Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 53
Samsetning fæðunnar getur einnig skipt máli, þ.e.
hvort hún er mjög fitu-, prótein-, eða treíjarík. Aðgengi
fitusækinna lyíja getur til að mynda aukist ef þau eru
tekin með feitri máltíð. Lyfin leysast betur upp í fituríku
umhverfi ásamt því að auknu galli er seytt sem stuðlar
enn frekar að uppleysni lyfjanna. Sumir veikir basar
sýna einnig minnkað aðgengi í návist fituríkrar fæðu
Vegna myndunar á lyíja-gallsýruflókum.2 Treíjarík máltíð
virðist geta minnkað frásog lyíja þar sem lyíjasameindir
dragast að treíjunum og fara út með hægðum en ekki inn
með frásogi.3 Prótein í fæðu geta síðan haft ýmis áhrif
t.d. stuðlað að hægari tæmingu maga eða myndað flóka
með lyfjasameindum þannig að frásog þeirra minnki.
Magatæming getur verið hraðatakmarkandi skref í
frásogi efna en svo lengi sem leysing lyfs er hraðari en
magatæming mun hún ekki ákvarða aðgengi. Dí- og
trípeptíð geta einnig hindrað frásog lyfja sem tekin eru
upp með virkum flutningi um H+/peptíðferjur með því
að virka sem samkeppnishindrar.'
Hingað til hefur svolítið verið horft framhjá hugsanlegum
áhrifum næringar- og steinefna en áður fyrr hefur frekar
verið horft á áhrif orku- og fituinnihaldsríkrar fæðu.
Ljóst er að milliverkanir geta verið allalvarlegar og getur
minnkað frásog hugsanlega leitt til misheppnaðrar
meðferðar og óhagstæðra niðurstaðna í hvaða
sjúkdómsástandi sem er. Þörf er á fleiri rannsóknum á
milliverkunum lyfa og matar til þess að betur verði hægt
að átta sig á umfangi þeirra.4
Heimildir
1- H.P. Rang, M.M.D., J.M. Ritter, R.J. Flower, Rang and Dale 0s Pharmacology, K.
Dimock, Editor. 2007, Churchill Livingstone Elsevier: Philadelphia. p. 98-127.
2- Shinji Sakuma, F.K.T., Yoshie Masaoka, Makoto Kataoka, Toshio Kozaki,
Ryosei Kamaguchi, Hiroyasu Kokubo, Shinji Yamashita, EfFect of administration site in the
gastrointestinal tract on bioavailability of poorly absorbed drugs taken after a meal. Journal of
Controlled Release, 2007(118): p. 59-64.
3- Lars E. Schmidt, K.D., Food-Drug Interactions. Drugs, 2002. 62(10): p. 1481-
1502.
4- A.W. Wallace, G.W.A., Is it really OK to take this with food? Old Interactions
w*th a new twist. The Journal of Clinical Pharmacology, 2002. 42: p. 437-443.
5- M.N. Martinez, G.L.A., A mechanistic approach to understanding the factors
affecting drug absorption: a review of fundamentals. The Journal of Clinical Pharmacology,
2002. 42: p. 620-643.
%ndaskrá
%nd 1: RG. Welling, Partricia A. Koch, Curtis C. Lau. and William A. Graig, Bioavailability
°f Tetracycline and Doxycycline in Fasted and Nonfasted Subjects. Antimicrobial Agents and
Chemotherapy, 1977. 11(3): p. 465.
%nd 2: H.P. Rang, M.M.D., J.M. Ritter, R.J. Flower, Rang and Dale Ss Pharmacology, K.
Himock, Editor. 2007, Churchill Livingstone Elsevier: Philadelphia. p. 98-127.
Unglækna-
verðlaun
Ragnar Freyr er þekktur fyrir margt fleira en að vera
fyrsta flokks medisíner og fróðleiksmaskína. Flestir
vita að Ragnar hefur t.d. óbilandi áhuga á matargerð
og hefur haldið úti eðal matreiðsluheimasíðu til lengri
tíma, http://ragnarfreyr.blog.is/blog/ragnarfreyr/.
Einnig stundar Ragnar skvass grimnrt þegar tími gefst
og hefur refsað ófáum kolleganum á vellinum. Ástæður
þess að Ragnar hlaut kennsluverðlaunin 2008 eru
margvíslegar. Hann er alltaf fús til að rökræða tilfelli
með klínískri nálgun, setur upp kennslu á eigin spýtur á
deildum þegar lítið er að gera en fyrst og fremst nálgast
hann nema á jafnræðisgrundvelli og er tilbúinn til að
ræða málin.
Að eigin sögn var Ragnar afar ánægður og glaður með að
vera vera sýndur svona mikill heiður, fannst enn fremur
gaman að fá að taka þátt í árshátíðinni. Endursýndi
hann þá skemmtiatriðið frá árgangnum sínum á 5. ári
við mjög góðar undirtekir.
í haust leggur Ragnar í róður til Svíþjóðar að nema
gigtlækningar og gæti alveg hugsað sér að koma seinna
á Landspítalann og hreppa þá kennsluverðlaunin sjálf.
Þegar Ragnar var inntur eftir skilaboðum til verðandi
deildarlækna slitnaði sambandið enda var maðurinn í
lest í San Francisco, væntanlega að fara neðanjarðar.
Karl Erlingur Oddason
5. árs læknanemi
Læknaneminn
53