Læknaneminn - 01.10.1993, Síða 44

Læknaneminn - 01.10.1993, Síða 44
Auka þarf vituud um þessi vandamál hjá almenningi í samvinnu heilbrigðisstétta og fjölmiðla. Á íslandi ætti það að vera miklu léttara en viðast erlendis. Hafa ber í huga að ef upplýstur einstaklingur veikist af berklum eru minni líkur á að meðferðin misfarist. Með framförum í bakteríufræði er nú mcð nýrri tækni unnt að fá ræktunamiðurstöður og næmispróf á berklabakteríum a.m.k. helmingi fyrr en áður var. Rannsóknastofa Háskólans í sýklafræði hefur séð fyrir bættri greiningu og næmisprófi að þessu leyti. Það á alltaf að gera næmispróf. Ef vafi er á að sjúklingurinn fylgi forskrift um lyfjatöku verður að nota eitthvert kerfi þar sem fylgst er með hvenær og hvemig lyfin em tekin hvort sem um er að ræða spítalavist, göngudeildanneðferð eða lyfjatöku heima undir eftirliti heiinalijúkmnar. Enn er vandinn ekki slíkur hérlendis að ástæða sé til að grípa til þess hjá öllum. Ef engin fyrri saga er um lyfjameðferð og líkur em á að sjúklingur hafi smitast hérlendis á að gefa a.m.k. þrjú lyf fyrstu tvo mánuðina þ.e. rífampín, ísóníazíð og pýrazínamíð uns næmispróf berast. Nú er sums staðar mælt með því að gefa alltaf fjögur lyf í byrjun, líka í löndum þar sem nýgengi berkla er lágt og lyfjaviðnám sjaldséð (17). Bent er á að ef etambútól er valið sem 4. lyf verði viðbótarkostnaður ekki mikill. Ef sjúklingur kemur frá eða gæti hafa smitast í landi þar sem mikið er um berklabakteríur með lyfjaviðnám fyrir einu lyfi á að gefa a.in.k. fjögur lyf fyrstu tvo mánuðina R, H og Z og streptómýcín (S) eða etambútól (E) og taka hráka í ræktmi og næmispróf í upphafi. Ef sjúklingur hefur fengið berklalyfjameðferð áður (í einn mánuð eða lengur) og hætta er á lyfjaviðnámi fyrir meira en einu lyfi á að hefja meðferð með fimm lyfjum (t.d. HREZS með mið af fyrri lyfjasögu) uns niðurstaða úr næmisprófum liggur fyrir. NOKKUR AIRIÐIUM MEÐFERÐ BERKLA Á ÍSLANDI Innflutningur fólks til íslands er nú um 400 á ári. Það er mikilvægt að siima þessu fólki vel. Með tilliti til berklavama þarf hér sérstakt eftirlit og meðferð þar sem hún á við. Lungnamynd og berklapróf eru óhjákvæmilegur hluti af skoðun þegar beðið er um heilbrigðisvottorð hjá læknum vegna atvimiuleyfis og/eða dvalarleyfis. Ef ekkert bendir til smitunar með berklabakteríum og lungnamynd er eðlileg er málið fljótafgreitt. Ef berklapróf er jákvætt verður að skýra út eðli málsins og taka afstöðu til fyrirbyggjandi meðferðar. Á þessu vill stundum verða misbrestur. Einnig kemur fyrir að læknar ákveða að byrja meðferð en gefast upp þegar örðugleikar koma upp, fólkið mætir ekki í eftirlit og það þarf að fara að eltast við það. Læknar virðast smndum vanmeta þá erfiðleika sem geta verið því samfara að framkvæma meðferðina, Ld. tímafrekar útskýringar og vottorðaskrif. Oft eru tungumálaörðugleikar á báða bóga og framandi menningarheimar mætast með misjöfnum árangri. Ættingjar og vinir þreytast á að mæta með sem túlkar enda er fátítt að þeir fái greitt fyrir vinnu sína við það. Fái innflytjendur fyrirbyggjandi meðferð jafnóðum og þeir koma dl landsins tryggir það, að öðru óbreyttu, áframhaldandi lækkun á heildarnýgengi berkla hérlendis. Þetta er fyllilega gerlegt og raunhæft. Á Lungna- og berklavamadeild eru nú fleiri tugir meðhöndluð með fyrirbyggjandi meðferð á ári en er reyndar breydlegt eftír sveiflum í tölu innflytjenda. Gróft áætlað má þanmg fyrirbyggja eitt berklatilfelli með því að meðhöndla 10 nýsmitaða. Það skal tekið fram að við smitandi berkla verða oftast flestar nýsmitanir í innsta umgengnishring þ.e. meðal fjölskyldu og náinna vina. Við vitum að einstaklingar með smitandi berkla hérlendis eru með einkenni í um 3 mánuði áður en þeir greinast. Þar eð torvelt hefur reynst að minnka þennan tíma ríður á að fækka dlfellunum (5). Bæði fyrirbyggjandi meðferð og sjúkdómsmeðferð berkla á að vera einstaklingum að kostnaðarlausu, bæði lyf og heimsóknir. Öðruvísi verður meðferð illframkvæmanleg. Þetta er þjóðfélaginu í hag ekki síður en sjúklingnum. Meðferðina á helst að framkvæma á einum stað þ.e. á Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur enda hefur meirihlud tilfella verið meðhöndlaður þar síðusm árin. Ef berklar greinast hjá iimiliggjandi sjúklingi á spítala þarf auðvitað oft að heíja meðferð tafarlaust en rétt er, efdr útskrift, að vísa til framhaldandi meðferðar á Lungna- og berklavamardeild. Meðferð berkla á einum stað eflir berklavamir en dreifing og fjölgun meðferðaraðila veikir þær. Þróun berklaima erlendis bendir ekki dl að nú sé réttí tíminn fyrir íslendinga að breyta eða draga úr berklavömum. Ef lög um berklavamir frá 1939 verða felld úr gildi er mikilvægt að fella inn í önnur lög ákvæði berklalagamia um að meðferð berklasjúklinga eigi að vera þeim að kostnaðarlausu. 42 LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.