Skessuhorn - 20.12.2022, Blaðsíða 113
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 113
Nafn: Grýla
Fjölskylduhagir/búseta: Ég
er tvífráskilin en er nú gift
Leppalúða. Bý í Skessuhorni og
ég á 13 syni sem neita að fara að
heiman og einn jólakött. Syni mína
kannast flestir við úr jólageiranum.
Starfsheiti/fyrirtæki: Sjálfstætt
starfandi hellismóðir og stjórnar
formaður eignarhaldsfélagsins
Einn og átta.
Áhugamál : Rólur, ég er nýfarin
að hafa áhuga á þeim aftur eftir að
hafa gefist upp á þeim upp úr síð
ustu aldamótum. Fluguhnýting og
þá helst úr nýföllnum veiðihárum.
Þá hef ég nýlega komist yfir
finnskan lírukassa sem ég dunda
mér oft við að spila á. Þá dansa
strákarnir mínir Viki vaka, það er
ógurlega gaman.
Dagurinn: Fimmtudagurinn 15.
desember 2022
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég sleppi alfarið svefni
í desember en bæti það upp alla
aðra daga ársins. Mitt fyrsta verk
í morgun var að skipta á legusár
inu á Leppalúða, hann er óttalega
slæmur þessa dagana enda nýstig
inn úr herðablaðaskiptum.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Alltaf það sama hér, barnaborgari
með osti.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fer ekki langt auð
vitað en fylgist með frá heimaskrif
stofunni minni í eftirlitsmynda
vélum. Þar get ég fylgst með
hvernig sveinunum gengur og er
tilbúin að grípa inn í ef eitthvað fer
úrskeiðis.
Fyrstu verk í vinnunni? Ég byrja
flesta daga á að reyna finna ærnar
mínar og kýrnar.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég að leita af kraftlyft
ingabeltinu mínu svo ég gæti tekið
nokkrar lyftur.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þá
gekk ég berserksgang með líru
kassann en ætlunin var að særa
illan anda sem tók sér bólfestu
nýlega í jólakettinum.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Þá var ég á röltinu til dýralækn
isins með kattarkvikindið en eftir
gott spjall við hann kom í ljós að
illi andinn reyndist bara vera sára
saklaus miltisbrandur.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Ég skellti
Kjötkróki í læsta hliðarlegu þar
sem það hrökk ofan i hann hárkúla
úr Jólakettinum og minnstu mun
aði að hann gleypti í sér tunguna.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Eftir
strembinn og snúinn dag gerði ég
nokkrar Mullets æfingar og gerði
heiðarlega tilraun til að stökkva í
orminn. Það fór ekki vel.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Skyrgámur eldaði dýrindis
skyrbjúgu og var með ómótstæði
lega skyrtertu í eftirmat.
Hvernig var kvöldið? Tíðinda
lítið. Tók veðrið eins og öll önnur
kvöld, ládauður sjór og skyggni
ágætt.
Hvenær fórstu að sofa?
Svaf ekkert.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Lét renna í fiskikar og skellti mér
í ísbað, tók þar nokkrar öflugar
öndunaræfingar sem endaði með
því að það gekk lægð yfir landið.
Gluggaði svo aðeins í bókina Fjár
málalæsi fyrir byrjendur.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Gleði og hamingja að
eiga 13 heilbrigða syni og hann
Leppalúða minn sem er svo ágætur
inn við viðbeinið.
Eitthvað að lokum? Við fjöl
skyldan óskum ykkur gleðilegrar
jólahátíðar. Við viljum nýta tæki
færið og minna Vestlendinga og
landsmenn alla á mikilvægi þess að
vera góð hvort við annað og vanda
til við flokkun á úrgangi á nýju ári.
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Dagur í lífi...
Grýlu
Framsókn og frjálsir óska íbúum Akraness
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs,
með þökkum fyrir stuðninginn síðasta vor.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is