Skessuhorn - 20.12.2022, Side 106
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022106
Tónlistarmaðurinn Birgir Þóris
son hóf ungur að læra á píanó og
trompet við Tónlistarskóla Borgar
fjarðar. Hann er Borgnesingur
í grunninn en býr í dag á Akra
nesi ásamt eiginkonu sinni, Birnu
Björk Sigurgeirsdóttur, og sonum
þeirra þremur; Davíð Þór, Tristani
Frey og Mikael Orra. Tónlistin
hefur teymt Birgi um víðan völl. Í
dag skemmtir hann fólki á böllum
og í leikhúsi en hann er hljóm
borðsleikari Stuðlabandsins og lauk
nýverið við að spila á sýningunum
Sem á himni í Þjóðleikhúsinu. Í
haust sagði hann upp starfi sínu
sem aðstoðarskólastjóri við Tón
listarskóla Akraness og lauk þar
störfum um síðustu mánaðamót.
Hann freistar þess nú að starfa sem
sjálfstætt starfandi tónlistarmaður
og einbeita sér enn frekar að tón
listarflutningi.
Kynntist ástinni
í lúðrasveit
„Ég byrjaði að læra á píanó en
lengst af lærði ég hjá Zsuzsönnu
Budai. Ég fór ekki alveg beinu
brautina í þessu öllu saman en ég
fékk að kynnast alls konar tónlist í
tónlistarskólanum í Borgarnesi. Ég
lærði t.d. á trompet hjá Ólafi Flosa
syni og svo á einhverjum tíma
punkti vildi hann senda mig til
annars kennara þar sem hann var
búinn að kenna mér allt sem hann
gat kennt mér. Hann sendi mig þá
hingað á Akranes og þar kynnt
ist ég lúðrasveitarstarfinu. Ég var
í lúðrasveitinni í nokkur ár undir
stjórn Heiðrúnar Hámundar og
þar kynntist ég konunni minni! Þá
vorum við samt bara 1516 ára en
urðum mjög góðir kunningjar. Ég
flutti svo til Reykjavíkur og fór í
Menntaskólann við Hamrahlíð,
þá var einhver forveri Facebook
messenger í tísku og við héldum
einhverju smá sambandi þar,“ segir
Birgir.
Þráði að prýða vegg
tónlistarskólans
Þegar Birgir fluttist til Reykja
víkur hætti hann í tónlistarnám
inu og spilaði lítið. Hann fann þó
að eitthvað vantaði. „Ég man að
einhvern tímann stóð ég á planinu
heima í Borgarnesi og var að tala
við hana Guðrúnu Jónsdóttur. Við
vorum eitthvað að spjalla um lífið
og tilveruna og ég sagði við hana
að mér fyndist eitthvað vanta í líf
mitt. Þá spyr hún: „Af hverju hætt
irðu að spila á hljóðfæri? Og ég
eiginlega vissi ekki svarið við því.
Þetta varð til þess að ég fór aftur
í tónlistarnám og fór að keyra til
Borgarness einu sinni í viku til
að læra hjá Zsuzsönnu minni. En
ég átti t.d. ekki píanó svo ég fékk
að æfa mig hjá vinafólki sem bjó
í Reykjavík. Svo er eitt svolítið
fyndið, það er veggur í tónlistar
skólanum í Borgarnesi með mynd
af öllum útskriftarnemendum sem
klárað hafa framhaldspróf og ég
man hvað mig langaði að komast
á þennan vegg! Það var ástæðan
fyrir því að ég fór aftur að læra í
Borgarnesi, mig langaði að klára
þetta með Zsuzsönnu, í skólanum
mínum heima og komast á þennan
vegg, segir Birgir hlæjandi en í
dag prýðir hann einmitt vegginn
umrædda í Tónlistarskóla Borgar
fjarðar.
