Skessuhorn - 20.12.2022, Page 73
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 73
gaman að kallinum. Við vorum
samt ekki alltaf sammála, en það var
sennilega af því að ég er sammála
öllum á meðan ég ræð öllu. Ef ég
fæ ekki að ráða öllu líkar mér það
mjög illa,“ segir hann kíminn.
Frá Póllandi
til Litháens,
gegnum Ísland
Talið berst að atvinnurekstrinum,
helsta viðfangsefni Þórðar. Hann
hefur unun af því að vinna og segir
að það séu bara sunnudagarnir sem
séu leiðinlegir, þeir séu bara bið
eftir mánudeginum þegar allt fer í
gang aftur eftir helgina. Meðal nýj
ustu verkefna Vélsmiðju Grundar
fjarðar er að flytja inn og reisa pólsk
iðnaðarhús. „Á næsta ári erum við
búin að selja þrjú hús á Íslandi og
tvö til Litháen. Þau síðarnefndu eru
sem sagt seld á Íslandi, frá Póllandi
til Litháens. Fyrsta húsið sem við
fluttum inn var selt til sjávarútvegs
fyrirtækisins G.Run í Grundarfirði
og ef allt sem er í pípunum verður
að veruleika verða ein átta svona
hús seld á næsta ári.“
Blaðamaður spyr hvernig húsin
standist íslenska veðráttu og það
stendur ekki á svari. „Ef hús getur
staðið við höfnina í Grundar
firði geturðu troðið því upp á
hvaða jökul sem er og það verður
í fínu lagi,“ segir Þórður. „Grund
firðingar lenda reglulega í því
að malbikið fýkur af sitt hvorum
megin við bæinn!“
TRM flytur inn
hvað sem er
Þórður stofnaði fyrirtæki í Pól
landi ásamt Remek í Vélsmiðjunni
og öðrum pólskum félaga sínum,
Marek. Það ber nafnið TRM sem
eru upphafsstafir eigendanna. „Við
gerðum þetta til að eiga auðveldara
með innflutning til Íslands vegna
þess að það var annars svo flókið
að fá virðisaukaskattinn endur
greiddan. TRM sérhæfir sig í að
flytja vörur til Íslands frá Pól
landi og þóknunin okkar er virðis
aukaskatturinn sem við fáum
endurgreiddan hér úti. Svo það má
segja að pólska ríkisstjórnin greiði
fyrir vinnuna okkar,“ segir Þórður.
„Við veitum kaupendum allar upp
lýsingar um vörur og flytjum inn
marga gáma á ári, jafnvel mótor
hjóladekk og gröfudekk, glugga,
hurðir og alls konar. Við fáum hag
stæðari flutningssamninga vegna
magnflutninga og það kemur kaup
andanum til góða. Svo komust við
fram hjá öllu einkaleyfum, þar sem
þau eru bönnuð innan ESB, með
þessu móti.“
Pólsku tengslin
Það er auðheyrilegt að Þórður hefur
gaman af því að standa í rekstri og
hann segir eiginkonu sína Dóru
Henriksdóttur vera með honum
í því í einu og öllu. Þegar hann er
spurður um hvernig þau hafi kynnst
svarar hann glettinn: „Hún byrjaði
að vinna hjá mér, beitti fyrir mig í
smábátaútgerðinni. Ég hélt þá að
það yrði ódýrara að giftast henni en
það reyndist algert rugl!“ Dóra og
Þórður hafa verið saman síðan árið
1994 og eiga hús í Póllandi.
Þórður kann pólsku orðið ágæt
lega og hefur ákveðnar skoð
anir á því hvernig best sé að læra
tungumál. „Lífið veitir okkur
stundum tækifæri til að auka þekk
ingu okkar og ég leit þetta þeim
augum. Maður verður að hafa vit
á að grípa tækifærið og læra af
hlustun. Ég hef sterkar skoðanir á
íslenskukennslu fyrir útlendinga,
þeir þurfa að fá að tala án þess að
Þórður með sonum sínum.
Fyrsta einingahúsið sem Vélsmiðja Grundarfjarðar flutti inn og reisti á Íslandi var fyrir G.Run í Grundarfirði.
Grundarfjarðarbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Þeim fjölmörgu sem innt hafa af hendi óeigingjarna sjálfboðavinnu í þágu
íbúa og samfélags er þakkað sérstaklega fyrir sitt dýrmæta framlag.
Grundarfjarðarbær óskar íbúum Grundarfjarðar, Vestlendingum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða!