Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Page 32

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1977, Page 32
30 Og Rúði lét kyssa sig, en auðséð var á andlitinu, að ekki var honum um það. Það var smávegis heimilisböl, sem hann varð að sætta sig við. ,,En hvað þú ert fallegur, Rúði,“ sagði sú gamla. „Vertu ekki að telja mér trú um það,“ svaraði Rúði hlæjandi; honum þótti þó hálfvænt um það. ,,Eg segi það aftur,“ mælti sú gamla, „hamingjan er með þér.“ „Já, það held eg þú segir satt, og því vil eg trúa,“ ansaði Rúði og hugsaði til Babettu. Aldrei hafði hann áður verið eins heimfús í dalinn sinn djúpa. „Nú hljóta þau að vera komin heim,“ sagði hann við sjálfan sig. „Það eru komnir tveir dagar yfir þann tíma, sem þau ætluðu að vera komin heim. Eg verð að bregða mér til Bex.“ Og Rúði kom til Bex, og mylnufyrirfólkið var heima. Var hon- um vel fagnað og kveðjur bornar frá skyldfólkinu í Interlaken. Babetta var fátöluð. Hún var orðin svo þegjandaleg, en augun töluðu, og það var Rúða nóg. Mylnumaðurinn var að jafnaði einn um að tala; hann var því vanastur, að menn hlógu að skrítlum og orðhnyttni hans, hins sterkríka mylnueiganda. En nú var eins og hann vildi heldur heyra Rúða tala og hlýða á frásagnir hans um veiðiæfintýri, vegarþrautir og mannhættur, sem gemsuveiðarar eiga í á háf jöllum, og hversu þar verður að krafla sig áfram eftir hinum ótryggu hengisköflum, sem veður og vindur hefir barið saman utan í fjallsbrúnina, eða þá um hinar glæfralegu snjó- brýr, sem skafbyljirnir hafa orpið saman yfir hyldýpis gjár og sprungur. Rúði var svo djarflegur ásýndum og ljómi stóð af augum hans, er hann sagði af veiðimannalífinu, viturleik gemsanna og stökk- fimi þeirra, aflsemi jökulvindanna og steypihruni snjóflóðanna; hann fann það fullgjörla, að með hverri nýrri lýsingu vann hann hylli mylnumannsins og það sem honum einkum geðjaðist að, var frásögnin um lambagammana og kóngsernina. Nú var arnarhreiður ekki ýkjalangs burtu í Wallis-kantónu; það var mjög svo ha glega bygt inn undir framslútandi f jallabrún; í því var ungi að sögn, og enginn vegur að ná honum. Orð lék á, að Englendingur hefði fyrir fáum dögum boðið Rúða fulla lúku
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.