Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 63
munaðarleysingjahæli og fengum að
heimsækja malavískar íjölskyldur og
sjá hvernig þær lifa.
Heilsugæslan í Monkey Bay þjónar
um 100.000 manns. Þarna er
fæðingardeild ásamt mæðra- og
barnavernd, sjúkradeild sem er
legudeild fyrir fullorðna og börn,
göngudeild fyrir HlV-smitaða
(greining/meðferð/fræðsla),
rannsóknarstofa og nokkurs konar
sjúkramóttaka. Á stofnuninni starfa
hjúkrunarfræðingar, ljósmæður,
læknaliðar (medical assistants),
læknatæknar (medical ofhcers)
auk ræstingarfólks, bílstjóra
o.fl. Læknaliðar hafa tveggja ára
háskólanám að baki, að mestu
bóklegt nám þar sem lögð er áhersla
á klínískar greiningar og meðferð.
Læknatæknar hafa ijögurra ára
háskólanám að baki, bæði bóklegt og
verklegt. Að ioknu þessu námi mega
þessir einstaklingar framkvæma
einfaldar aðgerðir (náraherníur,
bæklunaraðgerðir, keisaraskurðir
o.fl.) auk þess að greina og veita
meðferð. Læknatæknar eru oftast
einu læknamenntuðu starfsmennirnir
á heilbrigðisstofnunum úti
á landi. Læknar starfa á
háskólasjúkrahúsunum þremur í
Zomba, Blantyre og Lilongve í tvö
ár eftir útskrift úr læknadeildinni,
nokkurs konar kandidatsár, en þeir
eru skyldugir til að vinna fyrir ríkið
í tvö ár eftir útskrift sem nokkurs
konar borgun fyrir námið. Eftir það
reyna flestir að komast í sérnám
erlendis og mjög fáir snúa aftur til
Malaví. Sagt er að fleiri malavískir
læknar starfi í Manchester á Englandi
en í Malaví sjálfu. Við ræddum við
nokkra nýútskrifaða lækna og svo
virðist sem Indland sé mjög vinsæll
áfangastaður fyrir þá sem fara í
sérnám sem og Bretland. Vinnuálagið
á aðstoðarlæknum er gríðarlegt og
okkur varð fljótt ijóst að vinnulöggjöf
Evrópusambandsins er eitthvað sem
þeir hafa ekki heyrt um í Malaví.
Áður en við mættum á staðinn, vorum
við búnar að búa okkur undir að
heilbrigðiskerfið væri mjög frumstætt
miðað það sem við þekkjum hérna
heima. Það kom okkur samt sem
áður mjög á óvart hversu bágbornar
aðstæður voru. Á sjúkradeildunum
lágu stundum 2-3 börn í hverju
rúmi og mæður þeirra og stundum
systkini lágu á gólfinu í kring. í
Malaví starfa engir sjúkraliðar inni
á heilbrigðisstofnunum heldur sjá
aðstandendur um alla aðhlynningu
ættingja sinna. Því er það svo að í
hádeginu myndast mjög undarleg
stemmning fyrir utan legudeildirnar
þegar aðstandendur elda mat fyrir
ættingjana sína hvar sem þeir finna
pláss. Maís-vellingurinn sem Malavar
borða 2-3 sinnum á dag er líka borinn
fram á spítalanum. Aðstandendur sjá
um allan þvott og á víð og dreif um
spítalalóðirnar mátti sjá þvott sem
búið var að hengja til þerris.
Á hverjum degi mynduðust langar
raðir fyrir utan sjúkramóttökurnar og
skoðunarherbergin. Ekki er óalgengt
að það komi 250 manns á dag sem
2-3 starfsmenn sinna og þá aðallega
íris Axelsdóttir
kandídat
Margrét Dís Óskarsdóttir
kandídat
Sólveig Pétursdóttir
kandídat
3^o '"‘S’.Tunduma 340
malawii ''Lprrs.r\
CWseng^V^ r ..^KaronBa \
A’*\ \ \
:í
/ Nyika.........
ir . u /* Plateau ^ 1
KUMWII _ j
~L Boleo,0 Fiumptii,..) UNITED REPUBLIC
\ -'A'*' y V OF
/ EíiSSiTHERN \ TANZANIA
Kalukule M O 0Chikw,na "\ ___
ZAMBIA ÉiSuni 0 M 0/ ■■■' v
£ •Nkhata ;----------'*‘v- ; /*'
! í Bay / U—-V—-
/MZlMiu aJ OChíntheche
/ Mzimba ; '
* : iukO
í :
Lundazi0 \ \ }
"Jfj \ \
r-' ) \
n Yr \
) MOZAMBIQUE ^
( CENTRA'LV' I \
/ ntciiisi / \ | QLichinga
j" \ N\5i i.Þ...............\_____
r’ MCIIINJI ;DOWA Oowa . / *v
Ch,^°^......../odasa...\Æí-~ / V*
:.LILONGWE*h r / \
ÖLIIongwc\V»f \ ,4.
\ Vozú 1 \
\ ‘ í ...••■ DedzaV MANGOCHi \ Mandimba
V \ ^V\SOÚT.HpRN\
MOZAMBIQUE
j 'ý_^Uw>ndS^~’?Nayuchl 150
O National capital \
® Regional headquarters 0Nem>t-“í7'-0MB£ODomasi
• Dlstrict headquarters (' mw'anza / Zomba |
o Town, village ).
* Áirport \ -'1:^LAvrvtói/»011*^110 j
-----Intemational boundary ■’ " áantyrl^^0^0^
-----Regional boundary \Chikwawa# V.-™yOL(W l^ulanje í 1fiQ
' ......District boundary ■%
Mainroad Tete° V, Y
Secondary road V*’^ V. c?60kerani
—----- Railroad Uo .•’
Tho bounóaries and names shown and Ihe .. .-,
desianaliona uaed on this mao do not imoiv .
ottical enaorscment or accoptanco by tho I ••. 'T>'1 0 25 50 75 100 km
Jnted Nations. y N-,^'úí
\ 6 25 50 75 mí
320 ZIMBABWE Vj3o 340 35Ó>..J V
Læknaneminn
63