Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 42
Icelandic Medical Students International Committee
Hjörtur Brynjólfsson
4. árs læknanemi
Kristín María Tómasdóttir
5. árs læknanemi.
Alþjóðanefnd er fulltrúi íslenskra
læknanema á erlendri grundu og á
aðild að International Federation
of Medical Students Associations,
IFMSA. Þetta eru ein stærstu
nemendasamtök heims með um
100 aðildarfélög í 94 þjóðlöndum.
Síðastliðið starfsár markaði nokkur
tímamót í starfi Alþjóðanefndar
læknanema, ný verkefni sprottin
úr ranni nefndarinnar fóru af stað,
skerpt var á nýjum áherslum og
verkefnum nefndarinnar og farið
í starfssvið nefndarmanna. Það
má eflaust fullyrða að síðasta ár
hafi einnig verið með þeim erfiðari
sökum óhentugra ytri aðstæðna og
bágrar fjárhagsstöðu. Það er þó ljóst
að með breyttum áherslum, auknu
framboði á skiptimöguleikum fyrir
læknanema og nánara samstarfi
nefnda innan Félags læknanema að
næstu ár verða spennandi tímar fyrir
læknanema í Læknadeild Háskóla
íslands.
Starfsemi nefndarinnar
IMSIC sinnir nemendaskiptum
á sumrin fýrir IFMSA. Þá býðst
íslenskum læknanemum að fara í
mánaðarlangt starfsnám erlendis og
erlendum læknanemum að koma
hingað. Alþjóðanefnd sér um að
koma nemum í starfsnám á deildum
spítalans, húsnæði, fæði og félagslíf.
Sumarstarfseminni var ýtt upp
um skör síðasta sumar og þátttaka
íslenskra nema í starfseminni aukin.
Aldrei hafa jafnmargir læknanemar
boðist til að vera tengiliðir skiptinema
og eiga þeir hrós skilið.
Alþjóðanefnd hefur sl. ár haft það
að markmiði að færa heim starf og
hugmyndir erlendra læknanema
sem gætu auðgað og styrkt starfsemi
læknanema í Félagi læknanema.
Forvarnarstarfið Ástráður er eitt
besta dæmið um slíkt starf en
upphaflega hugmyndin að því kom
í gegnum IFMSA. Lýðheilsufélag
læknanema tók til starfa á sl.
starfsári en hélt áfram öflugu starfi
á þessu starfsári og hefur fest sig
í sessi sem öflugur félagsskapur.
Síðasta haust ákváðu meðlimir
stjórnar Alþjóðanefndar að óska
eftir samstarfi við hjúkrunarnema.
Var þessari hugmynd vel tekið af
hjúkrunarnemum og gekk samstarfið
vel. Haldið var málþing um ofbeldi
gegn börnum sem bæði læknanemar
og hjúkrunarfræðinemar sóttu.
Áframhaldandi samstarf við
hjúkrunarfræðinema er að mati
Alþjóðanefndar eðlilegt framhald
af auknum umsvifum læknanema í
forvarnarstarfi og lýðheilsu. Verður
spennandi að sjá hvernig sú þróun
verður.
Það er sterk hefð fyrir ýmsum
þróunar- / samvinnuverkefnum
meðal erlendra læknanema í
vanþróuðum löndum. Undanfarin ár
hefur nefndin unnið að því að opna
möguleika fyrir íslenska nema enn
frekar á þessu sviði og hefur fundið
fyrir miklum áhuga samnemenda
okkar fyrir slíku starfi.
Fyrst opnaðist fyrir aðgang að
samnorrænu verkefni í Nairobi
Kenýa sem hófst á vegum norskra
læknanema. Til viðbótar þessu
verkefni hefur Alþjóðanefnd
fengið vilyrði fyrir þátttöku nema
að verkefnum í Kamerún á vegum
danskra læknanema og í Kalkútta
á vegum ítalskra læknanema. Ljóst
er að með auknum áhuga nemenda
á vinnu og verkefnum af þessu tagi
þarf að vinna betur að því hvers
konar starf á að vera í boði og hvernig
aðkoma íslenskra læknanema á
að vera að því og öryggismálum
íslenskra nema á erlendri grundu.
Endurmat á starfi og gæðamat
I upphafi starfsársins var farið >
vinnu þar sem starf skiptastjóra
var sett í fastari skorður og fastir
punktar í starfinu voru færðir >
handbók skiptastjóra sem fylgir
starfinu til nýrra aðila ár hvert.
Áætlunin er að halda áfram með
þessa vinnu og útfæra sambærilegar
handbækur fyrir hverja stöðu innan
stjórnarinnar.
Sumarið 2007 var gert gæðamat
í skiptunum sem erlendu
læknanemarnir gerðu í lok vistar
sinnar hér á landinu. Könnunin
er byggð á stöðluðu gæðamati
sem IFMSA hefur gefið út um
nemendaskipti. Niðurstöður
könnunarinnar komu mjög
ánægjulega út fyrir okkur 1
42
Læknaneminn