Saga - 2020, Side 129
Peter Seixas og samstarfsmenn hans hafa haft mikil áhrif á sögu-
kennslu þar í landi og víðar síðan þau hófu þá vinnu.8 Safnað hefur
verið saman miklu efni og hagnýtri reynslu sem hverfist um kennslu
fyrrnefndra grunnatriða sögulegrar hugsunar. Annað áhrifaríkt
verk efni er á vegum Stanford-háskóla, Reading Like a Historian, þar
sem hannaðar hafa verið kennslustundir í kringum ákveðnar sögu-
legar spurningar sem nemendur leita svara við í frumheimildum af
ýmsu tagi.9 Íslenskir sögukennarar hafa nýtt sér hvort tveggja. Ef
einhver hefur efasemdir um að börn og unglingar séu færir um að
takast á við slíka heimildavinnu má benda á rannsóknir sem sýna
að nemendur allt frá upphafi grunnskólagöngu geta það.10 Þjálfun
í þeirri hæfni sem hér um ræðir stendur traustum fótum í sögulegri
þekkingu enda er markmiðið að nemendur tileinki sér sögulega
þekkingu sem byggir á skilningi á því hvernig hún verður til. Þau
sem læra sögu á þennan hátt, og skiptir þá engu hvort um er að
ræða Íslands- eða mannkynssögu, forna eða nýja, læra að spyrja
sögulegra spurninga, greina orsakasamhengi, bera saman og túlka
með stuðningi heimilda. Þarna fer saman að læra sögu og að „gera“
sögu eins og það hefur verið kallað.11
Einhverjir spyrja eflaust hvort ástæðan fyrir því að árið 2020 sé
enn verið að gefa út námsefni á borð við Íslands- og mannkynssögu 2
hér á landi sé sú að ætlast sé til yfirborðskennds en víðtæks yfirlits
fremur en að kafa eigi dýpra í valin viðfangsefni. Því er óhætt að
svara neitandi. Í Aðalnámskrá framhaldsskóla sem er frá árinu 2011 eru
engin fyrirmæli sem varða sögukennslu sérstaklega, hvorki hvað
varðar inntak né aðferðir. Kennarar hafa því algerlega frjálsar hend-
ur. Eins og kennurum á öðrum skólastigum er þeim hins vegar gert
að endurspegla sex grunnstoðir menntunar en ein þeirra er lýðræði
og mannréttindi. Undir þann póst er sett lykilhæfni á borð við „ber
virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra“, „getur sett fram
eigin skoðun og tekið þátt í rökræðum“, „tekur gagnrýna afstöðu til
sögukennslan sett í skammarkrókinn 127
8 Vef. historicalthinking.ca. The historical thinking project, sótt 25. ágúst 2020.
9 Vef. „Reading like a historian. History lessons,“ sheg.stanford.edu/history-
lessons. Stanford history education group, sótt 25. ágúst 2020.
10 Um það hafa t.d. Keith Barton og Linda S. Levstik fjallað í bók sinni, Teaching
History for the Common Good (Mahwah, NJ: Earlbaum, 2004).
11 Sjá t.d. Lindu S. Levstik og Keith Barton, Doing History: Investigating with
Children in Elementary and Middle Schools (New york og London: Routledge,
2015).