Saga - 2020, Page 28
bréfum. Enn verra er með morðið á Skálholtsbiskupi en einu heim-
ildirnar um það eru þrír annálar sem ritaðir voru um 150–200 árum
síðar.2 Þar af leiðandi eru ástæðurnar að baki þeim átökum getgátur
einar.
Því hlýtur fyrirbærið „sögulegir tímar“ að einhverju leyti að vera
blekkjandi. Í því felst ekki endilega að svo margt og merkilegt hafi
gerst heldur að til séu margar frásagnir af því sem gerðist. Það má
alveg velta því fyrir sér hvort árið 2020 hafi burði til að verða sögu-
legur tími þegar fram líða stundir. Flæði upplýsinga er mikið og
okkur gefst auðveldlega kostur á að gefa álit okkar á þeim upp -
lýsingum en varðveisla þessa mikla upplýsingaflóðs gæti vel farið
forgörðum. Þar fyrir utan er umhverfið sem við búum við í dag ekki
af þeim toga að það hvetji okkur til að setja niður hugsanir okkar,
skoðanir og upplifanir á heildstæðan hátt. Ég verð oft undrandi
þegar ég geri mér grein fyrir því hversu mörgum ég hef sent skrifleg
skilaboð á einum degi en það eru sjaldnast meira en stakar setningar
sem erfitt er að skilja án þess að þekkja til þess samhengis sem þær
eru sprottnar úr. Þegar ég hugsa til þeirra heimilda sem ég læt eftir
mig um upplifun mína á kórónuveirufaraldrinum hugsa ég að um
fjórðungur þeirra samanstandi af setningunum „haha já“ og „úff
nei“ eða tilbrigðum við þær.
Þær heimildir sem við framleiðum um daglegt líf okkar og við -
brögð við atburðum, stórum sem smáum, eru þess eðlis að oftar en
ekki þarf að þekkja vel til samhengis til að skilja þær. Samhengi er
iðulega það fyrsta sem hverfur þegar heimildir fara í gegnum hakka -
vél tímans. Hvernig mun átta manna hópspjallið mitt á Messenger,
sem hefur líklega gengið í ein níu ár þegar þetta er skrifað, líta út
eftir 100 ár eða 500 að því gefnu að það varðveitist einhvers staðar?
Uppfullt af hlekkjum yfir á síður sem hljóta að hverfa, gif sem munu
hverfa, myndbönd sem ekki verður hægt að spila, örstuttum vísun-
um í eitthvað sem átti sér stað í raunheimum, í einum hrærigraut
við öll okkar „hehe já“? Sem betur fer hafa ýmsir aðilar stundað
markvissa heimildasöfnun á þeim aðstæðum sem sköpuðust í far-
aldrinum, til að mynda dagskrárgerðarfólk Ríkis útvarps ins með
við tölum sínum við fólk úr ólíkum áttum samfélagsins og handrita-
deild Landsbókasafns með hvatningu sinni til fólks að halda heim-
ildum um þessa tíma til haga og afhenda til varð veislu, og vonandi
munu þessar heimildir varðveitast. En þessar persónulegu heimildir
álitamál26
2 Sama heimild, 58–59.