Skessuhorn - 20.12.2022, Síða 78
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202278
þáði,“ segir hún. Bowie átti þó eftir
að skapa mikið af tónlist eftir þetta
en átti við ýmis heilsufarsleg vanda
mál að stríða og lést loks úr krabba
meini aðeins tveimur dögum eftir
að síðasta plata hans kom út, í jan
úar 2016.
Bowie veggurinn
Þegar Bowie lést hófu aðdá
endur hans út um allan heim að
myndskreyta veggi í minningu
hans. „Þá hugsaði ég að það þyrfti
líka að mála vegg á Íslandi,“ segir
Björn. „Ég hafði lengi þekkt graf
ískan hönnuð sem einnig var aðdá
andi Bowie, Halldór R. Lárus
son. Ég viðraði hugmyndina við
hann og fann svo vegg hér á Skag
anum sem hentaði, gafl hússins við
Kirkjubraut 8, gömlu lögreglu
stöðina. Svo unnum við að þessu
saman, hann kom uppeftir þegar
hann gat til að hjálpa mér að mála.
Hann hafði verið að vinna grafískar
myndir af Bowie og við notuðum
þær á vegginn.“ Björn gleymdi sér
alveg við þetta skemmtilega verk
efni. „Maður var á 12 tíma vöktum
í álverinu og kom klukkan átta á
kvöldin til að fara að mála. Svo átti
maður kannski að mæta í vinnu
aftur klukkan sex um morgun
inn, en málaði samt fram yfir mið
nætti,“ segir hann. Þess má geta að
nýverið máluðu hann og Halldór
einnig saman annan vegg handan
götunnar með myndum af tón
listarfólki frá Akranesi. Hann var
orðinn klár fyrir Vökudagana.
Bowie hátíð á Akranesi
Síðan þá hafa ýmsir viðburðir
verið haldnir við Bowie vegginn og
síðast liðið sumar var haldin hátíð
Bowie til heiðurs. Það var árið sem
hann hefði orðið 75 ára. Þá voru
líka einmitt fimm ár síðan veggur
inn var málaður. „Við höfum gert
margt Bowie tengt,“ segir Björn.
„Við höfum reyndar sett upp tvær
sýningar. Sú fyrri var tveimur árum
eftir að við máluðum vegginn og þá
voru bara sýndir Bowie munir og
verk eftir okkur Dóra. Við fylltum
húsið og það komu um 400 manns.
Í sumar héldum við svo tveggja
daga sýningu í Gamla Landsbanka
húsinu. Þar sýndu sex Bowie aðdá
endur hluta af Bowie söfnum sínum
auk þess sem Heiða í Unun kom
og söng Bowie lög. Svo gerðu sex
listamenn Bowie listaverk og sýndu
víðs vegar um bæinn. Þar að auki
kom hljómsveitin LIZT og hélt
tónleika á laugardagskvöldinu og
flutti Bowie lög. Svo Bowie hátíðin
stækkaði verulega.“
Alls komu 5600 manns til að
skoða sýninguna. „Það var fólk
alls staðar að,“ segir Björn. Hann
stóð líka fyrir útgáfu fyrsta Bowie
blaðsins á Íslandi við þetta tæki
færi ásamt Halldóri og Jennu.
Hann hefur reyndar komið áður að
útgáfu blaðs, því þegar hann vann í
Sementsverksmiðjunni sá hann um
útgáfu blaðsins Sementspokans í
ein sjö ár.
Tileinkaði sér tæknina
Það er ljóst að Bowie á hug hjón
anna Jennu og Björns allan og þau
eiga fjöldann allan af safngripum
tengdum honum. Þau segja að
Akranes tengist minningu Bowies á
ýmsan annan hátt líka og nefna sem
dæmi störf Svönu Gísladóttur sem
er framleiðandi í kvikmynda og
sjónvarpsbransanum og vann með
ABBA að nýjustu sýningunni þeirra
í London svo dæmi sé tekið. „Svana
vann með Bowie að tveimur stórum
myndböndum sem voru síðustu
sköpunarverk hans,“ segir Björn.
