Skessuhorn - 20.12.2022, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202236
Fréttaannáll ársins 2022 í máli og myndum
fulltrúum Akraneskaupstaðar. Að því loknu upplýsti Óli Valur
að til stæði að byggja upp græna íbúðabyggð með sérbýli í
fjölbýli og með sameiginlegum grænum svæðum. Á svæð
inu á að byggja 100 íbúðir af nokkrum stærðum og gerðum.
Bílakjallarar verða hálfir undir húsum á reitunum en skilja á
eftir jarðveg fyrir miðju til að auka möguleika á betri gróður
svæðum í garðinum.
Stykkishólmsbær og
Helgafellssveit sameinast
Laugardaginn 26. mars gengu íbúar í Stykkishólmsbæ og
Helgafellssveit á Snæfellsnesi til kosninga þar sem þeir sam
þykktu sameiningu sveitarfélaganna með afgerandi kosningu.
Í Helgafellssveit voru 56 á kjörskrá og kusu 52. Já sögðu 41,
nei sögðu níu og auðir seðlar og ógildir voru tveir. Kjörsókn
var 93%. Í Stykkishólmsbæ voru 837 á kjörskrá og kusu 460.
Já sögðu 422, nei sögðu 34 og auðir seðlar voru fjórir. Kjör
sókn var 55%. Við þetta varð til tæplega 1300 manna sveitar
félag, blanda dreifbýlis og þéttbýli þar sem sjávarútvegur,
landbúnaður, ferðaþjónusta og ýmis önnur þjónusta eru
helstu atvinnugreinarnar sem stundaðar eru. Kosið var í hinu
nýja sveitarfélagi 14. maí.
Nýsköpunar- og
frumkvöðlasetur í Búðardal
Nýsköpunar og frumkvöðlasetur Dalabyggðar var opnað
í Búðardal í lok mars. Byrjað var að leggja drög að stofnun
seturs ins árið 2020 og var það ætlað frumkvöðlum,
námsmönnum eða öðru hugmyndaríku fólki sem gæti notað
þar vinnuaðstöðu. „Markmið setursins er að efla atvinnulíf í
Dalabyggð með sérstaka áherslu á nýsköpun og frumkvöðla
starf ásamt því að skapa samfélag fyrir fyrirtæki og einstak
linga sem eru að vinna að hugmyndum sínum og vilja full
móta þær, sem og fyrir þá sem vilja skapa sér sín eigin atvinnu
tækifæri,“ sagði á vef Dalabyggðar.
Sjö Íslandsmeistaratitlar í hús
Helgina 26.27. mars fór fram Íslandsmót unglinga í badmin
ton í húsum Tennis og Badmintonfélags Reykjavíkur. Bad
mintonfélag Akraness sendi alls tólf keppendur á mótið og
vann ÍA sjö Íslandsmeistaratitla og einn sigurvegara í U11 B.
Máni Berg Ellertsson varð þrefaldur Íslandsmeistari U15. Í
U11 A varð Guðrún Margrét Halldórsdóttir tvöfaldur Íslands
meistari í tvíliða og tvenndarleik og í öðru sæti í einliðaleik.
Davíð Logi Atlason varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik U11 og í
öðru sæti í einliða og tvenndarleik. Arnar Freyr Fannarsson
varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik U15. Andri Viðar Arnarsson
sigraði í einliðaleik U11 B og Tinna María Sindradóttir varð í
öðru sæti í einliðaleik U11 B.
Fundu hvalbein í
fjörunni við Búðardal
Bræðurnir Aron Ívar og Almar Þór Baldursynir fundu hval
bein í fjörunni í Búðardal í apríl. Þar voru þeir í heimsókn hjá
ömmu sinni og afa, en sjálfir áttu þeir heima í Borgarnesi. Þeir
hafa mjög gaman af að safna steinum og að finna bein er alltaf
sérstakur bónus. Þeir duttu heldur betur í lukkupottinn þegar
þeir fundu þetta stærðar bein sem mönnum þykir nokkuð víst
að sé úr hval. Þeir roguðust með þetta heim til ömmu og afa,
mjög spenntir að fá að vita hvort beinið væri úr hákarli eda
hval, nú eða risaeðlu. Fundurinn var talsvert merkilegur þar
sem fisk eða hvalgengd í Hvammsfirði er ekki algeng eða
mikil. Það þótti t.a.m. merkilegt þegar háhyrningar sáust inni
á firðinum um tíu árum áður.
Hurð flutningabíls opnaðist
og fiskur fór niður
Borgarnes er ekki þekkt fyrir mikla útgerð né fiskvinnslu,
en engu að síður er bæjarfélagið líklega sá staður landsins
þar sem mestir fiskflutningar fara í gegn. Í byrjun apríl varð
það óhapp að hurð á flutningabíl opnaðist í beygju á milli
N1 og Hyrnutorgs í Borgarnesi með þeim afleiðingum að
nokkur fiskkör runnu af bílnum. Sem betur fer var enginn
á ferðinni á gangstéttinni þegar óhappið átti sér stað.
