Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 18
Kennsluverðlaun
Mynd: Stjórnarmenn FL
afhenda Eiríki kennslu-
verðlaunin
Frá vinstri: Þorkell
Snæbjörnsson, Guðmundur
Vignir Sigurðsson, Eiríkur
Steingrímsson og Valentínus
Þór Valdimarsson
Það er fastur liður á árshátíð læknanema að heiðra
kennara sem nemendum finnst standa sig vel í starfinu.
Eiga kennsluverðlaunin um leið að vera hvatning
fyrir lækna til að leggja metnað í kennslu læknanema.
Undanfarin ár hefur verið hefð fyrir því að 5. árið ákveði
hverjum skuli veita verðlaunin hverju sinni. I ár varð
breyting á og var nú haldin kosning sem öll árin tóku
þátt í. Verðlaunin í ár hlaut Eiríkur Steingrímsson doktor
í líffræði ásamt lífefna- og sameindalíffræði A fyrir góða
skipulagningu á kennslu og góða kennsluhætti.
Við þekkjum öll Eirík sem tekst mjög vel að þýða flókin
lögmál erfða- og sameindalíffræðinnar yfir á mannamál
og lætur umritun RNA, stjórnun genatjáningar,
translocationir og linkage analýsu virðast sáraeinfalt
mál. Eins og allir læknanemar vita hefur Eiríkur
einstakan áhuga á drosophilu-kvikindunum sem koma
víða við í kennslunni hjá honum. En hann hefur einnig
áhuga á gæðum vísindastarfs við HÍ og hefur sjálfur birt
fjölda rannsókna. Þegar við höfðum samband við Eirík
nú í byrjun maí mánuðs var hann einmitt á ráðstefnu
í Sapporo þar sem hann var að kynna niðurstöður
rannsóknarstofu sinnar í Læknagarði á hlutverki
boðleiða í starfsemi umritunarþáttarins Mitf gensins í
músum. “Við höfum verið að útbúa erfðabreyttar mýs
sem bera stökkbreytingar í tilteknum amínósýrum
Mitf próteinsins sem eru taldar taka við boðunum.
Niðurstöðurnar benda til þess að boðleiðirnar til Mitf
séu aðrar en áður var talið. Læknanemar hafa m.a.
tekið þátt í þessu verkefni með því að útbúa ákveðnar
stökkbreytingar.”
Þegar við inntum hann effir viðbrögðum við
verðlaununum var hann hógværðin uppmáluð. „Ég varð
mjög hissa þegar ég fékk tölvupóstinn frá formanni félags
læknanema um kennsluverðlaunin. Ég hélt reyndar að
um misskilning væri að ræða og reyndi að leiðrétta hann
og varð enn meira undrandi þegar það tókst ekki. Þetta
er náttúrulega mikill heiður og sennilega sá mesti sem
mér hefur hlotnast. Ég hef aldrei talið sjálfan mig góðan
kennara og hef sífellt verið að reyna að bæta mig til að ná
til nemenda með efnið og þessi viðurkenning er auðvitað
vísbending um að það hafi tekist.”
„Reyndar lít ég svo á að námskeiðið sem ég er
umsjónarkennari fyrir, Lífefna- og sameindalíffræði A,
hafi fengið verðlaunin en þar eru fleiri kennarar sem
koma að en ég. Fremstur í flokki þar er Jón Jóhannes
Jónsson en hann hefur á undanförnum áratug staðið fyrir
ýmsum breytingum í kennslu á sviði erfða-, sameinda-
og lífefnafræði. Þessar breytingar hafa haft þau áhrif
að nemendur í læknisfræði fá nú mjög góðan grunn í
þessum fræðum og þessar breytingar eru því að skila sér
á mjög jákvæðan hátt.”
Eiríkur á mikið hrós skilið og við þökkum honum
kærlega fyrir gott framlag hans til kennslu læknanema.
18
Læknaneminn