Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 7
ávarpaði nýja kollega fyrsta dag
þeirra í deildinni. Síðan var farið í
vel heppnaða ferð í Þjórsárver og
hin árlega spírítusvígsla haldin en
hún gekk frábærlega vel. Formaður
félagsins og formaður kennslu- og
fræðslumálanefndar héldu málþing
fyrir fyrsta árs nema um allt sem þeir
vildu vita um læknisfræði en þorðu
ekki spyrja um. Heppnaðist það afar
vel og var mikil ánægja meðal nema á
fyrsta ári með viðburðinn.
Lesstofur læknanema halda áfram að
vera hið mesta vandræðamál. Það má
segja að læknanemar á seinni árum
hafi verið á flæmingi allt frá því að þeir
misstu hina frábæru aðstöðu sem þeir
höfðu haft á efstu hæð Heilsuverndar-
stöðvarinnar við Barónsstíg. Þaðan
fluttust læknanemar í Ármúla 30
þar sem áður voru rannsóknarstofur
í lyfjafræði og réttarlæknisfræði.
Húsnæðið var hið besta og
snyrtilegasta. En Adam var ekki
lengi í paradís. Kreditkort hf. hófu á
vormánuðum að sölsa undir sig hluta
af fyrrum lesstofum með miklum
látum og erfitt var orðið að lesa vegna
hávaða. Mikil vinna fór hjá stjórn í að
reyna að útvega nýtt húsnæði og allt
lítur út fyrir að læknanemar rnuni fá
húsnæði við gamla Borgarspítalann
nú á vordögum.
Samskipti við erlenda læknanema
eru mjög mikilvæg. í byrjun
skólaársins fóru fulltrúar norrænna
læknanemasamtaka að ræða saman
um ýmis málefni tengd læknanemum
og læknanámi t.a.m. tengsl við
læknafélögin, alþjóðleg samskipti og
skipulag félaganna. Það varð svo úr
að haldinn var fundur allra félaganna
í Stokkhólmi í febrúar 2008. Þennan
fund sóttu bæði formaður og
varaformaður FL. Þetta var mjög
gagnlegur fundur og var áhugavert
að sjá hvernig skipulag náms,
kandidatsárs, framhaldsnáms og
læknanemasamtakanna var í hverju
landi. Mikill vinahugur myndaðist á
meðal nágrannaþjóða og var ákveðið
að hittast aftur á haustmánuðum
samhliða FINO ráðstefnu sem haldin
verður í Kaupmannahöfn. Einnig
kom formaður kennslunefndar
Evrópsku læknanemasamtakanna
(EMSA) hingað til lands í mars og
hitti þar formann FL og fulltrúa frá
Alþjóðanefnd. Spennandi var að
heyra hvernig starfsemi EMSA er og
með hvaða hætti ísland gæti tengst
þeirri góðu vinnu sem þessi samtök
standa fyrir.
Undanfarin tvö ár hafa nefndir sem
starfa fyrir læknanema verið að færast
nær og nær hver annarri. Aldrei hafa
samskipti nefnda verið jafngóð og
nú. í fyrsta skipti var öllum nefndum
boðið að taka þátt í skipulagsfundi
í júní og var það til mikils gagns.
Fulltrúar allra nefnda hittust einnig
í matarboði á veitingastaðnum
Horninu í nóvember á síðasta ári. Á
síðasta starfsári var einnig ákveðið að
stofna sérstakt formannaráð sem í eiga
sæti formenn allra nefnda. Formenn
hittast tvisvar sinnum á hverri önn og
ræða innbyrðis samstarf og skipulag
á dagskrá. I nóvember fór fram
umræða um beinan peningastyrk til
alþjóðanefndar sem vantaði sárlega
íjármuni til þess að geta haldið uppi
starfsemi sinni. Það var til þess að
haldinn var félagsfundur um efnið
þar sem kynnt var starfsemi og
mikilvægi nefndarinnar. Fundurinn
tók síðan ákvörðun um að veita stjórn
umboð til þess að styrkja nefndina.
Einnig hefur félagið styrkt hinar
mjög svo skemmtilegu uppákomur
lýðheilsufélagsins þ.á.m. málþing
um einkasölu á áfengi og málþing
um blóðgjafir. Þessi málþing voru
mjög vel heppnuð svo vægt sé til orða
tekið.
Námskeiðahald fyrir læknanema
verður sífellt fjölbreyttara. I samvinnu
við kennslu- og fræðslumálanefnd
var unnið að skipulagningu á árlegu
námskeiði í sérhæfðriendurlífgun sem
Bjarni Þór Eyvindarson, unglæknir,
hefur haldið síðustu ár. Árið í ár var
engin undantekning og stóð Bjarni
sig með stakri prýði. Á döfinni er
að halda sérstakan læknanemadag í
samvinnu við Merck Sharp & Dohme
og Icepharma í anda Læknadaga sem
Læknafélag íslands heldur árlega. Á
þessum læknanemadegi verður boðið
upp á kennslu í minni skurðaðgerðum
(kirurgia minor) sem og málþing
um hagnýta hjartalæknisfræði og
hagnýta barnasjúkdómafræði. Þessi
læknanemadagur verður einkum
hugsaður fyrir klínísku árin. Von er
á því að þetta muni stækka á næstu
árum og verða fastur liður í starfsemi
félagsins.
Lög Félags læknanema hafa með
tímanum orðið úrelt. Á þessu starfsári
var það á dagskrá stjórnar að einfalda
lögin og uppfæra þau en ýmislegt sem
í lögunum stóð var orðið barn síns
tíma. Það endaði með því að ákveðið
var að búa til glæný lög sem liggja nú
hjá lögfræðingum til skoðunar. Þegar
þeirri vinnu er lokið þarf að kjósa
um lögin í heild sinni á aðalfundi
félagsins.
Ástráður og Félag læknanema
sameinast. Vegna nánari samvinnu
nefnda sem starfa fyrir læknanema
ákváðu stjórn FL og stjórn Ástráðs
að hefja sameiningarviðræður. Þær
gengu vonum framar og í nýjum
lögum félagsins verður Ástráður eitt
Stjórn FL veturinn 2007-2008. Frá vinstri: Elín Arna Aspelund, Ásdís Egilsdóttir, Dagur Ingi
Jónsson, Þorkell Snæbjörnsson, Valentínus Þór Valdimarsson, formaður (liggjandi), Guðrún
Þuríður Höskuldsdóttir, Katrín Jónsdóttir, nýkjörinn formaður.
Læknaneminn
7