Skessuhorn - 20.12.2022, Page 109
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 109
yfirleitt dettur framleiðslan niður
á meðan. En ég gaf aldrei milli
metra eftir í að hugsa um kýrnar,
þær voru númer eitt,“ segir Steini.
Fyrir nokkrum árum var svo hætt
að nota mjaltagryfjuna og mjalta
þjónn var tekinn í notkun.
Flottur akur
Hvernær byrjarðu svo að rækta
korn? „Ég sáði í fyrsta hálfa hektar
ann þegar ég var bara 16 eða 17
ára,“ segir Steini. Ég hafði farið í
kartöfluupptökur í Þykkvabænum
og séð þar fyrstu tilraunirnar í korn
rækt. Ég var þá búinn að tala við
ráðunautana hérna og þeir fullyrtu
að það yrði aldrei hægt að rækta
korn á Mýrunum, það væri kannski
möguleiki á Suðurlandi en alls ekki
á Suðvesturlandi. En ég prufaði
samt að sá í hálfan hektara og sá þá
alveg að kornið þroskaðist jafn vel
hér og hjá þeim. Svo liðu hins vegar
árin og ég hugði ekki á búskap, var
bara að fikta. En stuttu eftir að við
Didda fórum að búa saman setti ég
í 23 hektara. Og viti menn, þetta
varð svo flottur akur. Þetta var í
upphafi níunda áratugarins. Ég fór
út til Danmerkur og keypti þreski
vél; þannig byrjaði þetta,“ segir
hann. Uppskeran í ár var eiginlega
sérdeilis góð, þrátt fyrir norðan
rok rétt fyrir þreskingu náðist um
90% hennar í hús og kemur sér vel
sem kúafóður í vetur. „Vissulega er
áhætta fólgin í því að rækta korn á
Íslandi,“ segir Steini. „En hún er
líka fyrir hendi erlendis, þeir eiga
alveg í sömu vandamálunum þar
og svo bætist hitinn við. Stundum
kviknar bókstaflega í ökrunum. En
svona er búskapurinn, maður getur
vonast eftir góðu sumri og ýmsu
slíku en getur svo engu ráðið um
hvernig fer þegar upp er staðið.“
Ný ævintýri – Kenya
Steini og Didda bjuggu saman í
meira en tuttugu ár, en ákváðu þá
að skilja. Það var ákvörðun sem þau
tóku í miklum vinskap. „Þetta var
ákveðið í miklu meira en góðu,“
segir Steini. Eftir það var hann einn
í allmörg ár þar til fyrir um tveimur
árum að hann kynntist Carol, sem
er frá Kenya. „Ég kynntist henni
gegnum vinkonu og það var eigin
lega bara óvart,“ segir Steini. „Ég
var ekkert að leita mér að konuefni.
En eftir 89 mánaða kynni gegnum
síma og myndsíma varð úr að ég fór
til Kenya til að heimsækja hana. Hún
er frá þorpi í mið Kenya, norðan við
Nairobi. Á þessum tíma var ekki
auðvelt um vik að ferðast vegna
Covid19, en ég fór nú út samt. Í
ágúst í fyrra fór ég svo út aftur og
við giftum okkur í þeirri ferð,“ segir
hann brosandi. Í mars á þessu ári
kom Carol svo til Íslands og með
henni var lítill drengur sem hún átti
fyrir. Hann heitir Jay og er núna
fjögurra ára flottur nemandi í leik
skólanum Uglukletti í Borgarnesi.
Carol
Carol kemur inn í samtalið og segir
að Jay sé þegar farinn að tala fína
íslensku, en hún eigi hins vegar enn
langt í land með það sjálf. Móður
mál hennar er svahílí, enska er
hins vegar töluð jöfnum höndum
í Kenya svo Carol er þar á heima
velli. Hún talar svahílí við son sinn
og systurdóttur sem er hjá henni
núna og blaðamaður hefur á orði
að líklega séu ekki mörg börn á
landinu sem tali svahílí og íslensku.
