Skessuhorn - 20.12.2022, Page 69
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 69
Hlökkum til
2023
Við óskum núverandi og
fyrrverandi nemendum, starfsfólki
og velunnurum öllum, gleðilegra
jóla og þökkum gott samstarf á
liðnum árum
Annríkið er oft mikið á aðventunni
og í mörgu að snúast. Það þarf að
kaupa gjafir, undirbúa jólamatinn
og skreyta heimilið svo nokkuð sé
nefnt. Eitt af því sem flestir vilja
líka helst gera fyrir jólin er að
fara í jólaklippinguna. Desember
mánuður er því oft annasamur hjá
hársnyrtistofum, en jafnframt fylgja
því skemmtilegar samtalsstundir. Á
myndinni sést Theodóra Ragnars
dóttir í stólnum hjá Margréti Grét
arsdóttur hárskerameistara í Borg
arnesi.
gj
Hann Bogi Sigurðsson á Akranesi setur oft saman vísur. Hér fjallar hann
um þann gamla sið að borða skötu á Þorláksmessu. Þetta var samið í tilefni
samkomu „The Icelandic skate club“ árið 2012.
Undarlegur er sá siður
á aðventunni að setjast niður
þykjast vera voða góður
vita mest og furðufróður.
Finna sig góðan nokk af gigtinni
en geta varla beðið eftir lyktinni.
Sú er lyktin engu lík
lyktin mengar hverja flík.
Þó mengun þessi lífi lyfti
maður lætur sig hafa fataskifti
og þegar kemur að Þorláksmessu
þá fer eiginlega allt í klessu.
Eins og hellt úr heilli fötu
af hlandi þá er lykt af skötu.
Og þetta er ekkert reykelsi eða myrra
meira að segja sterkari en í fyrra
þá lyktin entist alveg fram á Góu
og allar lýs í hári mínu dóu.
Og lyktin þessi kvalafíknir kveikir
karlar mestir sumir verða veikir
því fíknin þessi fær mann til að éta
margfalt það sem margir þola eða geta.
Að endingu er svo öllu skolað niður
með bjór og brennivíni, heill sé yður!
Skötukvæði Boga Sig
Fastagestir í heita pottinum í sundlauginni á Jaðars
bökkum á Akranesi tóku daginn snemma síðastliðinn
fimmtudag. Klukkan sex um morguninn voru þeir
mættir og héldu þar Litlu jólin þrátt fyrir frostið. Gerðu
vel við sig í mat og drykk, eins og sjá má á myndinni.
Þau sögðust hafa valið daginn til heiðurs forseta vorum,
Guðna Th Jóhannessyni sem kom í opinbera heimsókn
á Akranes síðar sama dag ásamt eiginkonu sinni frú
Elízu Reid.
mm/ Ljósm. hóó
Pottverjar héldu Litlu
jólin í morgunsárið
Jólaklippingin
í tæka tíð