Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 8
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 20228
Héraðsdóm-
stólar verða
sameinaðir
LANDIÐ: Jón Gunnars
son dómsmálaráðherra hefur
byrjað undirbúning að sam
einingu átta héraðsdómstóla í
einn héraðsdómstól. Forsenda
sameiningarinnar að mati ráð
herra er sú að héraðsdóm
stóllinn hafi áfram starfs
stöðvar á landsbyggðinni þar
sem núverandi dómstólar eru
staðsettir. Efla þurfi og styrkja
starfstöðvarnar með nýjum
verkefnum. Með einum hér
aðsdómstól, sem hefur aðsetur
á höfuðborgarsvæðinu, megi
ná fram einfaldari og skilvirk
ari stjórnsýslu og bættu eftir
liti. Störfum verði fjölgað á
starfsstöðvum á landsbyggð
inni og munu að lágmarki þrír
starfa á hverri starfsstöð, þar af
að minnsta kosti tveir héraðs
dómarar eða einn héraðsdóm
ari og einn dómarafulltrúi.
Skýrsla hópsins hefur verið
lögð fram í samráðsgátt stjórn
valda og gefst þar kostur á að
kynna sér efni hennar og koma
á framfæri athugasemdum eða
ábendingum. -mm
Fengu
eingreiðslu
fyrir helgi
LANDIÐ: Alls fengu 24.900
manns greiðslu sl. föstu
dag þegar Tryggingastofnun
afgreiddi eingreiðslu til
örorku og endurhæfingarlíf
eyrisþega. Alþingi samþykkti
frumvarp þess efnis síðast
liðinn miðvikudag. Ein
greiðsluna fá þeir sem eiga rétt
á greiðslu örorku eða endur
hæfingarlífeyris á árinu 2022
og er hún 60.300 kr. Hafi líf
eyrisþegi fengið greitt hluta
úr ári er eingreiðslan í hlut
falli við greiðsluréttindi við
komandi á árinu. Eingreiðslan
telst ekki til tekna lífeyrisþega
og leiðir ekki til skerðingar
annarra greiðslna. -mm
Skagakonur
héldu tónleika
AKRANES: Söngdætur
Akraness héldu vel heppnaða
jólatónleika í Tónbergi síð
astliðna helgi. Allir meðlimir
sönghópsins eru söngkonur
frá Akranesi en það eru þær
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir,
Rakel Pálsdóttir, Ylfa Flosa
dóttir, Rósa Guðrún Sveins
dóttir, Valgerður Jónsdóttir og
Hulda Gestsdóttir sem fram
komu ásamt Birgi Þórissyni
sem spilaði undir á píanó. -sþ
Ein opnun
í viðbót
AKRANES: Jólamarkaðurinn
á Akratorgi hefur verið opinn
nokkrar helgar á aðventunni
en má þar finna ýmis hand
verk, bækur og eitthvað matar
kyns til sölu. Næst mun mark
aðurinn vera opinn á Þor
láksmessu kl.1322 og mun
það verða síðasta skipti sem
færi gefst til að kíkja á markað
inn á þessu ári. -sþ
Aflatölur fyrir
Vesturland
10. – 16. desember
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 621.833 kg.
Mestur afli: Hákon EA:
591.751 kg í einni löndun.
Arnarstapi: 4 bátar
Heildarlöndun: 109.376 kg.
Mestur afli: Særif SH:
41.208 kg í tveimur löndunum.
Grundarfjörður: 7 bátar.
Heildarlöndun: 555.220 kg.
Mestur afli: Kaldbakur EA:
211.228 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 11 bátar.
Heildarlöndun: 213.599 kg.
Mestur afli: Egill SH:
49.121 kg í þremur róðrum.
Rif: 13 bátar.
Heildarlöndun: 527.123 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
115.154 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 7 bátar.
Heildarlöndun: 26.670 kg.
Mestur afli: Bára SH:
8.956 kg í fimm löndunum.
Topp 5 landanir
1. Hákon EA – AKR:
591.751 kg. 13. desember.
2. Kaldbakur EA – GRU:
211.228 kg. 11. desember.
3. Örvar SH – RIF:
115.154 kg. 13. desember.
4. Tjaldur SH – RIF:
113.856 kg. 11. desember.
5. Rifsnes SH – RIF:
106.129 kg. 11. desember.
