Skessuhorn - 20.12.2022, Qupperneq 107
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 107
Leikhúsbakterían
Birgir lauk í byrjun desember við
að spila á hljómborðið í leiksýn
ingunni Sem á himni í Þjóðleik
húsinu. Hann vonar að hans bíði
fleiri verkefni á leikhússviðinu.
„Leikhúsheimurinn er mjög heill
andi og mér finnst gaman að sjá
hvernig mismunandi listgreinar
koma saman til að búa til einhverja
heildarmynd. Það eru svo margar
listgreinar sem t.d. koma saman
að einni söngleikjasýningu. Þú ert
með leikara, búningahönnuði, tón
listina, ljósahönnuði, sviðsmynd
og förðun sem saman býr til þessa
heildarmynd. Svo er leikhúsið líka
svo lifandi og mannlegt.
Ég smitaðist örugglega af leik
húsbakteríunni í Grunnskólanum
í Borgarnesi þegar sýningarnar
Grease og Litla hryllingsbúðin
voru settar upp í félagsmiðstöð
inni Óðali. Þar kviknaði örugg
lega á einhverjum perum án þess
að maður spáði mikið í því á þeim
tíma. Það var svo 2014 að við Iddi
Biddi vorum fengnir til að vera tón
listarstjórar í uppsetningu NFFA á
Gauragangi í leikstjórn Hallgríms
Ólafssonar. Þarna kviknaði aftur á
perunni og eftir þetta hef ég fengið
að tónlistarstýra nokkrum sýn
ingum, svo sem Grease hjá NFFA
og Litlu Hryllingsbúðinni með
Skagaleikflokknum.“
Eins og dádýr í
háu ljósunum
Birgir fékk svo tækifæri til að
spila í atvinnuleikhúsi í gegnum
kennara sinn við FÍH. „Ég var á
tímabili að læra jazzpíanóleik í
FÍH og talaði um það við kennar
ann minn að ég hefði mikinn áhuga
á því að spila í leikhúsi. Kennar
inn var þá sjálfur tónlistarstjórn
andi í Billy Elliot í Borgarleikhús
inu og hann bauð mér að koma og
leysa af í einhverjum sýningum. Ég
spilaði einhverjar fjórar sýningar
af Billy Elliot og það voru mínar
fyrstu sýningar í atvinnuleikhúsi. Í
kjölfarið frétti ég að það væri verið
að fara að setja upp Mamma Mia
í Borgarleikhúsinu. Þá manaði ég
mig upp í að senda skilaboð á Jón
Ólafsson tónlistarstjóra og sagð
ist hafa áhuga á að spila þar. Ein
hverju síðar sendir hann mér svo
skilaboð og spyr hvort ég vilji vera
í afleysingum á hljómborði. Ég var
að sjálfsögðu til í það. Þar kynntist
ég fullt af góðu fólki og tók þátt í
ofboðslega skemmtilegu ferli.
Þegar maður kemur inn sem
afleysingamaður fær maður bara
nóturnar og upptökur til að æfa sig
með. Sumir ná kannski einhverjum
æfingum en aðrir koma bara beint
á sýningu. Ég náði held ég einni
hljómsveitaræfingu í Mamma Mia
en undirbjó mig vel heima. En
maður mætir samt alltaf hálfvegis
eins og dádýr í háu ljósunum á fyrstu
sýninguna, segir Birgir hlæjandi.
Gefandi ferli
Í framhaldinu fékk Birgir boð um
að taka þátt í sýningunni Sem á
himni sem var sýnd hjá Þjóðleik
húsinu í haust. „Það var aðeins
önnur upplifun því núna fékk ég
að vera í byrjunarliðinu. Þá var
maður með í æfingaferlinu og sá
verkið sett saman. Maður fékk líka
að upplifa hvernig sýningin þróað
ist sem var virkilega skemmtilegt,”
segir Birgir.
Fjölbreytnin heillandi
Birgir hefur nú spilað við allskyns
tilefni en hann segist njóta sín vel
í fjölbeytninni „Ég er svo hepp
inn að allt fólkið sem ég vinn með
er vandvirkt og hefur metnað fyrir
því sem það er að gera. Þá er þetta
líka svo gaman. Allir þessir mis
munandi viðburðir og tilefni hafa
líka sinn eigin sjarma. Ég hef spilað
á rapptónleikum á Airwaves inni
á einhverjum pub, á þorrablóti í
Dölunum, ég hef spilað jazztón
leika á Eskifirði, í leikhúsunum og
á kóratónleikum. Þetta er allt gjör
ólíkt en kemur samt allt einhvern
veginn niður á sama staðnum sem
er að hafa gaman af því að skemmta
fólki og reyna að hreyfa við því á
einhvern hátt,“ segir Birgir.
