Fréttablaðið - 26.01.2023, Side 84
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Þorsteinsson
kennari,
lést á Hrafnistu Boðaþingi 6. janúar.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju,
miðvikudaginn 1. febrúar kl. 13.
Birna Fríða Björnsdóttir
Björn Bergsteinn Guðmundsson Kristín Hauksdóttir
Þóra Guðmundsdóttir Sigurður Hauksson
Jóna Rut Guðmundsdóttir Kristján Svanbergsson
Hrafnhildur Edda Magnúsdóttir,
Hrafnkell Orri Sigurðsson og
Kristófer Dagur Kristjánsson
Ástkær eiginkona, móðir okkar,
amma og langamma,
Guðríður Helgadóttir
kennari og leikskólafulltrúi,
Kirkjubraut 2, Reykjanesbæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að morgni
21. janúar. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þann
3. febrúar klukkan 11.00.
Sigurður G. Sigurðsson
Hildur Sigurðardóttir Steinþór Jónsson
Helgi Kjartan Sigurðsson Birna Björk Þorbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sverris Skarphéðinssonar
Árskógum 1 B.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki 13EG á
Landspítala við Hringbraut og K2 á Landakoti, fyrir
einstaka umönnun, alúð og virðingu í veikindum hans.
Hólmfríður Þórhallsdóttir
Örn Steinar Sverrisson
Þórhallur Sverrisson Jóhanna Lind Jónsdóttir
Svanhildur Sverrisdóttir Dieudonné Gerritsen
afabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórhildur Arnfríður
Jónasdóttir
Austurbyggð 17, Akureyri,
lést 17. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 30. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð. Sérstakar þakkir til
starfsfólks á Furuhlíð fyrir hlýja og góða umönnun.
Kristín H. Guðmundsdóttir
Elín G. Guðmundsdóttir Lúðvík E. Gústafsson
ömmu- og langömmubörn
Ástkær mamma okkar,
Sigríður Halldóra
Hermannsdóttir
Vestursíðu 9, áður til heimilis að
Skálagerði 2, Akureyri,
lést 23. janúar síðastliðinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Anna Guðný, Hermann, Ingibjörg og Sigríður Matthildur
Ástkær faðir okkar, bróðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Finnur Jóhannsson
lést á heimili sínu eftir erfið veikindi.
Útförin fer fram að heiðnum sið í
Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 15.00.
Erla Sigríðardóttir
Ísey Jökulsdóttir
Íris Magnúsdóttir Guðmundur I. Þorsteinsson
Kristófer Jensson Guðlaug A. Guðmundsdóttir
afabörn og langafabarn
Sigurjón Jóhannsson
Árni Jóhannsson Dagfríður Jónsdóttir
Margrét Nanna Jóhannsd. Karl Ísleifsson
Jóhann Jóhannsson
og fjölskyldur
Sólveig segist vera eins og fiskur í vatni bæði á Íslandi og í Berlín. Mynd/Aðsend
Afmælisbarnið Sólveig Arnars-
dóttir hefur ekki í hyggju að
endurvekja skelfilega afmælis-
hefð úr æsku sinni.
arnartomas@frettabladid.is
„Mér finnst ég alltaf vera á besta aldri,“
segir leikkonan Sólveig Arnarsdóttir
sem fagnar fimmtíu ára afmæli í dag.
„Það eina sem ég hef fundið út er að
þetta verður í alvörunni bara betra. Ég
hef alltaf verið frekar sátt með minn
aldur en eftir því sem ég eldist þá verð
ég sáttari við mig, lífið og allt verður
einhvern veginn skemmtilegra.“
Sólveig hefur engar hefðir í sínu lífi,
hvorki tengdar afmælum eða nokkru
öðru, og segist þar af leiðandi ekki ætla
að halda í neinar slíkar á deginum stóra.
„Ég er ekki búin að leigja sal, karlakór
og lúðrasveit, en ætla að halda margar
afmælisveislur í minni hollum til að
koma fólki fyrir í mínu fagra litla húsi,“
segir hún og útskýrir að nú sé í raun að
hefjast afmælisár. „Á síðasta ári áttum
við hjónin silfurbrúðkaup og við litum
þá á að það væri silfurbrúðkaupsár. Allt
sem við gerðum á því ári litaðist af því.