Hljóðfærin með
aðdráttarafl
En hvað var það sem dreif Birgi af
stað í tónlistarnám? „Ég eiginlega
veit ekki hvað það var sem fékk mig
til að byrja að læra á hljóðfæri. Það
er enginn atvinnutónlistarmaður
í nærfjölskyldunni en það er mik
ill tónlistaráhugi í fjölskyldunni
minni. Ég held að flestir fjöl
skyldumeðlimir hafi lært á hljóð
færi eða sungið í kór en ég er sá eini
sem hefur gert þetta að einhverju
lifibrauði, segir Birgir.
„Hljóðfæri vöktu alltaf áhuga
minn, hvort sem það var verið að
spila á þau eða ekki. Það er svo
mikill persónuleiki í hljóðfærum
og þau hafa eitthvað aðdráttar
afl. Ég gerði það t.d. í Tónlistar
skólanum á Akranesi að ég fékk
að taka nokkur hljóðfæri sem voru
bara inni í geymslu og hengdi þau
upp á göngum skólans. Mér fannst
bara svo mikil synd að enginn fengi
að sjá þau því mér finnst hljóðfæri
svo falleg. Ég grínast líka stundum
með það að mér finnist eiga að vera
píanó í öllum stofum. Mamma og
pabbi áttu píanó í stofunni og það
var einhvern veginn þarna í miðj
unni og kallaði á,“ segir Birgir.
Tónlistarheimilið
Eftir menntaskóla fór Birgir aftur í
lúðrasveitina á Akranesi og komst
þá að því að Birna var ennþá í
lúðrasveitinni. „Þar kynntumst við
aftur og höfum verið saman síðan
þá, þetta var árið 2008, segir Birgir
en Birna spilar á þverflautu og
saxó fón og er með framhaldspróf
á píanó, svo mikil tónlist er í fjöl
skyldunni. „Það er ekki eins og við
séum með söngstundir eða eitthvað
hérna heima og við kannski erum í
rauninni ekki nógu dugleg að spila
tónlist í húsinu. Birna sest reyndar
svolítið niður og spilar heima en
svo er ég alltaf að spila einhvers
staðar annars staðar. Þannig að það
er ekki eins og þú getir ekki gengið
hér inn án þess að heyra tónlist,“
segir Birgir sem sjálfur vill frekar
horfa á Netflix þegar hann kemur
heim eftir gigg.
Sogaðist inn í klassíkina
Birgir fór svo í inntökupróf í Lista
háskólanum þar sem hann hlaut
inngöngu. „Þá fór maður í smá
svona íþróttapakka. Ég sogað
ist einhvern veginn inn í klassíska
heiminn sem náði kannski hámarki
þegar ég vann keppni sem heitir
Ungir einleikarar og fékk að koma
fram sem einleikari með Sinfóníu
hljómsveit Íslands. Það var ein af
þessum eftirminnilegustu stundum
sem maður á í lífinu. Ég fór svo til
Stuttgart í skiptinám á síðasta árinu
sem var frábært. Þegar ég kláraði
Listaháskólann sagði ég svolítið
skilið við þennan klassíska kafla. Ég
fór að kenna í tónlistarskólanum
í Borgarnesi og hérna á Akranesi
líka. Á Akranesi er ég samt mest
búinn að vera í meðleik með ryt
hmísku söngnemendunum en líka
að kenna á píanó. Svo eftir tvö til
þrjú ár hætti ég í hlutastarfinu í
Borgarnesi og færði mig alfarið á
Akranes.“ Birgir segir kennsluna
skemmtilega og eiga vel við sig
en stundum sé erfitt að finna jafn
vægi milli kennslunnar og spila
mennsku. Hann hætti þess vegna
nýverið í starfi sínu hjá Tónlistar
skóla Akraness, þar sem hann hafði
starfað sem kennari í um tíu ár og
aðstoðarskólastjóri síðastliðin tvö
ár. Nú ætlar hann þess vegna að
einbeita sér alfarið að því að spila
og koma fram.
