Skessuhorn - 20.12.2022, Qupperneq 34
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202234
Hafði hún fundist í fyrsta sinn í íslenskri kind. Þetta var stór
merkur fundur, því hér var um að ræða arfgerð sem er alþjóð
lega viðurkennd sem verndandi og unnið hefur verið með í
löndum Evrópusambandsins við útrýmingu riðu með góðum
árangri.
Jörð skalf í uppsveitum
Í janúar urðu hundruðir jarðskjálfta á afmörkuðu svæði á Þór
eyjartungum í ofanverðum Borgarfirði. Áttu þeir allir upp
tök sín á fjalllendinu ofan við Flókadal og Lundarreykjadal
en næstu bæir við upptökin voru í um níu kílómetra fjarlægð.
Á þessum bæjum fann fólk vel fyrir skjálftunum og húsdýr
urðu óróleg. Að sögn Einars Bessa Gestssonar, náttúruvár
sérfræðings á Veðurstofu Íslands, voru þetta svokallaðir inn
flekaskjálftar því þeir urðu utan flekaskila og flekamóta og
ekki inni á eldvirku svæði. Líklega væru þeir vegna spennu
breytinga svipað og þegar Borgarfjarðarskjálftinn varð árið
1974, en hann átti upptök sín í Síðufjalli í Hvítársíðu.
Fékk net í hliðarskrúfuna
Netabáturinn Brynjólfur VE kom til hafnar í Ólafsvík í lok
janúar til að fá kafara til þess að skera net úr hliðarskrúfu báts
ins. Skipsverjar voru rétt að byrja að draga netin um morgun
inn í sínum fyrsta túr á Breiðarfirðinum og voru aðeins búnir
að draga fjögur net þegar þeir fengu í hliðarskrúfuna. Þeir
gátu siglt til Ólafsvíkur þar sem Víðir Haraldsson kafari skar
úr skrúfu bátsins.
Arion banki lokaði í Búðardal
Í febrúarmánuði var viðskiptavinum Arion banka tilkynnt um
væntanlega lokun bankaútibúsins þar og sameinaðist það úti
búi bankans í Borgarnesi í lok mars. Tilkynningunni fylgdi að
starfsfólk útibúsins yrði áfram hluti af teymi bankans á Vestur
landi. Fram að lokun var útibúið opið átta tíma á viku, sem
skiptist á tvo daga. Í frétt Skessuhorns var hins vegar tekið
fram að grundvöllur þess að geta átt bankaviðskipti yfir netið
væri gott netsamband, en því var á þeim tíma ekki að heilsa
í Dölum. Sveitarstjórn Dalabyggðar fordæmdi lokun útibús
ins. Rifjað var m.a. upp að forsvarsmenn bankans hefðu full
yrt við síðustu breytingar á starfsemi útibúsins að ekki stæði
til að loka útibúinu.
Sameiningu hafnað
á Snæfellsnesi
Laugardaginn 19. febrúar gengu íbúar tveggja sveitarfélaga
á Snæfellsnesi til kosninga um sameiningu þeirra, þ.e. Snæ
fellsbæjar og Eyja og Miklaholtshrepps. Töluverðrar eftir
væntingar gætti um niðurstöðuna. Voru úrslit talningar birt
í hvoru sveitarfélagi fyrir sig og á vef Skessuhorns síðar á
laugardagskvöldið. Kom þá í ljós að sameiningin hafði verið
naumlega samþykkt í Snæfellsbæ en kolfelld í Eyja og
Miklaholtshreppi. Það varð því ekki af sameiningu þessara
tveggja sveitarfélaga.
Aflétting allra takmarkana
vegna heimsfaraldurs
Í lok febrúar ákvað Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
að öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum vegna heimsfar
aldurs Covid19 skyldi aflétt, jafnt innanlands og á landa
mærunum. Þar með féllu brott allar reglur um takmarkanir
á samkomum og skólahaldi og einnig krafa um einangrun
þeirra sem sýktust af Covid19. „Við getum sannarlega glaðst
á þessum tímamótum en ég hvet fólk engu að síður til að fara
varlega, gæta að persónubundnum sóttvörnum og halda sig
til hlés finni það fyrir einkennum,“ sagði heilbrigðisráðherra.
