Skessuhorn - 20.12.2022, Page 84
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 202284
Aðalsteinn Snæbjörnsson neta
gerðarmeistari dvaldi mikið í Ólafs
vík í barnæsku og hefur nú búið þar
í nærfellt fjörutíu ár. Vinnustaður
hans er hins vegar út um allan
heim. Skessuhorn leit við hjá Aðal
steini fyrir stuttu.
Í festum eins og Jón
Fyrsta spurningin sem kemur fram
á varir blaðamanns er þessi: Ertu
héðan? „Ekki beint,“ segir viðmæl
andinn brosandi, þar sem við sitjum
við borðstofuborðið í fallegu húsi
þar sem hann býr ásamt konu sinni
Elsu Sigurbjörgu Bergmunds
dóttur. „Ég er fæddur og uppalinn
í Reykjavík,“ segir Aðalsteinn. „En
móðurættin mín er öll héðan og
konan mín líka. Það er samt eigin
lega mér að kenna frekar en henni
að við búum hér, Elsa hefði alveg
verið til í að búa fyrir sunnan og var
þar þegar við kynntumst. Ég elti
hana og fór að læra smíðar í Reykja
vík, en breytti svo til og lærði neta
gerð. Þegar því námi lauk vildi Elsa
fara út til Danmerkur í skóla, en
ég var tréhestur og vildi bara fara
til Ólafsvíkur og stofna fyrirtæki,“
segir hann og brosir. „Og það gerði
ég og hún fór út í sitt nám.“ Varstu
þá í festum á meðan? spyr blaða
maður. „Já, sannarlega“ segir hann
og vísar í Íslandssöguna: „Þetta var
alveg eins og hjá Jóni og Ingibjörgu
á sínum tíma.“
Næstum því
framsóknarmaður
Hann var búinn að vera mikið í
Ólafsvík þegar þetta var og hafði
farið á sjó fimmtán eða sextán ára
gamall hjá útgerð sem afi hans átti
ásamt bræðrum sínum. Þess utan
hafði hann verið í sveit norður í
Köldukinn, á bænum Rangá hjá
Sigrúnu Jónsdóttur og Baldvini
Baldurssyni. „Það var fínn tími,“
segir hann. „Ég segi stundum að
þarna hafi ég komist næst því að
verða framsóknarmaður! Þarna bjó
eðalfólk og það var mikil menn
ing á svæðinu, ekki síst söngmenn
ing. Rangárbræður eru frá þessum
bæ og einn þeirra, Baldvin Kristinn
Baldvinsson söngvari og hrossa
ræktandi býr í Torfunesi, sem er
næsti bær fyrir sunnan Ófeigsstaði
og Rangá. Sigrún var líka söng
kona, hún söng m.a. með Þráni
Þórssyni sem var skólastjóri Skút
ustaðaskóla og mikill söngmaður.
Ég hef alltaf haft gaman af Þing
eyingum, þeir eru miklir frásagnar
menn og eftirhermur. Það var
mjög gestkvæmt á Rangá og maður
umgekkst fullt af fólki. Aldrei var
farið í manngreinar álit og allir
sátu saman til borðs hvort sem það
var mektarmaður að sunnan eða
strákur í sveit.“
Með ömmu og
afa í Ólafsvík
Það er komið að því að forvitn
ast meira um uppruna Aðalsteins
og tengingarnar við Snæfellsnes.
Hann er sonur Snæbjörns Aðal
steinssonar sem lést árið 2016 og
Kristínar Lárusdóttur. „Ég átti
móðurafa og ömmu hér í Ólafs
vík, Lárus Sveinsson og Steinunni
Þorsteinsdóttur. Afi drukknaði
ásamt tveimur öðrum hér í hafnar
mynninu einungis 28 ára gamall
árið 1947. Nokkrum árum seinna
hóf amma búskap með Hauki Sig
tryggssyni sem ég kallaði afa og
var mér mjög góður. Hann var
með útgerðarfélagið Dverg ásamt
bræðrum sínum. Ég fékk að elta
hann þegar hann var að vinna
verkin og fylgdist t.d. með þegar
hann var að fella net,“ segir Aðal
steinn og á greinilega góðar minn
ingar frá þessum tíma.
Háskóli lífsins
Aðalsteinn segir að það hafi verið
nokkurs konar uppeldislegur
háskóli að fá að kynnast ólíkum
samfélögum á unga aldri með því
að taka virkan þátt í atvinnulíf
inu. „Þegar maður fer á sjó svona
ungur gengur maður inn í full
orðinna manna samfélag, en fær
samt að njóta sín þar. Ég var tekinn
inn í hópinn á jafnræðisgrundvelli.
Bróðir afa Hauks var skipstjóri og
sonur hans stýrimaður. Það var
passað alveg upp á mann og leið
beint og gætt. Kröfurnar snerust
svo bara um að gera sitt besta og ég
fékk hvatningu til þess. Maður var
samt settur í verk sem túlkuð væru
stórhættuleg í dag. En þá var manni
bara kennt nákvæmlega hvernig
átti að vinna þau og það var alltaf
einhver með manni. Þetta virkaði
eins og skipulögð nýliðafræðsla. Í
raun voru menn vel á undan sinni
samtíð að þessu leyti,“ segir Aðal
steinn. „Ég var náttúrulega yngstur
á bátnum þegar ég byrjaði á sjó og
var sá eini sem var svona ungur.
Þetta var 28 metra bátur, Svein
björn Jakobsson SH 10. En síðan
þá hef ég verið á skipum allt upp í
120 metra. Ég varð fyrst eitthvað
sjóveikur en ekki þó illa. En ég veit
um menn sem voru mjög harðir af
sér en gátu samt ekki farið til sjós
vegna þess hversu slæmir þeir voru
af sjóveiki.“
Hvað er að vera ríkur
„Síðar var ég með netaverkstæði
hér í Ólafsvík árið 1984 og rak það
í um 26 ár,“segir Aðalsteinn. „Það
hentaði vel inn í fyrirtækjaflóruna
þá og ég var búinn að læra rétta
fagið. Ég fékk fyrst leigt húsnæði
hjá Frystihúsinu, enda höfðu þeir
ábata af því að hafa svona þjónustu
á staðnum. Svo óx þetta hjá mér og
ég keypti húsnæði nokkrum árum
seinna. Þetta gekk alveg þokka
lega, en fyrstu árin og þangað
til að Fiskmarkaðirnir komu gat
verið mjög þungt peningalega hjá
útgerðunum. Menn áttu lítið fé svo
mánuðum skipti og það var tíma
frekt og erfitt að rukka. Ég varð
ekki ríkur á þessu, en tókst að lifa.
En svo er það spurning hvað það er
Var tréhestur og vildi flytja til Ólafsvíkur
„Fyrst þegar maður fer út fyrir túngarðinn hjá sér, sér maður hvað heimurinn er stór“
Aðalsteinn Snæbjörnsson.
Aðalsteinn og Elsa á góðri stund.
Kyrrahafið, Aðalsteinn við störf sín um borð.
Afli úr Barentshafi.
Með samstarfsmönnum í Kóreu.