Skessuhorn - 20.12.2022, Síða 20
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202220
Gaman saman
um áramótin
Fjölskyldan saman
18 ár a ábyrgð
Sveitarstjórn Dalabyggðar skorar
á matvælaráðherra að virða það
samkomulag sem gert var við undir
ritun búvörusamninga í febrúar
2016 og fresta fyrirhugaðri niður
tröppun greiðslumarks hjá sauðfjár
bændum til 1. janúar 2024. Sveitar
stjórnin segir markmið samningsins
um aukna verðmætasköpun greinar
innar alls ekki hafa gengið eftir en
það hafi verið megin forsenda niður
tröppunar samkvæmt samkomulagi.
„Árið 2021 voru rúmlega 24.000
vetrarfóðraðar kindur í Dalabyggð
en í skýrslu Byggðastofnunar sem
unnin var fyrir Innviðaráðuneytið
fyrr á þessu ár kemur fram að sauð
fjárrækt sé hlutfallslega mikilvægust
á landinu í Dalabyggð en 5,3 sauð
fjárbú (>300 kindur) eru á hverja
100 íbúa sveitarfélagins. 70% skóla
barna í grunnskóladeild Auðarskóla
koma úr dreifbýlinu utan Búðardals.
Flest börnin úr dreifbýli koma frá
heimilum þar sem sauðfjárrækt er
undirstaða í atvinnutekjum heimilis.
Nokkur endurnýjun hefur verið á
sauðfjárbúum í sveitarfélaginu upp á
síðkastið og hafa ábúendur fjárfest
í greiðslumarki sem nú á að trappa
niður þannig að hluti ríkisstuðnings
mun flytja úr Dalabyggð í önnur
sveitarfélög þar sem atvinnugreinin
er minna mikilvæg en í Dalabyggð.
Samkvæmt skýrslum um rekstur
sauðfjárbúa undanfarin ár hefur
greiðslumark mikil áhrif á rekstrar
hæfni þeirra. Best reknu búin hafa
meiri afurðir eftir hverja kind sem
leiðir til lægra kolefnisspors á dilka
kjötsframleiðsluna. Að draga úr
vægi greiðslumarks sauðfjárbænda
gengur því gegn markmiðum ríkis
stjórnarinnar um kolefnishlutleysi
ásamt því að ganga gegn markmiði
búvörulaga nr. 99/1993 um að kjör
þeirra sem landbúnað stunda verði
í sem nánustu samræmi við kjör
annarra stétta,“ segir í bókun frá
sveitastjórnarfundi Dalabyggðar í
gær, 15. desember.
Sveitarstjórn Dalabyggðar ítrekar
hvatningu til ráðherra og vonar að
matvælaráðherra taki áskoruninni
vel og gefi sauðfjárbændum tækifæri
til að kynna aðstæður og forsendur
í sínum rekstri þegar að fyrirhug
aðri heimsókn ráðherrans í Dalina
verður á nýju ári. Þá segir sveitar
stjórn samtal um málefni sauðfjár
ræktar á forsendum möguleika til
aukinnar verðmætasköpunar verða
að vera og sé það von Dalamanna að
ráðherrann komi vel undirbúinn til
viðræðna um málefni landbúnaðar
ins þegar heimsókn hans í Dala
byggð verður að veruleika. gbþ
Slysavarnadeildin Líf kom færandi
hendi á jólahátíð Fjöliðjunnar sem
haldin var föstudaginn 16. desem
ber. Þar var starfsfólk Fjöliðjunnar
samankomið til að borða saman
góðan mat og eiga notalega stund,
syngja saman og dansa. Slysavarna
deildin færði Fjöliðjunni tvö hjarta
stuðtæki að gjöf, þó með von um að
aldrei þyrfti að nota þau. Tækin
eru tvö vegna þess að starfsemi
Fjöliðjunnar er á tveimur stöðum.
Þetta eru fimmta og sjötta hjarta
stuðtækið sem Slysavarnadeildin
gefur. Fyrsta tækið var gefið Jóns
búð sem er veislusalur Slysavarna
deildarinnar Lífar. Svo hafa tæki
verið gefin í Safnaðarheimilið
Vinaminni, Brekkubæjarskóla og
Grundaskóla.
Slysavarnadeildin Líf stendur
fyrir leiðisgreina og krossasölu í
desember ár hvert að Háholti 22
á Akranesi og allur ágóði af þeirri
sölu rennur til góðgerðarmálefna,
líkt og þetta. Einnig er deildin
með kaffisölu á Sjómannadaginn
og gerir umferðaröryggiskannanir
fyrir Samgöngustofu.
gbþ
Fjöliðjan fékk tvö hjartastuðtæki að gjöf
Frá vinstri: Hallfríður Jóna Jónsdóttir, Barbara G. Davis, Kristín Ármannsdóttir, Valgerður Guðbjörnsdóttir. Heiðrún Her-
mannsdóttir og Guðrún Þórðardóttir tóku við gjöfunum fyrir hönd Fjöliðjunnar.
Allir voru leystir út með endurskinsmerkjum.
Hallfríður Jóna sýnir hér hjartastuðtæki.
Áskorun til matvælaráðherra
frá sveitarstjórn Dalabyggðar
5,3 sauðfjárbú (>300 kindur) eru á hverja 100 íbúa í Dalabyggð. Ljósm. úr safni