Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 67
Blóðgjafamánuður
Háskóla íslands
Lýðheilsufélag læknanema stóð fyrir blóðgjafamánuði
í annað skiptið nýverið. í fýrra var mánuðurinn
prufukeyrður á læknanemum og heppnaðist hann
vel í alla staði. Þá söfnuðust alls 62 blóðgjafir frá
læknanemum. í ár færði félagið út kvíarnar og skipulagði
blóðgjafamánuð fýrir allan Háskólann. Sem fyrr fengum
við Blóðbankann í lið með okkur og aðstoðaði starfsfólk
hans félagið við undirbúning og skipulagningu. Ákveðið
var að hafa samkeppni á milli deilda Háskólans og myndi
það nemendafélag sem væri með hæst hlutfall blóðgjafa
hljóta farandbikar í boði Vodafone. Mánuðurinn var
svo settur þann 3. mars með málþingi um blóðgjafir og
ungt fólk. Fengum við Svein Guðmundsson yfirlækni
Blóðbankans, Sigríði Ósk Lárusdóttur starfsmann
Blóðbankans og Þórð Kristjánsson meðlim í stjórn
Blóðgjafafélagsins til að halda erindi um alþjóðlegt
umhverfi blóðgjafastarfsemi, um blóðgjafa og til að segja
frá reynslu blóðgjafa. Síðar í mánuðinum voru svo haldnir
örfyrirlestrar um málefni sem tengdust blóðgjöfum eins
og stofnfrumur og framleiðslu á blóðhlutum. Sérstakt
málþing var haldið fyrir læknanema eins og árið áður
og var það haldið á Læknagarði. Þangað kom starfsfólk
Blóðbankans og fjallaði um málefni tengd blóðgjöfum
sem snerta læknanema. Sérstakur gestur á málþinginu var
Tómas Guðbjartsson hjarta-og lungnaskurðlæknir sem
kynnti tilfelli þar sem blóðgjafir höfðu verið mikilvægur
hluti af meðferð sjúklings. Blóðgjafamánuðurinn
endaði með lokahófi þann 4. apríl. Þar afbenti Sveinn
Guðmundsson yfirlæknir Blóðbankans sigurvegara
mánaðarins glæsilegan farandbikar. Stóð harðasta
keppnin á milli FL og Hvarfs (félag efna-, lífefna-, og
efnaverkfræðinema). Félag Læknanema stóð að lokum
uppi sem sigurvegari og tók Valentínus Þór Valdimarsson,
formaður FL, við bikarnum til varðveislu í eitt ár.
Arangur mánaðarins var glæsilegur en alls söfnuðust
138 blóðgjafir frá háskólanemum. Það var að sjálfsögðu
niarkmið mánaðarins að fá sem flestar blóðgjafir en
bikarinn aðeins til hvatningar.
Lýðheilsufélag læknanema vonast til að
blóðgjafamánuðurinn festist í sessi sem árlegur
viðburður í HÍ. Með þessu vill félagið vekja athygli
háskólanema á nauðsyn blóðgjafa og hvetja sem flesta
til að gerast blóðgjafar. Lýðheilsufélag læknanema vill
þakka læknanemum og öðrum háskólanemum fyrir
frábæra þátttöku í ár og vonast til að þeir geri enn betur
að ári!
Fríða Guðný Birgisdóttir
2. árs læknanemi
Myndir:
Sveinn Guðmundsson,
yfirlæknir Blóðbankans,
tilkynnir sigurvegara
blóðgjafamánaðarins 2008
Valentínus Þór Valdimarsson,
formaður FL, tekur við
veglegum sigurlaunum fyrir
hönd læknanema
Læknaneminn
67