Skessuhorn - 20.12.2022, Page 38
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202238
Fréttaannáll ársins 2022 í máli og myndum
ensen og Jóni Thoroddsen sem báðir bjuggu á Leirá. Það
var Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem afhjúpaði sögu
skiltið, en hún er afkomandi Jóns Thoroddsen. Nú í haust var
fjórða skiltið svo afhjúpað við Miðsand í Hvalfirði. Það gerði
Gísli Einarsson sem ættir sínar á að rekja til bæjarins.
Ungur Borgnesingur komst
áfram í tónlistarkeppni
Í apríl komst ungur Borgnesingur áfram í tónlistarkeppni
Upptakts, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna sem
haldin er í samstarfi Hörpunnar, Barnamenningarhátíðar,
RÚV og Listaháskóla Íslands. Þar fær ungt fólk tækifæri til að
senda tónsmíðar eða drög að þeim inn og vinna markvisst úr
hugmyndum sínum með fulltingi listnemenda og listamanna.
Meðal þeirra sem náðu áfram var fimmtán ára piltur úr Borgar
nesi, Ágúst Davíð Steinarsson. Hann sendi til keppninnar lag
sem hann nefnir Vals í Cmoll. Hann var fyrsti nemandi Tón
listarskóla Borgarfjarðar sem nær þetta langt í keppninni.
Sælureitur í Árbliki
Sveitarfélagið Dalabyggð
lét taka út nýtingu félags
heimila í héraðinu árið
2021 og í kjölfarið bauð
það félagsheimilið Árblik
til leigu. Tvær röskar
konur í Miðdölunum tóku
húsið að sér og hafa rekið
þar tjaldsvæði og kaffihús,
auk þess sem húsið hefur
áfram verið til útleigu vegna viðburða. Það eru þær Guðrún
Esther Jónsdóttir í Miðskógi og Sigurdís E. L. Sigursteins
dóttir í Neðri Hundadal sem tóku að sér reksturinn. Opnuðu
þær með pompi og prakt á sumardaginn fyrsta undir heitinu
Sælureitur. Tjaldsvæðið við Árblik hefur meðal annars boðið
aðstöðu til að losa affall af húsbílum, eldunaraðstöðu, sturtur,
salerni og rafmagn, auk útsýnisins út Hvammsfjörðinn. Því er
nafngiftin Sælureitur nokkuð lýsandi.
Áttatíu flóttamenn á Bifröst
Í apríllok höfðu um 80 flóttamenn frá Úkraínu komið sér fyrir
á Bifröst í samstarfi Borgarbyggðar og ríkisins. Um bráða
birgðahúsnæði var að ræða meðan verið var að greiða götu
fólksins varðandi framtíðar búsetu eða aðra valkosti. Það var
Heiðrún Helga Bjarnadóttir sem var verkefnastýra fyrir mót
töku flóttafólksins fyrir hönd sveitarfélagsins. Sagði hún í við
tali við Skessuhorn að í hópnum væru aðallega konur með börn
og eitthvað af eldra fólki auk einstaklinga. Heiðrún Helga sinnti
verkefnastjórn vegna komu flóttamanna á Bifröst fram eftir
árinu en 1. október tók hún við prestsembætti á Borg á Mýrum.
Aðalskipulagsbreyting
vegna vindorkuvera
Í byrjun maí var tilkynnt að Sigurður Ingi Jóhannsson inn
viðaráðherra hefði ákveðið að synja aðalskipulagsbreytingum
í Reykhólahreppi og Dalabyggð um staðfestingu, en bæði
þessi sveitarfélög samþykktu á síðasta ári breytingar á aðal
skipulagi vegna þriggja vindorkuvera. Voru þau fyrirhuguð
í landi Garpsdals í Reykhólahreppi og jarðanna Hróðn
ýjarstaða og Sólheima í Dölum. Um er að ræða stefnu um
iðnaðar svæði þar sem áformað hefur verið að reisa vindmyllur
til raforkuframleiðslu. Skipulagsstofnun hafði við vinnslu og
afgreiðslu skipulagstillagnanna ítrekað bent sveitarfélögunum
á tiltekin atriði sem bæta þyrfti úr, til að unnt væri að staðfesta
aðalskipulagsbreytingarnar, sem sveitarfélögin féllust ekki á.
