Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 25
fram til þessa almennt verið um að
ræða einyrkja en ekki fyrirtæki af
einhverri stærðargráðu sem heitið
getur. Um einkapraxís einyrkja hefur
ekki verið ágreiningur. Hins vegar
skiptir hér sköpum á hvaða forsendum
einyrkinn eða smáfyrirtækið
starfar. Lýtur það samningum við
Tryggingastofnun, eins og flestir
islenskir sérfræðilæknar gera, eða fá
þeir ákveðna grunnupphæð og eru
síðan sjálfráðir um álagningu, eins
og gerist hjá tannlæknum? í síðara
tilvikinu hafa markaðslögmálin verið
virkjuð í ríkari mæli en í hinu fyrra. Á
undanförnum árum hafa þeir hópar
sérfræðilækna orðið háværari sem
vilja fara sömu leið og tannlæknar og
ráða álagningu sinni sjálfir.
Stærð einkarekinna stofnana segir
ekki allt. Líklegt má þó heita að þegar
hundruð heilbrigðisstarfsmanna í
einkapraxis eru komin undir sama
þak á forsendum viðskiptaaðila þá sé
einkasjúkrahús handan við hornið.
Fjölmörgum mótrökum gegn
einkavæðingu má bæta við þessa
upptalningu: Hafa menn hugsað til
enda skriffinnskuna sem fylgir því að
semja um öll viðvikin? Gæti farið svo
að einkarekin fyrirtæki vildu gjarnan
finna fleiri sjúkdóma hjá okkur en
færri?
Hugsunin um að horfa á
einstaklinginn heildstætt er, þegar allt
kemur til alls, sú hugsun sem einna
niikilvægust er í góðri og nútímalegri
heilbrigðisþj ónustu. Sykursj úklingur
er annað og meira en sykursjúklingur.
Sjón hans kann að vera í hættu þótt
sjónin þyki ekki bókhaldstæk.
Kostnaðargreiningin snýr hins vegar
að sykursýkinni, ekki manneskju með
aðskiljanlega kvilla, manneskju sem
þarf að hlúa að og lækna, óháð öllu
bókhaldi. Það að vera góður læknir
er ekki það sama og að vera góður
bisnessmaður sem krefst arðsemi.
begar þessi tvö hlutverk flækjast enn
hýpra inn í hvert annað er ástæða til
að staldra við.
Vandinn við þessa umræðu er hve
yfirborðsleg henni hættir til að vera.
Annars vegar er horft á það kerfi sem
við búum við í dag sem er þrátt fyrir
alla sína kosti alvarlega fjársvelt til
Hngs tíma. Hins vegar er stillt upp
valkosti þar sem gengið er út frá
nægum fjárveitingum. Ef það væri nú
svo að ég fengi að velja að vild í kerfi
þar sem fjármunirnir fylgja mér til að
lækna mein mín og að þessir fjármunir
kæmu til með að nægja að öllu leyti
þá hlyti ég að sjá ákveðna kosti við
slíkt fyrirkomulag. Ef fjármunirnir
eru hins vegar ófullnægjandi og ég
þarf að brúa bilið sjálfur - jafnvel með
aðstoð einkarekinna trygginga - þá
horfir málið öðruvísi við.
Þyngst vega hin félagslegu rök gegn
einkavæðingunni. Ef heilsan er
gerð að verslunarvöru sem lýtur
lögmálum markaðar þá er hætt við að
það leiði til félagslegrar mismununar.
Alls staðar þar sem þessi leið hefur
verið farin hefur þetta gerst. Þá er öll
samhæfing erfiðari í kerfi sem greinst
hefur niður í óteljandi einingar,
skipulagðar á viðskiptagrunni. Öll
yfirsýn verður torveldari, enda neita
einkavædd fyrirtæki iðulega að veita
upplýsingar þegar slíkt stríðir gegn
viðskiptahagsmunum þeirra.
Markaðsvæðing er lýsandi hugtak
Sem fyrr segir hefur ágreiningur
um hugtakanotkun sett nokkurn
svip á umræður og deilur um kerfis-
breytingar í heilbrigðisþjónustunni.