Bowie lést í janúar 2016, þá 69
ára gamall. Þetta var aðdáendum
hans mikið áfall. „Við höfum verið
í nóvember úti í New York,“ segir
Björn. „Þá var hann að frumsýna
söngleik þar og mig langaði til að
vera fyrir utan leikhúsið til að sjá
hann. En það er mikið mál að fara
niður á Manhattan svo við gerðum
það ekki. En ég sá myndir af honum
sem teknar voru fyrir utan leik
húsið og sá myndböndin sem hann
gaf út. Einhvern veginn gat ég ekki
varist þeirri tilfinningu að það hlyti
að vera eitthvað alvarlegt að. Svo
kom síðasta platan hans út og tveim
dögum síðar var hann allur. Í síð
asta myndbandinu sem hann gerði
voru margar vísanir í eldri verk og
svo fór hann inn í skáp í lokin og
lokaði á eftir sér,“ segir Björn. „Það
er ekki hægt að kveðja með skýrari
hætti.“ Jenna bætir því við að Bowie
hafi alltaf ort og sungið um dauð
leika sinn. „En þarna vissi maður að
þetta væri síðasta albúmið. En það
hafði verið svo mörgum verðmætt
að vita af honum þarna og að hann
væri enn að skapa.“ Hún segist
aldrei hafa syrgt neina svona opin
bera manneskju áður, en hann hafi
verið hluti af lífinu. „Hann var líka
í góðu sambandi við áhangendur
sína, sinnti þeim vel og var alltaf
þakklátur fyrir að fólk kynni að
meta verkin hans. Hann var mik
ill og fjölhæfur listamaður, samdi
alla þessa tónlist og lék í mörgum
kvikmyndum. Svo var líka merki
legt hvað hann tileinkaði sér tækn
ina vel og notaði netið til miðlunar
vitans strax frá upphafi þess á 10.
áratugnum.“
Hugðarefni
Það er ekki hægt að segja að Birni
og Jennu leiðist, þau hafa nóg að
gera bæði við vinnu sína út á við og
svo áhugamálin. „Við erum í klúbbi
sem heitir David Bowie Ísland á
Facebook og fórum nýverið með
hópi þaðan að sjá nýjustu heimilda
myndina um Bowie. Þar er hans
eigin rödd, viðtöl og annað. Við
erum alveg á kafi í þessu. Ef eitt
hvað Bowie tengt kemur út nálg
umst við það,“ segja þau. En auk
þessa njóta þau þess að ferðast um
landið auk reglubundinna ferða
til New York. Þess skal getið að
Jenna fékk íslenskan ríkisborgara
rétt á síðasta ári og tók upp íslenska
millinafið Katrín. Björn hefur stutt
við starfsemi Vitans á Akranesi og
unnið þar með Hilmari Sigvalda
syni. Hann hefur m.a. tekið upp og
unnið myndbönd af tónleikum og
sýningum í Vitanum sem Hilmar
hefur notað til kynningar. Jenna
er með hliðarverkefni við skrifin,
hún merkir fallega býanta, ekki síst
með Bowie tengdum orðum, svo
sem heitunum á plötunum hans.
Blýantana selur hún eða gefur og
finnst notalegt að hafa handverk til
að fást við. „Útlendingar hafa keypt
heilu settin af þessu,“ segir Björn.
Sjálfur fæst hann við að teikna og
blaðamaður fær að sjá hvernig
hann tvinnar Bowie tengt efni inn
í myndirnar, enda hlýtur hann að
teljast sérfræðingur í verkum hans.
Í íslenskri nútímamálsorðabók
segir að hugðarefni sé málefni sem
maður lætur sér annt um. Blaða
maður hrífst af lífsstíl og heil
steyptu hugarfari Jennu Katrínar
og Björns. Þau fara ekki endilega
troðnar slóðir og veigra sér ekki
við að taka ákvarðanir. Hann er
af Skaganum og hún af blönduðu
þjóðerni, alin upp í einni stærstu
borga heims. Ólíkara getur það
ekki verið. En menningin sam
einar og ræður ríkjum, hún nærir
og bætir.
gj/ Ljósm. gj og úr einkasafni
Hluti myndar eftir Björn þar sem hann notar áritun Bowies (f. Bjössi Lú) og nafn
hans túlkað með svörtum stjörnum. Síðasta plata hans hét Blackstar.
Litríkir blýantar frá Jennu, merktir verkum eftir Bowie.
Björn við gríðarstóra mynd af Bowie í Jersey City í New Jersey, Myndin var máluð
af þekktum vegglistarmálara sem heitir Eduardo Kobra og er á 18 hæða blokk.
Björn og Jenna á ferðalagi fyrir norðan.
Áritun frá Bowie til Björns á plötuna Space Oddity. Björn notaði hana svo til að
setja á Blackstar myndina.