Nýr bíll til Slökkviliðs
Borgarbyggðar
Slökkvilið Borgarbyggðar festi
á útmánuðum kaup á nýjum
bíl í flotann, Bens Sprinter
árgerð 2015. Að sögn Bjarna
Kr Þorsteinssonar slökkvi
liðsstjóra var bíllinn hugs
aður bæði sem tækjabíll og
til flutnings á mannskap og yrði staðsettur á slökkvistöð
inni í Reykholti. Í honum er m.a. búnaður á rennibrautum
til reykköfunar auk klippibúnaðar, en einnig er þar hafður til
taks fatnaður og búnaður þeirra slökkviliðsmanna sem hafa
aðsetur í Reykholti. Geta þeir því eftir atvikum farið beint
á vettvang útkalls en búnaður þeirra verður í bílnum og
honum ekið af þeim sem býr næst slökkvistöðinni. Kostn
aður við bílinn var að sögn Bjarna um tólf milljónir króna.
Grunnskóli Snæfellsbæjar
farsímalaus
Frá og með fyrsta degi aprílmánaðar
varð Grunnskóli Snæfellsbæjar farsíma
laus. Skólinn óskaði eftir góðu sam
starfi við foreldra um að símar nem
enda verði framvegis geymdir heima.
„Við kynntum þessa hugmynd strax í
haust en vegna Covid fannst okkur ekki ráðlegt að fara í þetta
bann fyrr en nú,“ sagði Hilmar Már Arason skólastjóri í sam
tali við Skessuhorn. „Í haust fengum við hugmyndir frá nem
endum um hvernig mætti bæta aðstöðu nemenda í frímín
útum. Í framhaldinu af þeirri umræðu voru keyptir nýir sófar,
töflum komið fyrir á göngum skólans, spilum var fjölgað og
nemendur gátu farið í valda leiki í íþróttahúsinu. Við munum
halda áfram að hlusta eftir óskum nemenda og reyna að verða
við þeim,“ sagði Hilmar Már.
Guðríði og Snorra stolið
Fimmtudag 7. apríl uppgötvaðist að búið var að stela af
stalli sínum bronsstyttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur,
sem stóð á Laugarbrekku á Hellnum. Styttan er afsteypa
af verki Ásmundar Sveinssonar af Guðríði og syni hennar,
Snorra Þorfinnssyni. Guðríður Þorbjarnardóttir var uppi um
árið 1000 og talin ein víðförlasta kona sinna tíma. „Þetta er
ómerkilegur þjófnaður,“ sagði Kristinn Jónasson bæjarstjóri
í Snæfellsbæ í samtali við Skessuhorn, sleginn yfir stuldinum.
Styttan kom svo í leitirnar fyrir utan Nýlistsafnið í Reykjavík.
Í ljós kom að tvær listakonur höfðu tekið hana ófrjálsri hendi
og gert að hluta eigin listaverks, einhvers konar geimflaugar.
Styttunni var náð út úr flauginni á Akranesi og Kristinn sótti
hana þangað sjálfur og sá til þess að hún yrði sett á sinn stað.
Þjófnaður inn var kærður til lögreglunnar.
Skæð fuglaflensuveira
fannst í haferni
Í byrjun apríl barst Matvælastofnun tilkynning um að skæðar
fuglaflensuveirur hefðu fundist í íslenskum haferni sem drapst
í október 2021. Þetta var í fyrsta skipti sem slíkar veirur fund
ust hér á landi. „Þetta rennir stoðum undir það mat sér
fræðinga að miklar líkur séu á að alvarleg afbrigði fuglaflensu
veira berist með farfuglum hingað til lands. Það er því brýnt
að alifuglaeigendur gæti sérstaklega vel að sóttvörnum sem
lúta að því að koma í veg fyrir smit úr villtum fuglum. Jafn
framt er mikilvægt að allir sem finna dauða villta fugla til
kynni Matvælastofnun um þá,“ sagði í tilkynningu frá MAST.
Lýsi dreifðist yfir Neðri
Skagann
Mánudaginn 18. apríl urðu
íbúar á Neðri Skaganum á
Akranesi varir við fituskelli á
húsum sínum og einnig á bílum
og götum. Síðar um daginn
kom í ljós að sökudólgur
inn var lýsistankur á bak við gamla Heimaskaga sem hafði
dreift þó nokkru af lýsi yfir nágrennið og virðist hafa náð
alla leið upp á Vitateig og þar í kring. Óhappið varð þegar
verið var að hita upp lýsið fyrir útskipun og hringiða mynd
aðist í gegnum dælustútinn ofan í tankinn. Lýsi frussað
ist því út og vindáttin hjálpaði til að þetta fór víða. Mann
skapur var fenginn til hreinsunarstarfs á vegum Brims.
Forsætisráðherra afhjúpaði
söguskilti við Leirá
Á sumardaginn fyrsta bauð Hvalfjarðarsveit til samkomu á
Leirá í Leirársveit þar sem söguskilti um staðinn var afhjúpað.
Blíðskaparveður setti svip á samkomuna og dreif að fjölda
fólks. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri bauð gesti velkomna
og sagði að söguskiltið á Leirá væri þriðja af a.m.k. tíu sögu
skiltum sem sett verða upp í sveitarfélaginu. Þar koma fram
upplýsingar um sögu Leirárkirkju og prentsmiðjuna á Leirár
görðum og á Beitistöðum. Einnig er sagt frá Magnúsi Steph