Skessuhorn - 20.12.2022, Qupperneq 82
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202282
báðum að þetta væri satt og rétt,“
segir Villi og glottir.
Leiðsögnin hefur leitt af sér að
hann hefur kynnst ógrynnum af
alls konar fólki. „Í tengslum við að
keyra stóru jeppana hef ég kynnst
frægu fólki, kvikmyndaleikurum,
stjórnmálamönnum, kóngafólki
og þess háttar. Ég hef líka verið
við upptökur á stórmyndum, sem
teknar hafa verið á Íslandi. En
eftir minnilegasta fólkið er kannski
bara það venjulegasta. Ég man t.d.
mjög vel eftir fjölskyldu frá Banda
ríkjunum þar sem að flestir unnu í
Hershey súkkulaðiverksmiðjunni.
Og tvennum fullorðnum hjónum
frá Ísrael, sem ég fór með í nokkurra
daga ferð um Suðurland,“ segir
Villi. „Þegar við Elizabeth fórum
til Ítalíu um daginn vorum við að
heimsækja fólk sem ég hef kynnst í
gegnum ökuleiðsögumanns starfið.
Við lentum þar í margra klukku
tíma matarveislu hjá eiganda ferða
skrifstofu sem ég hef unnið fyrir
síðustu ár. Og í sömu ferð vorum
við boðin á Michelin veitingastað
þar sem við borðuðum og drukkum
allt sem við gátum í okkur látið.
Hópur sem ég fór með um landið í
sumar bauð og það var ekki við það
komandi að við tækjum upp veskið.
Frí leiðsögn um borg og bý fylgir
oftar ekki með. Á þennan hátt hef
ég/við kynnst öðrum þjóðum og
löndum á persónulegan hátt.“
Eyðilögðu
lögreglubílinn
Þó ýmis viðfangsefni Villa hafi
verið nefnd hér á undan er alls ekki
allt upp talið. Á Borgarnesárunum
var hann í JCI (Junior Cham
ber International) sem er alþjóð
leg hreyfing fyrir ungt fólk á aldr
inum 1840 ára sem hefur áhuga og
metnað til að efla hæfileika sína og
hafa jákvæð áhrif í kringum sig. Villi
tók þátt í ræðukeppnum á vegum
félagsins og var oftar en ekki kosinn
„ræðumaður dagsins.“ Eitt af ver
kefnum félagsins í Borgar nesi var
að standa fyrir viðburði í desember
þar sem formlega var kveikt á jóla
tré staðarins. Félagar saumuðu sér
jólasveinabúninga við þetta tæki
færi og komu fram í þeim. Í fram
haldinu lék Villi oftar en ekki jóla
svein við ýmis tækifæri. Annað sem
mætti nefna frá þessum árum er að
hann var upptökumaður fyrir RÚV
og í framhaldi líka fyrir Stöð 2. „Við
Arinbjörn Hauksson vorum í þessu
saman. Keyptum upptökuvél og
vorum í upptökum af ýmsum við
burðum í Borgarnesi og nágrenni á
tímabili, ekki bara fréttamyndum,“
segir hann. „Þetta kom sennilega
til í framhaldi af aðkomu okkar og
leikdeildarinnar að áramótaskaupi
sem sýnt var í kapalkerfi sem star
frækt var um tíma í Borgarnesi.
Okkur tókst nú að eyðileggja lög
reglubíl í einni upptökunni,“ segir
hann og hlær.