Fæddist 22.02.2022
kukkan 02:22
Dóttir Idu Maríu Brynjars
dóttur og Eysteins Arnar
Stefánssonar úr Borgarfirði
kom í heiminn á Heilbrigðis
stofnun Vesturlands á Akra
nesi þriðjudaginn 22.02.2022
klukkan 02:22. Verður þetta
að teljast nokkuð ótrúleg til
viljun. Aðspurð sagðist Ida
María ekki hafa verið að
hugsa sérstaklega út í þessa
tímasetningu fyrir eða í sjálfri
fæðingunni. „Ég var annað
að hugsa og ekkert að pæla í þessu. En þetta er samt mjög
gaman,“ sagði hún í samtali við Skessuhorn. Þetta var önnur
dóttir þeirra Idu Maríu og Eysteins en Ylfa Lísa, eldri dóttir
þeirra, fæddist 17. febrúar 2019.
Vegir voru víða illa farnir
Í marsmánuði kom í ljós að þjóðvegir, sem og götur í þétt
býli, væru víða illa farnir eftir tíðarfarið um veturinn. Veg
farendur könnuðust við slitlagsskemmdir og jafnvel djúpar
og varasamar holur sem víða höfðu myndast í leysingunum.
Starfsmenn Vegagerðarinnar voru því í önnum við viðgerðir.
Töluvert var af holum sem fylla þurfti í ásamt því að lagfæra
eða skipta um stikur sem farið höfðu úr skorðum vegna veð
urs eða snjóruðnings.
Raflínustrengur slitnaði ítrekað
Rafmagnsleysis varð vart sunnan Búðardals laugardagskvöldið
4. mars og fram eftir aðfararnótt sunnudags. Vakti það nokkra
undrun, þar sem veðrið var venju fremur gott og engar til
kynningar höfðu borist um truflanir. Eftir miklar prófanir og
inn og útslátt rafmagns kom í ljós að bilunin var á Skógar
strönd. Starfsmenn Rarik gengu með línunni til að finna
bilunina, en strengurinn sem rofnað hafði var það lélegur að
hann slitnaði ítrekað og kalla varð eftir liðsauka og nýjum
streng úr Búðardal. Rafmagnslaust var því á Skógarströnd í á
fjórtándu klukkustund og var farið að kólna í húsum. Þessar
bilanir voru þær síðustu í langri röð bilana og orsökuðust af
samspili gamalla raflína og slæmri tíð.
Víðtæk leit að ferðamanni
á hálendinu
Á þriðja hundrað björgunarveitarmenn, þar á meðal frá
Vestur landi, tóku þátt í leit að ferðamanni að Fjallabaki
14. mars. Mikill snjór var á hálendinu og víða krapi og því
aðstæður erfiðar. Kallaðar voru út sveitir frá Suðurlandi, Suð
vesturlandi og Vesturlandi með snjóbíla, breytta jeppa, vél
sleða og leitarhunda. Í neyðarboðunum barst ónákvæm stað
setning og því var leitarsvæðið í upphafi nokkuð stórt. Hátt
í tvö hundruð leitarmenn voru komnir á vettvang þegar
maður inn fannst klukkan 23:40 um 4,5 kílómetra frá upphaf
legri staðsetningu. Hann var heill á húfi en kaldur og blautur.
Voru síðustu björgunarmenn komnir til síns heima klukkan
fimm um nóttina.
Altjón þegar verkstæðishús
brann í Grundarfirði
Á sjöunda tímanum þriðjudagskvöldið 9. mars var Slökkvilið
Grundarfjarðar kallað út vegna elds í atvinnuhúsnæði við Sól
velli 5 í Grundarfirði. Fljótlega var ljóst að um stórbruna væri
að ræða og var kallað eftir liðsauka frá Slökkviliði Snæfells
bæjar. Í húsinu voru þrjú fyrirtæki starfrækt. Húsið var mann
laust þegar eldurinn gaus upp og var fólk því ekki í hættu.
Vindátt var hagstæð að því leyti að vindur stóð af atvinnuhús
næði Ragnars og Ásgeirs ehf. sem er skammt frá húsinu sem
brann. Slökkvistarfi lauk á tíunda tímanum um kvöldið og var
ljóst að um altjón var að ræða á húsinu og því sem í því var.
Fyrsta skóflustungan tekin
á Sementsreitnum
Í mars hafði Akraneskaupstaður formlega gengið frá samn
ingum við fyrirtækið Fastefli ehf., sem er í eigu Skagamanns
ins Óla Vals Steindórssonar, um byggingarétt á uppbyggingar
reit C og D á Sementsreitnum svokallaða. Fastefli ehf. hafi
verið með hagstæðasta tilboðið og lagði fram fullnægjandi
gögn. Var skóflustunga á reitnum tekin 19. mars af Óla Val og
Fréttaannáll ársins 2022 í máli og myndum