Aðspurð um hvernig henni líki að
vera á Íslandi segir hún að sér líki
það vel, en sé orðin dálítið þreytt
á myrkrinu sem nú ríkir, það birti
seint og dimmi snemma. Í sumar
átti hún hins vegar erfitt með að
venjast birtunni en það var hægt að
leysa með góðum gardínum. Hún
segist alltaf geta átt myndsímtöl við
fjölskyldu sína úti sem sé mjög gott
og Jay líki mjög vel í leikskólanum
og eigi góða vini.
Fjölskyldan
Carol er sú sjötta í röðinni af sjö
systkinum, en frænka hennar sem
er núna hjá henni er sú eina af
fólkinu hennar sem hefur komið í
heimsókn til þessa. Nú nálgast jólin
og þá verður gott að hafa einhvern
úr nærfjölskyldunni hjá sér. „Við
erum mjög trúuð í Kenya, segir
Carol. Trúin skiptir okkur miklu
máli, mun meira en virðist vera á
Íslandi. En svo vonast ég til að sjá
snjó bráðum, fólk hér er skiljan
lega ekki mjög hrifið af því að
hann komi, en ég hlakka til að upp
lifa hann,“ segir hún. Auk þeirra
hjóna og Jay býr móðir Steina í
húsi í grennd og barnabarn hans og
Diddu, Tinna Rut Jónsdóttir býr
einnig á jörðinni með unga dóttur
sína og sinnir tamningum og hesta
mennsku.
Steini tekur undir þetta með
trúariðkun landsmanna hér og
segir að það sé engin von til þess
að messur á Íslandi verði nokkurn
tíma eitthvað í líkingu við það sem
tíðkast í Kenya. „Við Íslendingar
erum í raun algerir heiðingjar og
sækjum aldrei messur,“ segir hann.
En úti eru þær skemmtilegar og
fólk fer í kirkju til að skemmta sér.
Þjóðfélagið er svo allt öðruvísi.“
Að kynnast landi
gegnum heimafólk
Steini segir að enska sé sjálfsögð í
Kenya og mikið sé kennt á ensku
í skólum. Hann eigi því auðvelt
með að eiga samskipti við tengda
fólkið. Svo segir hann að það sé
tvennt ólíkt að vera ferðamaður eða
fá að kynnast landinu gegnum fjöl
skyldu og vini Carol eins og hann
hefur haft tækifæri til. „Það eru for
réttindi að koma þarna með þessum
hætti,“ segir hann. „Carol er frá
þorpi sem er ekki mikið stærra en
Borgarnes. Það hefur verið gaman
að fá að kynnast lífinu þar og lífs
háttum þarna almennt. Þegar
krakkar eru orðnir 1012 ára gæta
þeir t.d. kindageita og/eða nauta
hjarða á beit yfir daginn, en svo eru
dýrin girt vandlega af á kvöldin svo
rándýr nái ekki til þeirra. Húsa
skjóls er ekki þörf.“
Ekki langt frá þorpi Carol er stór
búgarður þar sem er vökvunarkerfi
og stór tún, þar er grasið slegið
beint í skepnurnar. Þarna eru risa
gróðurhús og flestallir túlipanar og
rósir koma frá Kenya. „Blómarækt
er stóriðnaður þarna,“ segir Steini.
Hann nefnir ýmislegt fleira sem
athyglisvert hefur verið að gera, svo
sem að ferðast með heimafólki um
Maasai Mara þjóðgarðinn.
Nýtt ævintýri
Laxárholt stendur við samnefnt
vatn og þar er ákaflega víðsýnt. Það
sama gildir innan dyra, þar svífur
alþjóðleikinn yfir vötnum. Innan
skamms hefst svo nýtt ævintýri því
Carol og Steini eiga von á barni.
En Unnsteinn Smári er ekki þröng
sýnn og hefur aldrei verið hræddur
við að fara ótroðnar slóðir og taka
áskorunum. „Maður lifir bara einu
sinni,“ segir hann að lokum.
gj/ Ljósm. gj og aðsendar
Dýrabær • Stillholti 23 • Sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
GLEÐILEG JÓL!
DÝRABÆR
AKRANESI
Frá brúðkaupinu á fallegum degi í Kenya árið 2021.
Carol við einn traktoranna í Laxárholti.
Hér hafa Carol og Steini fundið hamingjuna saman.
Carol og Steini fagna fjölbreytileik-
anum.