Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 22
Umbætur í heilbrigðiskerfinu - Er einkarekstur svarið?
MARKAÐSVÆÐING ER
EKKI SVARIÐ
Ögmundur Jónasson,
Þingmaður VG og formaður
BSRB”
Á undanförnum misserum hefur
farið fram nokkur umræða um
skipulagsbreytingar í heilbrigðis-
kerfinu hér á landi. Ég er í hópi þeirra
sem hafa gagnrýnt þessar breytingar
og vísað í því sambandi í ítarlegar
rannsóknir sem gerðar hafa verið í
Bretlandi, Nýja Sjálandi og víðar þar
sem heilbrigðiskerfið hefur verið
markaðsvætt.
Niðurstaðan er sú að markaðs-
væðingin hefur haft í för með sér
félagslega mismunun, aukinn kostnað
fyrir samfélagið og rýrari starfskjör
fýrir starfsfólkið. Lakari kjör fyrir
starfsfólk eru að vísu ekki einhlít,
því oftar en ekki hafa kjör stjórnenda
stórbatnað, sem og sumra sérhæfðra
starfsmanna, en kjör annarra hafa
rýrnað til muna og álag aukist.
Það er sammerkt með markaðs-
væðingunni alls staðar þar sem
hún hefur verið innleidd að reynt
hefur verið að láta líta svo út að um
smávægilegar breytingar sé að ræða,
allt í anda hagræðingar og skilvirkni.
Þegar upp hefur verið staðið hafa
menn hins vegar setið uppi með
óskilvirkara en jafnframt dýrara kerfi
sem hefur haft félagslega mismunun
í för með sér. Læknar og aðrar
heilbrigðisstéttir hafa sums staðar
stutt þessar breytingar og tekið fullan
þátt í þeim og þar með talið sig vera
að auka svigrúm sitt og frelsi. Ýmsir
hafa síðan vaknað upp við þann
vonda draum að vera launafólk á
einkareknum stofnunum í eigu aðila
sem heimta hámarksarðsemi - ofan i
eigm vasa.
Hvatt til umræðu
í þessari grein langar mig til að vekja
athygli á þeirri þróun sem á sér nú stað
innan íslenska heilbrigðiskerfisins
jafnframt því sem ég hvet samfélagið
allt til að vakna til vitundar um þær
breytingar sem verið er að gera á
heilbrigðisþjónustunni, sjálfri þunga-
miðju velferðarsamfélagsins.
í júní árið 2006 gáfu Samtök
atvinnulífsins út bækling þar
sem talað var fyrir einkavæðingu
heilbrigðisþjónustunnar. Þar voru
tíundaðir meintir kostir einka-
rekinnar heilbrigðisþjónustu og að
þess væri ekki langt að bíða að hér
litu dagsins ljós einkasjúkrahús.
Sjálfur landlæknir tók undir þessa
framtíðarspá í viðtali sem birtist í
þessu riti atvinnurekenda. Sigurður
Guðmundsson landlæknir sagði
þar m.a.: „Ég held að það sé rétt að
einkasjúkrahús sé aðeins spurning
um tíma. Ég held að það sé ekki
spurning um hvort heldur hvenœr og
grundvöllurinn fyrir þeirri skoðun
er að við erum komin svo langt eftir
þeirri leið“.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
á þeim skamma tíma sem liðinn er
frá útgáfu þessa bæklings atvinnu
rekendasamtakanna. Sem nýlegt
dæmi má nefna að fyrirtækin InPro
og Medica hafa sameinast í nýju
fyrirtæki, Heilsuverndarstöðinni
ehf. Á heimasíðu Heilsuverndar-
stöðvarinnar nýju segir að samruni
fyrirtækjanna hafi átt sér stað í
ágúst 2007 og sé „nafnabreytingin
síðasta þrepið í samrunaáætlun
fyrirtœkjanna“.
„Spennandi verkefni“
Á heimasíðu fyrirtækisins segir
ennfremur að framundan séu „fleiri
tœkifœri til þess að takast á við“ og
„spennandi verkefni". Hvaða verkefni
skyldi Heilsuverndarstöðin ehf. telja
sérstaklega spennandi? Hinn 17.
mars sl. birtist frétt um það á vefsíðu
Heilsuverndar stöðvarinnar að
fyrirtækið hefði samið við Kaupþing
banka „um að bjóða viðskiptavinum
bankans, sem eru í Vexti, 20% afslátt af
mánaðargjaldiVelferðarþjónustunnar“.
Fram kemur að um sé að ræða nýtt
framtak í þjónustu við einstaklinga
á Islandi og hafi Kaupþing að mati
forsvarmanna „ sýntfrábærtfrumkvæði
með því að veita Vaxtarfélögum
auðvelt aðgengi að þjónustu og ráðgjöf
á öllum sviðum velferðar. tþjónustunni
felst meðal annars heilsufarsskoðun,
lífstílsráðgjöf hjónabands- og
fjölskylduráðgjöf lögfræðiráðgjöf
fjármálaráðgjöf sálfræðiráðgjöf
áfallahjálp, ráðgjafarþjónusta
geðlœknis eða geðhjúkrunarfræðings,
áskrift að Doktor.is, aðgengi að
símaráðgjöf hjúkrunarfræðinga
og ýmislegt fleira“ Talsmaður
fýrirtækisins, Teitur Guðmundsson
læknir, útlistaði þetta nánar í viðtali
í Speglinum í RÚV 27. mars sl. Þar
sagði hann að samningurinn við
gull- og platínukorthafa Kaupþings
22
Læknaneminn