Lífskapphlaupið
„Ég ákvað að taka þetta stökk núna
og bara sjá hvað ég get verið í þessu
lengi, ég geri samt ráð fyrir því að
fara aftur að kenna á einhverjum
tímapunkti. Ég ákvað bara að nýta
þennan glugga sem mér fannst ég
sjá núna til að breyta til og aðeins
að slaka á. Á þessum árum frá því
ég byrjaði aftur að læra á píanó
hefur maður alltaf verið að vinna
að einhverjum áföngum og margt
skemmtilegt búið að gerast,“ segir
Birgir.
„Við Birna giftum okkur sum
arið 2012 og fluttum inn í fyrstu
eignina okkar daginn eftir brúð
kaup. Eftir útskrift úr LHÍ skellti
ég mér í nám í forystu og stjórnun
á Bifröst meðfram kennslunni í
tónlistar skólanum og spilaferillinn
fór að taka af stað. Þannig að það er
búið að vera ágætis keyrsla í gangi
upp á síðkastið og þrátt fyrir að það
hafi verið ótrúlega skemmtilegt þá
fann ég núna í haust að mig langaði
aðeins að breyta til. Strákarnir okkar
þrír, þeir Davíð Þór, Tristan Freyr
og Mikael Orri mættu líka á svæðið
hver á fætur öðrum á þessum árum
og mig langar að ná að verja meiri
tíma með fjölskyldunni. Þannig að
núna fann ég að mig langaði að
slaka aðeins á í lífskapphlaupinu og
sjá hvort ég geti einbeitt mér betur
að því sem ég tel mig hafa mestan
áhuga á og brenn hvað mest fyrir
sem er að spila, skemmta fólki og
skapa eitthvað. Það verður mjög
spennandi að prófa að vera alfarið í
því, segir Birgir.
Ballhljómsveitirnar
Birgir hefur sinnt ýmsum tónlistar
verkefnum síðastliðin 13 ár með
fram starfi sínu við Tónlistarskól
ann, m.a. spilað í nokkrum hljóm
sveitum. „Ég er mjög þakklátur fyrir
verkefnin sem mér hafa boðist. Ég
byrjaði að spila í ballhljómsveitinni
Mono árið 2009 með Hlyni Ben í
broddi fylkingar. Fljótlega eftir að
ég flutti á Skagann fór ég að spila
með þeim Orra Sveini Jónssyni
söngvara, Arnari Sigurgeirssyni
gítarleikara, Sigurþór Þorgilssyni
bassaleikara og Idda Bidda (Ingi
Björn Róbertsson) trommara. Sú
hljómsveit varð að hljómsveitinni
Bland sem hefur starfað síðan. Svo
gerðist það í byrjun sumars 2021
að Marinó Geir trommari í Stuðla
bandinu hafði samband við mig.
Þá vantaði nýjan hljómborðsleik
ara, en Sigþór Árnason vildi aðeins
hvíla sig á ballmennskunni. Við Sig
þór erum góðir vinir og ég hafði
leyst hann nokkrum sinnum af með
Stuðlabandinu svo ég ákvað að slá
til. Það hefur verið mikið ævintýri,
en við höfum spilað á alls konar við
burðum og skemmtunum. Ásamt
því að spila reglulega á árshátíðum
hjá stórfyrirtækjum þá höfum við
líka verið á stórviðburðum eins og
Lopapeysunni, Kótilettunni og
Þjóðhátíð í Eyjum. Síðasta stóra
verkefni var svo að spila á Grease
tónleikasýningu fyrir fullri Laugar
dalshöll sem mér fannst eintak
lega skemmtilegt, enda hef ég haft
mikinn áhuga á leikhúsinu,” segir
Birgir.
„Ég er svo heppinn að allt fólkið sem ég
vinn með er vandvirkt og hefur metnað
fyrir því sem það er að gera“
Rætt við Birgi Þórisson tónlistarmann
Birgir við píanóið í stofunni heima en honum finnst píanó eiga að prýða allar stofur. Ljósm. sþ.
Hjónin Birna Björk Sigurgeirsdóttir og Birgir Þórisson en þau kynntust í lúðrasveit
á Akranesi á unglingsaldri. Ljósm. aðsend.