiri tungumálum. Selt og leigt er
jafnt til almennings sem fagaðila,“
segir Sigríður Hrund.
„Það er linnulaus vinna að byggja
upp fyrirtæki svo vel sé. Ehf. þýðir
í raun ekkert frí og yfirlega mikil
öllum stundum.
Mannvirkjaiðnaður á Íslandi er
orðinn heilsársiðnaður og linnu-
laus umsvif í framkvæmdum –
bæði hjá fyrirtækjum og svo einnig
vantar íbúðir fyrir hratt aukinn
mannfjölda landsins. Að reka fyrir-
tæki á Íslandi er ekki fyrir hvern
sem er, ekki síst lítið viðkvæmt inn-
flutningsfyrirtæki. Hráefnisverð
hefur margfaldast sem og flutn-
ingskostnaður, launakostnaður er
hár og vaxtakjör afar íþyngjandi.
Þetta er raunveruleikinn. Það er
athyglisvert að gott viðhorf og
framúrskarandi þjónustulund er
einkennismerki Vinnupalla.“
Eina konan í hópnum
Sigríður Hrund bendir á að í geira
sem starfar umtalsvert utandyra
séu aðstæður krefjandi, enda
viðrar ekki alltaf vel á landinu.
Aðstæður á framkvæmdasvæðum
geti hratt orðið varhugaverðar og
jafnvel hættulegar, hægi á fram-
kvæmdum sem eru kostnaðar-
samar og framlegð tapist skjótt.
Að þjónusta hratt, vel og skilvirkt
með framúrskarandi þjónustu-
lund og viðhorfi góðs teymis, sé
því kjarni Vinnupalla. „Ég er eini
kvenmaðurinn í teyminu en finn
aldrei fyrir kyni, aldri eða upp-
runa. Við erum frábært ólíkt teymi
sem vinnur vel saman. Orðin
sem birtust á töflunni á stefnu-
mótunarfundi nýliðnum um hvað
væri gott við að vinna saman voru:
notalegt umhverfi, vinskapur, gott
tempó, tölum íslensku, brosum,
erum góð við hvert annað, veitum
framúrskarandi þjónustu, höfum
gæði ávallt í huga, með metnað og
kraft. – Ég verð að viðurkenna að
fyrir utan að fá ryk í augað þá er
þetta hráefni í góða vinnudaga til
lengri tíma. Svo má ekki gleyma
hlaðvarpinu Vinnuskúrinn, sem
ræðir við öll kyn óháð uppruna um
margvísleg málefni tengd mann-
virkjaiðnaði og framkvæmdum,“
segir Sigríður Hrund.
„Vinnupallar leggja metnað í að
sýna samfélagslega þátttöku, ekki
aðeins með því að efla öryggis-
vitund við framkvæmdir heldur
með því að styrkja málefni.
Vinnupallar styrkja til dæmis
Lukku Mörk Sigurðardóttur Blom-
sterberg, sem er besta klifurkona
landsins aðeins 19 ára gömul;
hugmyndasmiði sem eru að búa til
námsefni um frumkvöðlafræði og
sköpunargleði fyrir 6-9 ára börn
og hlaðvarpið Vinnuskúrinn sem
ræðir við öll kyn um margvísleg
málefni tengd mannvirkjaiðnaði
og framkvæmdum. Það er gefandi
og gaman að tileinka hluta góðs
reksturs að samfélagslegri þátt-
töku og vera þannig hluti af ein-
hverju sem er stærra en við sjálf,“
segir Sigríður Hrund. „Þannig
erum við samferða í að vera sam-
félagið sem við viljum búa í.“ n
Að fjárfesta í framtíðinni
Verk og vit sýningin í fyrra. Lukka Mörk sýnir listir sínar. myndir/aðsendar
Sigríður Hrund fyrir utan fyrirtækið í
Garðabæ. myndir/aðsendar
Sighvatur og Gunnar Örn sölustjóri á góðri stundu sumarið 2022.
Vinnupallar eru fjölskyldufyrirtæki þar sem áherslan er á góðan vinnuanda.
Í febrúar verður
opnuð ný og glæsi-
leg verslun Vinnupalla
að Vagnhöfða 7 þar sem
boðið verður upp á enn
frekari breidd í vöruúr-
vali og rými til frekara
umfangs.
64 kynningarblað 26. janúar 2023 FIMMTUDAGURFélAg kvennA í AtvinnulíFinu