-sþ
Um liðna helgi voru öll tiltæk snjó
ruðningstæki við vinnu í Grundar
firði sem og annarsstaðar á Snæ
fellsnesi. Snjó hafði kyngt niður
víða um land og strax á laugar
dagsmorgun var færð farin að spill
ast innanbæjar. Þegar myrkrið var
farið að dvína mátti sjá allskonar
tæki og tól brúkuð til að fólk kæm
ist leiðar sinnar. Hvort sem um var
að ræða stórvirkar vinnuvélar eða
fólk að handmoka tröppur og gang
stíga hjá sér.
tfk
Lokapunktur á haustönn Bridge
félags Borgarfjarðar er jafnan Jóla
sveinatvímenningur á föstudegi í
aðdraganda jóla. Þá draga spilarar
spil úr stokknum og mynda þannig
pör. Síðastliðinn föstudag var spilað
á sjö borðum. Úrslit urðu þau að
Skagamaðurinn Viktor Björns
son ásamt Kristjáni Hallgrímssyni
úr Borgarnesi báru sigur úr býtum
með talsverðum yfirburðum, eða
62,92% skori. Í öðru sæti urðu
Sveinbjörn Eyjólfsson og Magnús
Magnússon með 57,08% og þriðju
urðu Logi Sigurðsson og Sveinn
Hallgrímsson með 56,25%.
Stefnt er að Vesturlandsmóti í
sveitakeppni laugardaginn 7. janúar
á Akranesi en spilamennska í Loga
landi hefst að nýju mánudaginn 9.
janúar.
mm
Svo virðist sem mest hafi snjóað á
Suðurnesjunum í lægðagangi sem
gekk yfir landið frá föstudegi og
fram yfir helgi með tilheyrandi
truflun á samgöngum. Mjög miklar
annir hafa verið hjá björgunar
sveitum suður með sjó. Á sunnu
dagsmorgun var kallaður út viðbót
armannskapur m.a. frá Björgunar
félagi Akraness til aðstoðar við að
leysa úr fjölda verkefna sem safnast
höfðu upp og heimamenn ekki náð
að leysa úr sökum anna.
Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík stóð til dæmis í ströngu
frá því á föstudagskvöldið, ásamt
m.a. Lögreglunni á Suðurnesjum
og Vegagerðinni, við að létta á
umferð og gera Grindavíkurveg
færan. Þar var mikill snjór og koma
þurfti fjölda ökumanna til aðstoðar.
Fjöldahjálparstöð var opnuð í
Grindavík. Mörg hundruð gestir
voru auk þess strandaglópar í Bláa
lóninu og/eða á leið þaðan. Flug
raskaðist um helgina og lá niðri í
gær, mánudag.
mm
Tónlistarmaðurinn Draugr er
huldumaður á Vesturlandi sem
byrjaður er að gefa út tónlist.
Í samtali við Skessuhorn segir
Draugr ástæðu nafnleyndarinnar
vera þá að tónlistin eigi ekki að
snúast um einstaklinginn heldur
tónlistina sjálfa.
,,Einkenni minnar tónlistar er
drungalegur hljómur sem leynist í
lögunum ásamt því að ég bæti við
léttum og björtum tónum til að
jafna aðeins út þungann og drunga
legan hljómheiminn. Fyrir mér
skiptir tónlistin svakalega miklu
máli, sama hvernig tónlistarstefnan
er. Þó svo ég fylgi elektrónískri tón
listarstefnu þá vil ég vekja athygli á
að hvernig sem tónlistin er þá eru
alltaf miklar pælingar á bak við
hverja einustu nótu og hvert ein
asta hljóð,“ segir Draugr í samtali
við Skessuhorn. Hann hefur nú
þegar gefið út eina smáskífu sem
ber heitið RIG.
Fimmtudaginn 15. desem
ber kemur nýtt lag sem ber heitið
Jötunn, laugardaginn 31. desember
eru svo tvö tónverk væntanleg úr
smiðju Draugs; Vision og Impact.
sþ
Gríðarlegt fannfergi víða
Eyþór Garðarsson blæs burtu snjónum við heimilið sitt í Grundarfirði.
Hér er verið að hreinsa hafnarsvæðið
enda mikilvægt að flutningabílar og
lyftarar komist leiðar sinnar.
Sendir til aðstoðar á Suðurnesjum
Jólasveinar briddsfélagsins
Viktor Björnsson og Kristján Hall-
grímsson með gullsleginn verðlauna-
skjöld að launum.
Tónlistarmaðurinn Draugr
á sveimi um Vesturland