Starfsmenntanám í garðyrkju
Eftir deilur um stöðu og umgjörð garðyrkjunáms á milli yfir
stjórnar á Hvanneyri og atvinnulífs garðyrkjunnar ákvað
menntamálaráðherra á Þorláksmessu 2020 að flytja námið til
Fjölbrautaskóla Suðurlands. Í maíbyrjun var svo skrifað undir
samkomulag þriggja ráðuneyta um námið. Í samkomulaginu,
sem mennta og barnamálaráðherra og háskóla, iðnaðar
og nýsköpunarráðherra kynntu kom fram að Fjölbrautaskóli
Suðurlands myndi bjóða öllu starfsfólki Landbúnaðarháskóla
Íslands sem sinnt hafði störfum á starfsstöð garðyrkjunámsins
á Reykjum ráðningu frá 1. ágúst.
Nýr samningur ÍA og
Akraneskaupstaðar
Í maí var undirritaður nýr samningur um rekstur og samskipti
Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness. Mark
mið hans var að viðhalda öflugu samstarfi kaupstaðarins og
ÍA. Eins og áður var áhersla lögð á forvarna og uppeldisgildi
íþrótta og virka samvinnu íþróttahreyfingarinnar við skól
ana og almenning. Í samningnum kom fram að Akraneskaup
staður myndi styrkja rekstur ÍA um 15 milljónir króna og
aðildarfélög innan félagsins um 45 milljónir króna.
Sauðburður í hámarki
Í maí var sauðburður í hámarki víða í sveitum landsins.
Steinunn Þorvaldsdóttir blaðamaður tók sannkallaða vormynd
í fjárhúsunum í Bakkakoti í Stafholtstungum af ungu lambi
sem komið var með merkið sitt, kind og lamb litamerkt til að
auðvelda bændum störfin, og tilbúin að fara út í græna grasið.
Löng bið eftir læknistíma
Um miðjan maí birtist frétt í Skessuhorni um erfiðleika við
að manna lausar stöður heilsugæslulækna á starfssvæði Heil
brigðisstofnunar Vesturlands, meðal annars í Borgarnesi.
Hafði Þórir Bergmundsson framkvæmdastjóri lækninga lagt
mikla vinnu í að manna lausar stöður, en það gekk erfiðlega.
Íbúar á starfssvæði HVE í Borgarnesi og á Akranesi höfðu
kvartað yfir langri bið eftir læknistíma og var eins mánaðar
bið í Borgarnesi og nokkrar vikur á Akranesi. Úr þessu leystist
nokkuð síðar þegar tveir læknar af höfuborgarsvæðinu fluttu
búferlum í Borgarnes og réðu sig í stöður þar. Síðla árs kom
hins vegar upp vandi í Ólafsvík og var þar læknislaust í á þriðju
viku. Læknir er væntanlegur til búsetu í Ólafsvík á nýju ári.
Fimleikahúsið við
Vesturgötu vígt
Föstudaginn 6. maí fór fram formleg vígsla á nýju fimleikahúsi
við Vesturgötu á Akranesi. Langur aðdragandi hafði verið að
ákvörðun um byggingu hússins eða allt frá árinu 2010 þegar
starfshópur skipaður af bæjarráði Akraness skilaði af sér skýr
slu þar sem mat var lagt á aðstöðu íþrótta í eigu Akraneskaup
staðar og mati á aðstöðu félaga innan ÍA. Niðurstaðan var í
stuttu máli að efst á lista væri bygging fimleikahúss.
Byggðasafnið í Görðum
hlaut tilnefningu
Í maí var tilkynnt hvaða söfn voru tilnefnd til íslensku safna
verðlaunanna 2022 og var Byggðasafnið í Görðum á Akranesi
eitt þeirra. Íslandsdeild alþjóðaráðs safna og Félag íslenskra
safna og safnmanna standa saman að íslensku safnaverð
laununum, sem er viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku
safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Fimm söfn voru tilnefnd
og verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Alþjóðlega
safnadaginn 18. maí. Þau hlotnuðust Minjasafninu á Akureyri.
Úrslit úr
sveitarstjórnarkosningunum
Laugardaginn 14. maí gengu landsmenn að kjörborðinu og
kusu sveitarstjórnir til næstu fjögurra ára. Veðrið var prýði
legt á kjördag sem þó varð ekki til þess að glæða kjörsókn
neitt sérstaklega. Á Vesturlandi má segja að víðast hvar hafi
kosningar farið á svipaða lund og fyrir fjórum árum sem
þýðir að sömu meirihlutar gátu haldið áfram. Þó var undan
tekning í Borgarbyggð þar sem meirihlutinn féll og Fram
sóknarflokkur náði hreinum meirihluta í sveitarstjórn.
Á Akranesi hófu Sjálfstæðismenn samstarf við Samfylk
inguna, en Framsóknarflokkur með frjálsum er í aðhalds
hlutverki minnihluta. Í fjórum sveitarfélögum fór fram
persónukjör; í Skorradal, Eyja og Miklaholtshreppi, Dala