Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 63
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 63
við eitthvað og göngum á nýjum
slóðum. Við höfum farið í göngu
ferðir víða á höfuðborgarsvæðinu
því við höfum áhuga á gömlum
húsum og skipulagi. Við höfum
jafnvel litið við í kirkjugörðum
í þessum göngutúrum.“ Nú er á
dagskrá hjá þeim að ganga um
Heiðmörk og Álftanes og svo
Reykjanesið. „Við höldum okkur
í góðu formi með göngum,“ segja
þau. „Það er verðmætt að auka
þolið.“ Svo þið eruð ekki í golfinu?
Þau brosa bæði og segjast oft vera
spurð að þessu, en svo sé ekki núna,
en kannski komi að því seinna.
„Ferðirnar sem við förum í gera
kröfur um að við getum gengið
bratt, svo við verðum að labba líka
á fjöll. Okkur finnst gott að kaupa
okkur gönguferð og þjálfa okkur
með því að undirbúa hana. Að fjár
festa í gönguferð ýtir á okkur að
halda okkur í forminu. Svo förum
við líka öðru hvoru til Svíþjóðar að
heimsækja dóttur okkar og hennar
fjölskyldu. Þau búa í Gautaborg og
þar göngum við þá líka ansi víða.“
Sambandið
Kolbrún og Ásþór segja að hluti
af þeirra góða sambandi sé að þau
hafi verið í svo skyldum störfum
um ævina. „Það var verðmætt
þegar ég var kennari og hann
skólasálfræðingur að fá handleiðslu
hjá hvort öðru,“ segir Kolbrún.
„Við ræddum vinnuna oft lengi
og það var okkur báðum mikil
vægur stuðningur.“ En þó þau séu
svo góðir vinir þýði það ekki að
lífið hafi alltaf verið dans á rósum
í sambandinu. Gagnkvæm virðing
og hlustun hafi hins vegar reynst
vera lykilatriði. Ásþór segist minn
ast þess hafa tekið ákvörðun um að
hlusta lengur og betur á rök Kol
brúnar í samræðum í stað þess
að grípa fram í. „Þetta gerði það
að verkum að ég hætti að slá rök
hennar út af borðinu sem nöldur
og ég fór að skilja hennar sjónar
mið betur. Fólk verður að fá að
halda skoðun sinni á lofti,“ segir
hann af sannfæringu. „Við reynum
að ræða hvert mál út í hörgul, sem
er mest Kolbrúnu að þakka. Við
reynum að fara aldrei frá einhverju
máli ókláruðu.“
Langar þig ekki
í jólaköku?
Kolbrún heldur áfram með þráð
inn. „Við vorum mjög ung þegar
við kynntumst, ég var bara 17 ára
og hann tvítugur.“ Ásþór skýtur
inn í: „Þegar ég sá hana fyrst fannst
mér að þessi granna litla stúlka
ætti fátt sameiginlegt með vina
hópnum mínum.“ Kolbrún segir:
„Ég var nýbyrjuð í menntaskóla,
saklaus, lítil og frekar barnaleg.
Í ágúst síðast liðnum voru 50 ár
síðan við byrjuðum saman og 47 ár
síðan við giftum okkur. En erfið
asta tímabilið var á fyrstu árunum
okkar þegar hann var svo mikið út á
við í alls kyns verkefnum og vinnu.
Þá upplifði ég mig sem einstæða
móður og þoldi það ekki. En hann
hlustaði og minnkaði við sig til
að bregðast við þessu.“ Hún segir
að þau hafi aldrei verið ósátt. „Ég
get hreinlega ekki sofið hafi slíkt
komið upp á og hef jafnvel vakið
Ásþór og sagt að ég sé andvaka svo
hann verði að vakna, og hvort hann
langi ekki í te,“ segir hún hlægj
andi. „Það minnir á foreldra mína,
mamma hló oft að því að ef pabbi
gat ekki sofið vakti hann hana af
værum svefni og spurði hvort hana
langaði ekki í jólaköku!“
Borgarnes
Þau eru bæði uppalin á höfuð
borgarsvæðinu og bjuggu fyrstu
búskaparárin sín í Árbæjarhverfinu.
Þau voru þá komin með barn og
fjarlægðirnar geta verið ansi miklar
í borginni þegar þarf bæði að sækja
Framhald á næstu opnu
Á stíg guðanna í Sorrento á Ítalíu.
Dásamlegt útsýni frá hótelherbergi í Sorrento.
Á göngu í Slóveníu.
Við tengjum þig
við þína nánustu
Með ábyrgð að leiðarljósi tryggjum við íbúum Vesturlands
örugg samskipti við ættingja og vini allt árið um kring.
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár.