Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 57
gróandatíma. Flipanum er velt til
hliðar í átt að skaddaða fingrinum,
fingurgómurinn saumaður við
flipann og tökustaðurinn þakinn
með húðgrafti. Skilið er á milli
tengingar við næsta fingur í gegnum
stilkinn eítir þrjár vikur. Þetta getur
bætt gómfyllinguna verulega en skyn
verður alltaf slcert ásamt einhverri
viðkvæmni og kuldaóþoli. Einnig er
hætta á kreppu í miðlið fingra.
Ef bein stendur fram úr mjúkvefjum
rná klípa af beini þannig að það falli
inn undir þá og síðan meðhöndla líkt
°g einfalda áverka með sáraumbúðum
°g zinkplástri. íhuga þarf flipaaðgerð
(V-Y, krossaðan fingurflipa, thenar
flipa, Moberg flipa) ef af einhverjum
ástæðum er vilji til að reyna að halda
lengdinni. Slíku fylgir þó alltaf lélegt
skyn í enda fingursins.
Afhönskun (degloving) er enn eitt
afbrigði af fingurmissi. Hanskinn er
þá gerður úr mjúlevefjum (cutis og
subcutis) og eftir verða bein, liðbönd
°g sinar. Þetta gerist til dæmis við að
hringurfestistí einhverj uogrífurmeð
sér mjúkvefina (ring avulsion) eða
við klemmuáverka. Endurtenging er
erfið við slíkan áverka, æðar og taugar
eru laskaðar langt út eftir fingrinum
°g því illmögulegt að tengja á
rnilli. Þegar það tekst er árangur
oftast slæmur hvað varðar skyn og
viðkvæmni og leiða þessir áverkar
því oft til þess að viðkomandi fingur
er fjarlægður. Þumallinn hefur þarna
sérstöðu, en mikilvægt er að reyna að
halda honum og því meiri tregða til
að fjarlægja hann í byrjun. Eittafþví
sem má reyna er svokallaður náraflipi
sem er stilkaður flipi sem grein frá
iliaca æðinni nærir. Þá er þumallinn
saumaður í flipann og þremur vikum
síðar er skorið á stilkinn.
Afleiðingar stýfingsáverka áfingureru
ýmsar. Sú auglj ósasta er sj álfstyttingin.
Aðrar mögulegar afleiðingar eru
skyntap, skynbrenglun, ofurnæmi,
kuldaóþol, klónögl, naglrestar
og taugahnoðsverkur. Missir á
löngutöng eða baugfmgri hátt uppi
(proximalt) eða nálægt hnúaliðum
getur leitt til þess að aðlægir fingur
vilja krossast við beygju sem auðvitað
skerðir alla færni handarinnar.
Endurágræðsla (replantation):
Að græða á hendi eða fingur sem
hefur farið af er tímafrek aðgerð
sem krefst færni í því að vinna í
smásjá. í meginatriðum gengur
slík aðgerð þannig fyrir sig að fyrst
er höndin eða handleggurinn og
stúfurinn undirbúinn þannig að allir
helstu strúktúrar eru leitaðir uppi og
undirbúnir. Síðan er byrjað á að festa
bein saman og fæst þannig stöðug
tenging milli handar og stúfs. Rétti-
og beygjusinar eru saumaðar og síðan
taugar. Þá er smásjáin telcin inn og
gerð tenging á slagæð eða slagæðum
og þarf oftar en ekki að nota
bláæðagraft. Að lokum eru bláæðar
tengdar en fyrir hverja slagæð sem
er saumuð eru tvær bláæðar tengdar.
Það má reikna með að það taki um
6 klst. að græða á einn fingur ef allt
gengur án vandkvæða fyrir sig. Ef
æðatenging er ekki að virka má
reikna með að það taki um eina klst.
að taka hana upp á nýtt.
Tæknilega er hægt að græða á
fingurgóm en ávinningur af slíku er þó
umdeilanlegur. Við endurágræðslu
fingurs má reikna með varanlegum
stirðleika sem og skertu skyni vegna
taugaáverka. Einnig er viðbúið
að viðkvæmni eins og við aðra
taugaáverka sé til staðar, þar á meðal
kulvísi. í verstu tilfellum er ágræddi
hlutinn eins og dauður, viðkvæmur
aðskotahlutur sem bara þvælist
fyrir. Eftir ágræðslu er sjúklingurinn
inniliggjandi í að minnsta kosti viku
á blóðþynnandi meðferð, sýklalyfjum
ogmegniðaftímanumírúmlegu. Við
bláæðavandamál getur þurft að grípa
til meðferðar með blóðsugum eða
enduraðgerð. Við slagæðavandamál
er enduraðgerð helsti kostur. Eftir
útskrift tekur við krefjandi þjálfun
og iðulega líður langur tími þar til
viðkomandi er vinnufær á ný.
Með hliðsj ón afþví semaðframansegir
er ekki rétt að reyna endurágræðslu
í öllum tilfellum. Hana á þó alltaf
að bjóða ef um verulegan hluta af
þumalfingri er að ræða. Einnig er
ástæða til að íhuga endurágræðslu
ef meira en einn og hálfur af öðrum
fingrum hefur tapast. Ef um börn
er að ræða gilda aðrar forsendur því
þau geta náð miklu betri árangri en
fullorðnir, til dæmis geta börn innan
við tíu ára aldur fengið alveg eðlilegt
skyn á ný.
Læknaneminn