Jólatörn
tónlistarmannsins
Tónlistarfólk hefur nóg að gera
á aðventunni þegar jólatón
leikaflóran hefst. Engar undan
tekningar eru hjá Birgi en í desem
ber hefur hann spilað á hinum ýmsu
viðburðum. „Stuðlabandið var með
smá tilraunaverkefni í nýja mið
bænum á Selfossi sem hét Jólahjól
Stuðlabandsins. Það var svona jóla
partý þar sem salurinn fékk að
taka þátt í lagavali og fleiru en við
seldum upp á alla viðburðina. Ég
spilaði líka á kórtónleikum á Akra
nesi og með Söngdætrum Akra
ness. Ég er líka að fara að spila 21.
desember með Rakel Pálsdóttur á
Nauthól en hún var að gefa út jóla
plötuna Jólin í hjarta mér þar sem
ég spilaði nokkur lög.
Jólin byrja snemma
Á heimili Birnu og Birgis byrja jólin
snemma. Birgir spilar inn á jóla
plötur í lok sumars og Birna byrjar
að skreyta óþægilega snemma, að
sögn Birgis. „Það var alltaf skreytt
tiltölulega seint heima þegar ég
var að alast upp, bara eftir miðjan
desem ber. Á vissum tímapunkti
vissi maður samt að það hlyti að
fara að styttast í jólin. Þá fór að ber
ast olíulykt um húsið því mamma
og pabbi báru alltaf á píanóið og
húsgögnin fyrir jólin. Þetta er nú
ekkert sérstaklega góð lykt en fyrir
mér er þetta jólalykt.
Í dag er ég er orðinn svolítið
meira tengdur jólunum og grínast
stundum með að við séum í raun
farin að halda upp á jólin hálft árið.
Ég hef t.d. tekið þátt í Skaginn
syngur inn jólin og fengið að vera
hljómsveitar eða tónlistarstjóri þar
síðastliðin þrjú ár. Það er verkefni
sem mér þykir óendanlega vænt um
en við byrjum yfirleitt að vinna í því
með haustinu og upptökur hefjast
svo í október. Svo var ég að spila
inn á jólaplötur í sumar, bara í júlí
eða ágúst. Núna eru svo þau lög að
koma út.
Birna myndi helst vilja byrja að
skreyta í október, en mér hefur tek
ist að halda aftur af henni fram í
miðjan nóvember. En það er þannig
að í desember er smá eins og jólin
hafi gubbað yfir húsið okkar,“ segir
Birgir hlæjandi. „Nei mér finnst
það reyndar bara skemmtilegt og
ekki bara út af smákökunum.“
Öðruvísi tímar
framundan
Birgir segir að flest verkefni sem
framundan eru séu á snærum
Stuðlabandsins en einnig eru ýmis
önnur verkefni í kortunum, m.a.
að aðlagast nýjum lífsvenjum.
„Það er svo aldrei að vita nema
maður spili á einhverjum jóla eða
gamlársböllum fyrir árslok. Í fram
haldinu langar mig svo að gefa út
meira efni en sjálfur hef ég verið
að gefa út tónlist á Spotify undir
nafninu The Lonely Lighthouse.
Ég hef líka verið að taka að mér
verkefni við að semja tónlist. Ég
og Róbert Rúnarsson áhugaljós
myndari gerðum t.d. saman mynd
band um fyrra eldgosið í Fagradal.
Hann skaut myndefni og klippti og
ég samdi tónlistina við. Það væri
gaman að gera meira af einhverju
svoleiðis. Ég á svolítið eftir að finna
út úr því hvernig nýir tímar verða
en fyrst og fremst ætla ég að til
einka mér nýtt lífstempó, segir
Birgir að lokum.
sþ
Synir Birgis og Birnu, þeir Davíð Þór, Tristan Freyr og Mikael Orri. Birgir sagði
nýlega upp vinnu sinni við Tónlistarskóla Akraness þar sem hann hefur starfað sl.
tíu ár en hyggst nú breyta til og verja meiri tíma með fjölskyldunni. Ljósm. glh.
Birgir er hljómborðsleikari vinsælu hljómsveitarinnar Stuðlabandsins en hljóm-
sveitin seldi upp á nokkra jólatónleika sem haldnir voru á Selfossi á liðnum vikum.
Ljósm. aðsend.
Jól 2022
Gleðileg jól og heillaríkt
komandi ár
Landmælingar Íslands