Úrval - 01.12.1952, Side 115

Úrval - 01.12.1952, Side 115
Ný hraðfrystiaðferð. Ráðið til að varðveita næringar- gildi og bragð frystra matvæla er að frysta þau á sem stytztum tíma. Því styttri sem frystitíminn er, því minni verða ískristallarnir sem myndast, og smáir ískristallar valda minni skemmdum á frum- um fæðunnar en stórir. Danskir verkfræðingar hafa nýlega skýrt frá því, að þeir hafi fundið upp nýja, mjög fljótvirka frystiaðferð. Matvæli eru nú yfirleitt fryst með því að láta kælt loft leika um þau. En loft er ófullkominn hita- leiðari. Dönsku verkfræðingarnir nota vökva til að frysta matvælin í. Vökvinn er blanda af vatni, glyeeríni og ethyl alkohol, og er hann kældur niður i -í-29° á C. 1 þessu baði er hægt að kæla 12 punda nautakjötsstykki úr 0° nið- ur í -t-5° (en á því bili verður ískristallamyndunin) á tveim klukkustundum í stað fjögurra áður. Þegar frostið i matvælunum er komið niður I -t-5°, eru þau tekin úr vökvanum og sett í kæld- an loftstraum, sem kælir þau nið- ur í -f-27°, en við það stig geym- ast matvælin bezt. Auk þess sem aðferðin gegn- frystir matvælin fljótar en aðrar aðferðir, frystir hún yfirborð þeirra næstum samstundis og kemur þannig í veg fyrir að lykt eða bragð úr þeim berist út í vökvann. Ýmsar tegundir mat- væla, svo sem síld, jarðarber, blómkál, appelsínur og kjúklingar hafa verið látnar saman í frysti- vökvann án þess að þær spilltu nokkuð hver annarri. Dönsku verkfræðingarnir telja aðferð sína hafa þessa kosti fram yfir eldri aðferðir: hún er ódýr- ari í notkun, dregur úr starfsemi baktería og annars huldugróðurs, kemur í veg fyrir rýrnun, gerir ónauðsynlega bleikingu eða sykr- un ávaxta og gerir kleift að frysta „grapefruit", appelsinur, tómata, melónur og vínþrúgur í heilu lagi. Sumsstaðar, t.d. í Bandaríkjun- um, er bannað að nota ethyl alko- hol við meðhöndlun matvæla þann- ig að það komi í snertingu við matvælin. En dönsku verkfræðing- arnir segja að með aðferð þeirra frjósi yfirborð matvælanna svo snöggt, að þau nái ekki að drekka í sig neitt alkohol. —- Scientific American. Spurt og svarað. Framliald af 2. kápusíðu Yfirleitt má segja, að nota megi Giro-hreyfla í bíla og önnur farar- tæki, sem ekki hafa langa áfanga og eiga greiðan aðgang að hleðslu- stöð, því að hlaða þarf orkugeym- inn með stuttu millibili (eftir 3 til 4 km akstur). Aftur á móti tekur hleðslan ekki nema 30—40 sekúndur. Svör við „Jarðneskum spurning- um“ á 4. kápusíðu. 1 — b 6 — b 11 — a 2 — b 7 — a 12 — a 3 — c 8 — b 13 — a 4 — a 9 — b 14'— c 5 — a 10 — c 15 — b URVAL — tímarit. Kemur út 6 sinnum á ári. Ritstjóri Gísli Ólafsson, Leifsgötu 16, Reykjavík. Afgreiðsla Tjarnar- götu 4, Pósthólf 365. Fæst hjá bóksölum um land allt. ÚTGEPANDI: STEINDÓRSPRENT H.F.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.