Ekkert lært en
gerir samt
Síðustu tvö árin fyrir Covid19
bjó Villi hjá Kolbrúnu systur sinni
í Vík aðra hvora viku og keyrði
hópa í íshella þar í grennd. Síð
asta ferðin var 15. mars 2020, en
svo kom farsóttin. En þessi tvö ár
hafði ekki fallið úr dagur. Þarna
vann hann líka fyrir Ann Peters,
bandarískan ljósmyndara sem sér
hæfir sig í að skipuleggja brúð
kaup á Íslandi og taka myndir. „Þá
var oft farið á staði sem enginn
kemur á og teknar flottar brúð
kaupsmyndir,“ segir Villi. Um tíma
keyrði hann líka jeppa hjá Kristjáni
Kristjánssyni hjá ferðaþjónustu
fyrirtækinu Mountain Taxi. Verk
efni fyrir Askja Reizen voru líka
umfangsmikil, hann keyrði fyrir þá
á sumrin og sá um allan búnað milli
ferða auk þess að útvega gistingu
fyrir hópana. Á veturna vann hann
gjarnan við pípulagnir. Síðustu tvö
árin hefur hann staðið fyrir mikilli
hátíð á Varmalandi fyrstu helgina
í júní undir heitinu Varmalands
dagar, með undirtitlinum List og
Lyst. Þar vinnur hann með styrk
leika svæðisins í samvinnu við
fjölda fólks og aðsókn hefur verið
góð. „Svo það er nú þannig að ég
hef ekki beint lært það sem ég er
að gera, en mér er bara alltaf treyst
fyrir verkefnum. Og auðvitað lærir
maður mikið af reynslunni,“ segir
Villi. „Ég hef víða komið við, aldrei
sótt um vinnu, aldrei sótt um inn
göngu í félagsskap, en samt hef
ég fengið tækifæri til að gera svo
margt, bæði í starfi og leik.“
Öðruvísi afmæli
Blaðamanni hefur borist til eyrna
að Villi sé uppátækjasamur og t.d.
séu afmælisveislur hans ekki hefð
bundnar. Ég ber þetta undir hann.
„Já, uppátækjasamur, það má vel
vera,“ segir hann. „En þá bara til að
gera veröldina betri og skemmti
legri. Ég hef alltaf haft áhuga á
listsköpun af öllu tagi og leita oft
þangað, er ófeiminn við að gera
hluti sem öðrum þætti kannski
„öðruvísi.“ Ég bind mig ekki endi
lega á klafa hins venjulega. Hug
urinn er frjór og alltaf eitthvað í
gangi. Foreldrar mínir voru bæði á
þessum nótum. Varðandi afmælis
veislurnar, þá er það alveg rétt
að þær eru kannski ekki hefð
bundnar. En hvað er hefðbundið?
Fastur liður í mínum veislum er t.d.
dönskukennsla, margir gætu tekið
það upp til tilbreytingar. Og matur
er oft af þjóðlegum toga; saltað
hrossakjöt, slátur, skyr, grjóna
grautur o.þ.h. Ég held mig heldur
ekki endilega við árs afmælis veislur.
Ég hélt t.d. upp á 20 þúsund daga
afmælið mitt, sem var í febrúar
2018. Þá var ég 54 ára,“ segir Villi
og brosir.
Núna
Það stendur reynslumikill en vel
búinn og keikur Econoline bíll
á hlaðinu. Bíllinn kemst allt og
verður næst nýttur til aksturs með
ferðamenn á jökla milli hátíða. „Á
þessum fer maður alla leið upp,“
segir Villi. „Við Elizabeth höfum
líka farið á honum hringinn, þetta
er fínasti ferðabíll.“ Þeim finnst
báðum afar gott að vera í húsinu
sínu á Varmalandi eins oft og tæki
færi gefast, Elizabeth líka þótt hún
sé alin upp í Reykjavík. Þau hafa
verið saman í rúm tuttugu ár og
eiga ekki börn. Villi segir: „Það er
dásamlegt að vera hér, svo mikil ró
og friður. En í Reykjavík er aldrei
þögn. Ef maður opnar glugga
er það eins og að vera við foss,
sífelldur umferðarniður. Og þótt ég
sé félagsmálamaður kann ég mjög
að meta kyrrðina hérna.
Svona er ég,“ segir hann að
endingu.
gj / Ljósm. gj og úr einkasafni.
Jólasveinar. Annar frá vinstri er með kunnuglegan augnsvip.
Hressar vinkonur frá Kanada við bíl Villa á Langjökli.
Villi í ræðustól fyrir JCI.
Þetta þekkta vers er að finna á einum veggja heimilisins, gjöf frá Kolbrúnu systur
Villa. Villi er kominn heim í Borgarfjörð.
Herlögregluþjónninn í „Við borgum ekki, við borgum ekki.“ Búningurinn var
búningur bifreiðaeftirlitsmanna og smellpassaði fyrir hlutverkið.