Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 43
Alþjóðanefnd og styrktu okkur
1 þeirri trú að þær endurbætur
sem við höfum verið að gera skila
árangri og hvöttu okkur til að halda
afram. Sérstaklega var ánægjulegt
að sjá hversu ánægðir nemarnir
voru með deildir Landspítalans. Það
var áberandi að þeim þótti viðmót
allra starfsmanna deildanna vera
sérstaklega vinsamlegt og læknar
hlbúnir að leiðbeina þeim.
Síðasta vetur var unnin nokkur vinna
meðal nefnda Félags læknanema og
stjórnar að samþætta starfið betur
°g efla félagsstarf meðal læknanema
enn meir. Það er framtíðin að enn
^etra samstarf verði á milli nefnda
°g reglulegum samráðsfundum var
komið á laggirnar sem ánægja var
með.
Fjárhagur Alþjóðanefndar hefur
Verið bágborinn síðustu ár. Sótt hefur
Verið um styrki frá ríki, bæjarfélögum
°g einkafyrirtækjum með misjöfnum
arangri og vandamál er varðar
húsnæði og aðbúnað skiptinema
komið upp. Skrifstofa kennslu,
vísinda og þróunar hefur styrkt
sumarstarfið og í vetur var samþykkt
á fundi FL að veita Alþjóðanefnd
styrk. Með þessum styrkjum og
hagræðingu innan nefndarinnar
hefur þárhagsstaðan batnað til
muna.
Eðli nefndarinnar gerir ráð fyrir
talsverðum erlendum samskiptum
við systurfélög og nefndir erlendis.
^FMSA heldur á hverju ári tvo
aðalfundi, í mars og ágúst mánuði
ár hvert. Nefndin hefur ávallt sent
tvo fulltrúa, einn sem situr fundi
nemendaskipta og annan sem
situr fund formanna aðildarfélaga.
Á fundunum fer m.a. fram
samningagerð, verkefni kynnt og
farið yfir lagasetningar. IMSIC hefur
ákveðið að senda aðeins fulltrúa á
ágústráðstefnuna. Munum við eiga
fulltrúa frá öðrum norðurlöndunum
á marsráðstefnunni en í ágúst eru
samningar gerðir og geta félagar
okkar ekki sinnt því fyrir okkur. Auk
þess er okkur skylt að sækja ráðstefnu
á vegum IFMSA til að halda sæti
innan samtakana.
Alþjóðanefnd er einnig aðili að
Federation of International Nordic
medical student’s Organisations,
FINO. Það er samnorrænn vettvangur
læknanema í alþjóðastarfi. Haldinn er
einn aðalfundur í nóvember ár hvert
og er komið að Alþjóðanefnd að halda
þann fund á næsta ári. Þessir fundir
eru einstakt tækifæri fyrir nema hér
á Islandi til að kynnast norrænum
læknanemum og kynnast þeirra
aðstæðum. Að auki fáum við þá að
kynnast starfsemi samtakanna betur
og vonumst við til að sem flestir sjái
sér fært að taka þátt í undirbúningi
fundarins. Hafi þú áhuga á að starfa
með okkur að undirbúningi fundarins
þá er upplagt að hafa samband við
einhvern úr Alþjóðanefnd í þínum
bekk.
Fyrir frekari upplýsingar er varða
starf nefndarinnar, upplýsingar um
nemendaskipti og verkefni:
www.hi.is/~imsic
Höfundar eru stjórnarmeðlimir
alþjóðanefndar.