Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 32
3. árs verkefni í Calgary
Kanada
Elín Maríusdóttir
4. árs læknanemi
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
Kanada, enda er ég fædd þar og er
kanadískur ríkisborgari. Ég ákvað því
að gera 3. árs rannsóknarverkefnið
mitt í Kanada. Þetta var kjörið
tækifæri til að kynnast landi og þjóð.
Einnig langaði mig til að kynna mér
skólakerfið í Kanada ogþá sérstaklega
hvernig námi í læknisfræði er háttað
þar.
í byrjun vissi ég ekkert hvað ég var
að hætta mér út í en þetta reyndist
alveg frábært að öllu leyti. Ég komst
að því í umsóknarferlinu að á milli
Háskóla íslands og Háskólans í
Calgary eru skiptinematengsl og
stendur nemendum læknadeilar HÍ
til boða að fara í skiptinám þangað.
Calgary er stærsta borg Albertafylkis
og liggur rétt við fegurstu Ijöll í
heimi, kanadísku Klettaíjöllin.
Ég hafði samband við Benedikt
Hallgrímsson prófessor við
Háskólann í Calgary og tengilið
HÍ í Calgary. Hann reyndist mjög
hjálplegur. Það má alveg segja að
hann hafi reddað öllu fyrir mig: Góðu
verkefni og meira að segja húsnæði.
Meðan á dvöl minni stóð bjó ég
heima hjá Hallgrími og Guðrúnu
konu hans en þau hafa búið í Kanada
í fjöldamörg ár. Hallgrímur er læknir
á Foothills Hospital sem og prófessor
við Háskólann í Calgary. Hann
hefur unnið að því ásamt fleirum að
koma á skiptinámi milli háskólanna.
Samningur um þetta efni milli
læknadeildar Hl og LSH annars
vegar og læknadeildar University of
Calgary og Calgary Health Region
hins vegar var undirritaður í Calgary
fyrir 2 árum síðan. Þessi samningur
gerir nemendum HÍ kleift að fara í
skiptinám til Calgary.
Það var alveg æðislegt að vera í
Calgary þennan tíma og einnig
frábært að fá að kynnast Kanada
og lífinu í öðru landi en íslandi. Ég
fór m.a. á skíði í Klettafjöllunum,
í margar grillveislur og á tónleika
ásamt mörgu öðru skemmtilegu.
I Háskólanum í Calgary er
mjög öflug rannsóknaraðstaða á
heimsmælikvarða og gat ég valið
eftir mínu áhugasviði á hvaða
rannsóknarstofu ég gerði verkefnið.
Ég fékk verkefni hjá Dr. Jay Cross
sem er dýralæknir að mennt.
Jay er þekktur fyrir rannsóknir
sínar í stofnfrumulíffræði og
sameindalíffræði, sérstaklega
í tengslum við æxlunar- og
fósturfræði. Hann stýrir stórri og
fjölmennri rannsóknarstofu sem
gerir einkum rannsóknir á músum.
Rannsóknarstofan vinnur með
stofnfrumur en einnig með fylgju
og hjartavöðva í músum svo eitthvað
sé nefnt. Rannsókn mín beindist að
frumutjáningu í fylgju músa.
Fjölmargar aðrar rannsóknastofur
eru í tengslum við læknadeildina og
aðstaðan til rannsókna er mjög góð.
Ég lærði ýmislegt á þessum tíma, ekki
bara um fylgjuna og rannsóknarstörf
heldur líka um þetta umhverfi. Það er
afar hörð samkeppni í þessum bransa.
Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu
mikil samkeppni er um að fá að
stjórna sinni eigin rannsóknarstofu
en það er helsta takmark flestra sem
ég vann með.
Á rannsóknarstofunni fékk ég
leiðbeinanda sem heitir Dave Natale
og er ungur líffræðingur. Dave
hefur þegar skrifað þölda greina
um fylgjuna og þá sérstaklega
stofnfrumu-markera í fýlgju músa.
Einnig vann ég mikið með Dave
Simmons enhann stundarrannsóknir
á genatjáningu í fýlgjunni. Þeir sem
og allir aðrir voru duglegir að kenna
mér og hjálpa.
Snúum okkur aðeins að verkefninu
mínu. Fylgja spendýra er gríðarlega
mikilvægt líffæri sem sér vaxandi
fóstri fyrir öllum næringarefnum
og því súrefni sem það þarfnast.
Ennfremur myndar fylgjan mikið
af hormónum og vaxtarþáttum
sem hafa áhrif á líkama móður og
fósturs.
Gallar í vexti og þroska fylgjunnar
eru orsök marga sjúkdóma
tengdum meðgöngu. Meðal annars
er talið að meðgöngueitrun (pre-
eclampsia) stafi af vanstarfsemi
fylgjunnar. Einnig er vitað að gallar
í vexti og starfsemi fylgjunnar valda
vaxtarskerðingu fósturs og lágri
fæðingarþyngd. Nýlegar rannsóknir
hafa sýnt fram á tengsl milli lágrar
32
Læknaneminn