Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 64
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202264
vinnu og koma barni í pössun. En
þá kom það til að Ásþór vann verk
efni fyrir Fræðsluskrifstofu Vestur
lands í Borgarnesi og af því leiddi
að þau ákváðu að flytja þangað.
Þetta reyndist gæfuspor. Þau segja
að einstaklega vel hafi verið tekið
á móti þeim í bænum. Þau fengu
íbúð gegnum kennarastöðu Kol
brúnar og voru mjög heppin með
samstarfsfólk og ekki síður með
yfirmenn, þá Snorra Þorsteins
son fræðslustjóra og Guðmund
Sigurðs son skólastjóra Grunnskól
ans í Borgarnesi. „En best var að
við fengum meiri tíma sem mann
eskjur við það að flytja í svona sam
félag og eignuðumst góða vini,
enda varð Borgarnesdvölin að 35
árum. Við teljum að börnin okkar
búi að því að hafa alist upp á svona
stað. Þetta gerði okkur að þeim
manneskjum sem við erum. Í litlu
plássi verður maður virkur og sam
félagið elur fólk upp. Maður verður
sáttari bæði við sig og lífið og fær
ýmis tækifæri sem maður hefði ekki
fengið að öðrum kosti.“
Nýja lífið
Það er nokkuð ljóst hvað það er
sem gefur lífinu gildi hjá Kolbrúnu
og Ásþóri. Fyrir utan fjölskylduna
er málið að eiga sameiginlegt
áhugamál og að hafa heilsu til að
sinna því. Strax ári eftir ferðina til
Mont Blanc fóru þau í áhugaverða
ferð á Ítalíu þar sem þau gengu
gömlu pílagrímaleiðina til Rómar.
Næst varð Slóvenía fyrir valinu, þá
þriggja landa ferð þar sem gengið
var í Austurríki, Sviss og Ítalíu.
Þau hafa líka gengið um Portofino
skagann á Ítalíu og Cinqua Terre
auk Amalfi, Sorrento og Capri.
Árið 2019 dvöldu þau í fjallaþorp
inu Chamonix í Frakklandi þar
sem gengið var í Ölpunum í kring
og nýjasti leiðangurinn var um
Dolomítafjöllin í septem ber síðast
liðnum. Á milli slíkra ferða fara þau
gjarnan til Tenerife og fleiri staða
þar sem þau ganga mikið og njóta
náttúrunnar. Sólböð eru ekki á dag
skrá. Hér er ekki allt upp talið og
ótaldar eru ferðirnar til að hitta
Rögnu og fjölskyldu í Gautaborg.
Þau segjast vissulega vera með
samviskubit yfir kolefnissporinu.
En þau viðhafa ýmsar mótvægis
aðgerðir og umhverfisvænan lífs
stíl til að vega upp á móti því. „Við
erum ekkert ofur íþróttafólk og
förum ekki á hæstu tindana, þetta
eru bara heilbrigðar gönguferðir
sem allir geta farið í,“ segir Ásþór.
„Hér í blokkinni tökum við líka
stundum stigana og gerum styrkta
ræfingar, leikfimi og teygjur. Svo
pössum við upp á mataræðið, erum
farin að borða minna kjöt og höfum
auga með vigtinni.“
„Það er notalegt að hafa frelsið,
það er það sem gerist þegar farið
er á eftirlaun. Við getum valið tím
ann til að gera það sem hugurinn
stendur til hverju sinni,“ segja þessi
góðu hjón að lokum.
gj
Ljósmyndir með viðtalinu eru úr
einkasafni (Ásþór Ragnarsson o.fl.).
Ásþór í göngu frá Chamonix.
Gönguhópurinn í Slóveníu.
Víða er fallegt útsýni og Kolbrún gefur sér hér tíma til að njóta.
Í frönsku ölpunum nálægt Chamonix.
Í Dolomítunum í september.
Kolbrún í frönsku ölpunum.
Kolbrún og Ásþór í ferðinni um Dolomítafjöllin.
Vernazza þorpið í Cinque Terre á Ítalíu.