Ef við fórum upp í Bláfjöll þá var það
silfurbrúðkaupsskíðaferð.“
Silfurbrúðkaupsárið tókst svo vel til
að gefa hlutunum nýjan brag að hin
hefðalausa Sólveig mun endurtaka leik-
inn á fimmtugsafmælisárinu.
„Ef ég fer í bíó þá verður það fimm-
tugsafmælisbíóferð!“ segir hún og hlær.
Fiskur í tvöföldu vatni
Sólveig er þessa dagana að bregða sér í
hlutverk Lafði Macbeth í uppsetningu
á Shakespeare-verkinu sem frumsýnt
var á dögunum í Borgarleikhúsinu. Þar
fyrir utan er hún á æfingum fyrir verkið
Prinsessuleikarnir, þar sem hún mun
fara með hlutverk forsetafrúarinnar
Jackie Kennedy.
„Ég held bara áfram að sinna mínum
störfum og skyldum, en allt í þessum
fimmtugsafmælisljóma.“
Sólveig bjó lengi í Berlín þar sem hún
stundaði nám. Fjölskyldan flutti þangað
þegar Sólveig fékk samning við leikhús
2019 en f lutti svo aftur þegar kóróna-
veiran dúkkaði upp með tilheyrandi
lokunum á öllu.
„Það var kannski aðallega vegna
yngsta drengsins okkar, svo að hann
kæmist aftur í skóla, því það var öllum
skólum lokað þarna úti,“ segir Sólveig
sem segist sakna margs frá Þýskalandi.
„Það er samt þannig að þegar ég bjó úti
þá saknaði ég Íslands – það eru til dæmis
ekki sundlaugar í Berlín sem mér þótti
mjög slæmt. Svo lengi framan af lífi
mínu var þetta togstreita að vera í öðru
landinu en nú hef ég breytt um afstöðu.
Ég lít á það sem ótrúleg forréttindi í líf-
inu að fá að upplifa mig eins og fiskur í
vatni í löndunum sem hafa bæði mótað
mig og gefið mér margt.“
Skelfilegur listi
Innt eftir afmælisminningum lætur Sól-
veig hugann reika á myrkar slóðir.
„Þegar ég var barn var haldið í eina
afmælishefð sem tíðkast sem betur fer
ekki lengur í dag, og ég ætla sko ekki
að taka upp aftur,“ segir hún. „Þá voru
búnir til listar í afmælunum yfir afmæl-
isgjafirnar, frá þeim bestu og yfir í þær
verstu.“
Gestirnir fengu þó ekki að heyra?
„Ójú, þetta var sko gert opinberlega
fyrir framan alla gesti! Yfirleitt voru
gjafirnar frá ömmu og afa, ullarsokkar
og þess háttar, settar í neðsta sæti en
gjafirnar frá bestu vinkonu voru í því
efsta. Þetta er eitthvað sem var gert í
afmælum hér áður fyrr og var alveg
skelfilegt. Ég man sjálf að eftir að hafa
verið í afmælum hjá öðrum þar sem
þetta var gert og það var alltaf pínku
stressandi.“ n
Agalega afmælishefðinMerkisatburðir |
1866 Ísafjörður fær kaupstaðarréttindi.
1953 Neytendasamtökin stofnuð.
1965 Hindí gert að opinberu tungumáli Indlands.
1906 Verkamannafélagið Dagsbrún í
Reykjavík er stofnað.
1992 Boris Jeltsín lýsir yfir að Rúss-
land muni hætta að beina
kjarnavopnum á bandarískar
borgir.
1995 Eric Cantona, leikmaður
Manchester United, tekur
kung fu-spark í átt að Matt-
hew Simmons, stuðnings-
manni Crystal Palace.
2009 Geir H. Haarde slítur
stjórnarsamstarfi
við Samfylking-
una.
16 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 26. jAnúAR 2023
FImmtUDaGUR