Mikilvægt er að láta slíkar deilur
ekki villa sér sýn. Það er vafasöm
fullyrðing að ekki geti verið um
einkavæðingu að ræða svo lengi sem
skattgreiðandinn borgar brúsann.
Landspítalinn flokkast þannig varla
undir einkavædda stofnun þótt þar
séu tekin gjöld fyrir ýmis viðvik.
Hann getur hins vegar sett ýmsa
þjónustuþætti í einkarekstrur og
þess vegna byggt rekstur sinn á
sömu lögmálum og einkafyrirtæki.
Og hvað Heilsuverndarstöðina ehf.
áhrærir þá verður seint litið á hana
sem opinberan rekstur þótt hún sé að
uppistöðu til rekin með almannafé.
Það sem er hins vegar að gerast
hjá báðum þessum stofnunum er
aukin áhersla á markaðslögmálin.
Sjúkdómar, lækningar og aðhlynning
eru að taka á sig myndir markaðsvöru
og markaðsviðskipta. Þetta hefur gerst
hægt og sígandi. Smám saman hefur
læknisþjónustan öll verið greind
niður í afmarkaða kostnaðarþætti
sem auðveldlega má setja á markað.
Sjúklingurinn er orðinn að samsafni
aðgreindra kostnaðarliða og
uppspretta arðsemi. Samhliða því eru
tryggingafyrirtækin að hasla sér völl
og rýna í tilkostnað og áhættu við að
veita okkur tryggingu ef bilanir verða
á líkama okkar og sál.
Ósagt skal látið hvenær að því
kemur að öllum verður augljóst
hvert stefnir. Hitt er löngu ljóst
að viðskiptaheimurinn hugsar
sér gott til glóðarinnar. Árum
saman hafa samtök verslunar og
viðskipta hvatt til einkavæðingar
almannaþjónustunnar. Á heimasíðu
minni er vitnað til fjölda frétta og
tilkynninga þess efnis úr heimi
viðskiptanna í gegnum árin og í
ágústmánuði árið 2000 segir meðal
annars þetta: „ífrétt í Morgunblaðinu
af morgunfundi Verslunarráðsins er
meðal annars vitnað í rœðu Bjarna
Ármannssonarjorstjóraíslandsbanka-
FBA. 1 fréttinni sem birtist 18. ágúst
sl. er haft eftir forstjóranum að ríkið
vceri með starfsemi á mörgum sviðum
sem þaðyrði að koma sér út úr. Bjarni
nefndi sérstaklega fjármála-, orku-,
heilbrigðis- ogmenntageirana ogsagði
heilbrigðisgeirann velta hátt íþriðjungi
afútgjöldum ríkis ogsveitarfélaga.‘“
Ný af nálinni er svo grein Jóhanns
J. Ólafssonar, fýrrverandi formanns
stórkaupmanna. Greinin er að
mörgu leyti ágæt og fýrirsögnin
er umhugsunarverð: „Velferðin
er stóriðnaður“. Þetta er stóra
spurningin: Á að sldpuleggja
velferðina sem hvern annan iðnað
á forsendum markaðar eða sem
þjónustu við einstaklinga og samfélag?
Hvað verður ofan á vitum við ekki.
Hitt er Ijóst að almannaþjónustan
á íslandi stefnir nú hraðbyri inn á
markaðstorgið. Ég tel því að hugtakið
markaðsvæðing sé heppilegt að nota
sem lýsingu á þeirri þróun sem nú á
sér stað.
Það er hins vegar hrikalegt til þess
að hugsa ef þeir sem stjórna ferðinni
komast upp með að drepa allri
gagnrýni á dreif með deilum um
hugtakanotkun og þokukenndu tali.
Á sama tíma og Heilsuverndarstöðin
ehf. auglýsti 20% afslátt til
gullkorthafa Kaupþings banka fyrir
geðheilbrigðisþjónustu o.fl. var
þingmaður Samfylkingarinnar látinn
hafa síðasta orðið í sjónvarpsfréttum
um þessi efni. Þar sagði hann að eitt
væri víst: á meðan sinn flokkur réði
yrði heilbrigðiskerfið á íslandi aldrei
einkavætt.
Er ekki kominn tími til að vakna?