Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 6
Valentínus Þór Valdimarsson
Formaður Félags læknanema
Af starfi Félags
læknanema
Félag læknanema er 75 ára um þessar
mundir. Félagið var stofnað árið
1933 af þeim Baldri Johnsen, Bjarna
Jónssyni og Ólafi Geirssyni til þess að
vinnaað hagsmuna- ogfræðslumálum
læknanema. „Félag læknanema lætur
sig allt það skipta, sem varðar hag
eða fræðslu læknanema. Félagið
heldur uppi fundarstarfsemi, og
hafa læknar verið fengnir til þess að
flytja erindi um læknisfræðileg efni
á fundum” eins og segir í bókinni
Saga Háskólans frá árinu 1961.
Innan félagsins starfa læknanemar
af öllum námsárum en félagið
hefur að geyma stjórn, fulltrúaráð,
kennslu- og fræðslumálanefnd,
ráðningastjóra, alþjóðanefnd og
ritstjórn Læknanemans. Vonandi
mun einnig Ástráður, forvarnarstarf
læknanema, bætast við hópinn en
vonir standa til þess að svo verði á
næsta aðalfundi félagsins. Einnig eru
starfandi lesstofustjórar, ljósmyndari
félagsins og ritstjóri heimasíðunnar.
Félagið kemur víða við og óhætt er
að segja að það reki eina öflugustu
starfsemi nemendafélags á landinu
öllu. Hlutverk félagsins er að hafa
forgöngu í félagslífi læknanema, efla
fræðslu þeirra og almennings, gæta
hagsmuna og vera fulltrúi læknanema
innan háskólans og utan. Félagið
kappkostar við að hafa samvinnu
við samtök lækna og læknanema
innan lands sem utan, gefur út blaðið
Læknanemann, heldur úti heimasíðu,
sér um kjaramál læknanema og styður
við starf undirfélaga. Nefndir innan
félagsins gegna mjög ólíkum störfum
en saman mynda þau sterka liðsheild
sem heldur uppi starfi félagsins,
læknanemum til mikils sóma.
Af störfum stjórnar
Félags læknanema
starfsárið 2007-2008
í stjórn Félags læknanema eiga
sæti nefndarmenn af öllum árum
læknisfræðinnar. Formaður kemur
úr röðum 5. árs nema, varaformaður
og gjaldkeri úr röðum 4. árs nema,
ritari kemur af 3. ári og aðrir eru
meðstjórnendur. Stjórn félagsins
veturinn 2007-2008 skipa Valentínus
Þ Valdimarsson, formaður; Þorkell
Snæbjörnsson, varaformaður og
gjaldkeri; Dagur Ingi Sigurðsson,
ritari og Ásdís Egilsdóttir, Elín Arna
AspelundogGuðrún Þ Höskuldsdóttir
meðstjórnendur. Stjórn félagsins
ræður málefnum félagsins og ber
ábyrgð á fjárreiðum þess. Stjórn sér
um daglegan rekstur félagsins og sér
um að skipuleggja starfsemi félagsins
með öðrum nefndum. Stjórn og
kennslu- og fræðslumálanefnd eiga
sæti á deildarráðsfundum sem er
framkvæmdarráð læknadeildar
og þar hafa læknanemar mikilvæg
atkvæði. Einnig á stjórn, kennslu-
og fræðslumálanefnd og sérstakir
fulltrúar læknanema sæti á
skorarfundum og deildarfundum
en það eru nokkurs konar þing
deildarinnar. Stjórn á jafnframt sæti
í stjórn Félags ungra lækna (FUL)
og vinnur náið með norrænum
samtökum læknanema.
í júní 2007 hittust fulltrúar
stjórnar, fulltrúaráðs, kennslu- og
fræðslumálanefndar, alþjóðanefndar
og lýðheilsustarfs. Því miður komust
ekki fulltrúar Ástráðs með á fundinn.
Þessir fulltrúar skipulögðu mikilvæga
atburði á komandi vetri og settist hver
nefnd niður og skipulagði starfsár sitt
en einnig komu nefndirnar saman og
ræddu helstu mál. Þetta starf skilaði
miklum árangri og gerði starf stjórnar
og nefndanna mjög gott auk þess sem
fulltrúar nefndanna kynntust betur.
Styrkir til Félagsins hafa löngum verið
mikilvægir til þess að hægt sé að halda
uppi góðu félagslífi á sanngjörnu verði
fyrir alla félagsmenn. Stjórn hefur
síðustu tvö ár haft góðan samning við
Kaupþing banka og því ákvað stjórn
að ræða fyrst við Kaupþing banka um
styrkveitingu. Þær samningaviðræður
heppnuðust vel og undirritaði stjórn
samning við bankann í ágúst.
Sala á félagsskírteinum hófst í
september og var ákveðið að breyta
um útlit á skírteinum sem tókst vel
upp. Ákveðið var að hafa árgjald
kr. 2500. Gjaldið hefur þannig ekki
hækkað síðustu 5 árin þrátt fyrir
verðbólgu. Þannig má segja að frekar
ódýrt sé að vera félagi. Ýmis fríðindi
fýlgja því að vera félagi t.d. afslættir,
aðgangur að heimasíðu félagsins,
afsláttur á ýmsa viðburði og aðgangur
að ráðningarkerfi svo að fátt eitt sé
nefnt.
Mikilvægt er fyrir stjórn að bjóða
nýnema sína velkomna. Formaður
6
Læknaneminn