Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 8
Félags læknanema og stjórnar
Félags ungra lækna (FUL). Tveir
fulltrúar stjórnar FL eiga sæti í
stjórn FUL. Margt hefur verið að
gerast í FUL á síðasta starfsári og má
þar helst nefna málefni neyðarbíls
og kjaraviðræður við ríkissjóð.
Þessi málefni snerta læknanema
mikið sem framtíðarunglækna. Er
framganga yfirstjórnar LSH þegar
hún tók einhliða ákvörðun um að
hætta að hafa lækni á neyðarbíl
nokkurt umhugsunarefni. Slíkt
er að mati stjórnar FL og stjórnar
FUL mikil afturför. Kjarasamningur
lækna er laus 30. apríl nk. og hafa
kjaraviðræður farið hægt af stað en
von er á meiri fréttum þegar líða
tekur á vorið. Af öðrum málefnum
má nefna vinnu við að kynna FUL
fyrir læknanemum sem stjórn FL og
Vignir Sigurðsson sem gegndi
embættinu. Hlutverk fulltrúaráðs er
að sjá um vísindaleiðangra félagsins,
skemmtanir, árshátíð og íþróttaiðkun
félagsmanna. Árshátíð er stærsti
atburður sem fulltrúaráð skipuleggur
ásamt formanni og varaformanni
stjórnar FL. Fjölmargir aðrir atburðir
eru einnig haldnir, til að mynda tvö
fótboltamót, stráka- og stelpukvöld,
tvö snókermót, læknaleikar, jólaglögg
annars árs og skíðaferð, svo eitthvað
sé nefnt.
Árshátíð félagsins var haldin 14.
mars á Hilton Hotel Nordica.
Fulltrúaráð ásamt formanni og
varaformanni stjórnar FL koma
að skipulagningu árshátíðar og
mynda saman árshátíðarnefnd.
Undirbúningsvinna hófst strax á
af þeim félögum sem eiga aðild að
Félagi læknanema. Ástráður verður
þannig sjálfstætt félag innan Félags
læknanema. Er þetta sannarlega
mikið framfaraskref þar sem FL og
Ástráður vinna bæði gott starf fyrir
læknanema og hafa því sameiginlega
hagsmuni á mörgum sviðum.
Góð samvinna er á milli stjórnar
stjórn FUL standa saman að.
Af fulltrúaráði
í stjórn fulltrúaráðs eiga sæti átta
nemendur. Tveir af fyrstu tveimur
árunum og einn af síðustu fjórum
árunum. Formaður nefndarinnar
kemur af þriðja námsári og þetta
starsárið var það Guðmundur
fyrstu mánuðum starfsársins. Þetta
árið var árshátíðin ein sú glæsilegasta
sem haldin hefur verið og heppnaðist
mjög vel enda var öll skipulagning
vandlega unnin. Vikuna fyrir
árshátíð var ýmislegt um að vera og
atburðir voru alla dagana. Mánudag
og þriðjudag var haldið gríðarlega
flott dansnámskeið sem var mjög vel
8
Læknaneminn