Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 44
A hundrað ára
afmæli Klepps
I tilefni af hundrað ára afmæli Klepps kom bókin „Kleppur
í 100 ár“ eff ir Óttar Guðmundsson, geðlækni, út síðastliðið
haust. I bókinni er rakin merk saga Klepps og geðlækninga
hér á landi. Til að gefa lesendum Læknanemans innsýn í
þetta áhugaverða efni fór ritstjórnin þess á leit við Óttar
að hann ritaði grein í blaðið um valda þætti úr bókinni.
Fer greinin hér á eftir.
Óttar Guðmundsson
Geðlæknir
Mynd: Kápa nýrrar bókar
Óttars Guðmundssonar um
Klepp
Ottar Giiðmundsson
Kleppur
■ ■ ' I /A/A
í 100 ór
Kleppur í 100 ár
Fyrir réttum 100 árum tók geðveikrahælið á Kleppi
til starfa inn við sundin blá. Allar götur síðan hefur
Kleppur verið hluti af íslenskri heilbrigðissögu, íslenskri
menningu og samtíð. Geðveikt fólk hefur ávallt átt
griðastað í þessum hvítu byggingum sem eitt sinn voru
í útjaðri lítils kauptúns en standa núna í miðri borg. A
þessari öld hafa geðlækningar og hlutverk spítalans
gjörbreyst. Hann er ekki lengur sú geymslustofnun sem
hann eitt sinn var heldur endurhæfingar- og göngudeild
þar sem stunduð er geðmeðferð sem miðar að því að sem
allra flestir sjúklingar geti lifað sem eðlilegustu lífi úti í
samfélaginu. Einu sinni áttu sem flestir að leggast inn í
sem lengstan tíma en nú eiga sem fæstir að liggja inni og
þá sem allra skemmst.
Saga Kleppsspítala er mikil örlagasaga sem endurspeglar
sögu íslands þessi síðustu 100 ár. Þjóðin fór á heljarstökki
úr moldarhreysum sínum inn í tuttugustu öldina en
tók með sér gamla fordóma, fáfræði og sérkenni sín.
Tuttugasta öldin einkenndist af hörðum stéttaátökum,
kreppu, stríðsgróða, köldu stríði stórveldanna, mikilh
fólksfjölgun, flótta af landsbyggðinni til bæjanna, þenslu
og vaxandi velmegun. Reykjavík breyttist úr frumstæðu
þorpi í nýtískulega bílaborg.
Fyrir orðastað Hannesar Péturssonar, prófessors, féllst ég
á að færa þessa sögu í letur og bókin Kleppur í 100 ár kom
út fyrir síðustu jól. Þetta var um margt mjög skemmtilegt
verkefni en erfitt. Ég uppgötvaði fljótlega að mikið
vantaði af heimildum og mörgu hafði verið fleygt af alls
konar gögnum sem nauðsynleg eru talin til að skrifa megi
sögu sem þessa. Ég varð því að leita víða fanga svo að mér
tækist það ætlunarverk mitt að skrifa sögu sjúkrahússins
og þeirra sem þar störfuðu og þeirra sjúklinga sem þar
drápu niður fæti um lengri eða skemmri tíma. Auk þess
vildi ég skrifa sögu þess samfélags sem skapaði og mótaði
Klepp og varð fyrir áhrifum af spítalanum.
44
Læknaneminn