Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 78
Valentínus Þór Valdimarsson
Formaður Félags læknanema
Inngangí
í Læknaf
íslands?
Kjaradeilur læknanema hafa off á
tíðum verið torleystar. Erfiðleikar
við að semja við Landspítala
háskólasjúkrahús hafa verið nánast
árlegur viðburður. Til dæmis muna
margir læknanemar eftir því þegar
Félag læknanema stóð í sérlega
erfiðri samningalotu við Landspítala
Háskólasjúkrahús (LSH) vorið 2006.
Þar ætlaði yfirstjórn sjúkrahússins
að neita að fallast á nauðsynlega
hækkun á grunnkjörum læknanema
til jafns við launaþróun í landinu og
þá prósentuhækkun sem unglæknar
höfðu þegar fengið. Læknanemar áttu
þar að vera eini hópur landsins sem
átti beinlínis að fá lægri laun en árið
áður. Við þetta vildu læknanemar ekki
una og ákváðu því að fara í verkfall.
í þeirri rimmu var læknanemum
ljóst hversu samnings- og réttarstaða
þeirra var afleit. í framhaldi af því
var farið að athuga samstarf við
Læknafélag íslands af fullri alvöru.
Undanfarin ár hafa læknanemar
átt í góðum samskiptum við Félag
unglækna og stjórn Læknafélags
fslands. Þetta varð þess valdandi
að haustið 2006 urðu læknanemar
meðlimir að Félagi ungra lækna.
Á aðalfundi Læknafélags íslands í
september 2007 þurfti svo aðeins að
breyta lögum Læknaféiags íslands
svo að hægt væri að reka smiðshöggið
á inngöngu 5. og 6. árs læknanema í
Læknafélag fslands.
Ástandið hjá nágrannaþjóðum og
hjá öðrum stéttarfélögum
Mýmörg dæmi eru um að nemar
eigi aðild að framtíðarstéttarfélögum
sínum. Læknanemar í nágranna-
löndum okkar eiga í flestum til-
fellum aðild að læknafélögum þess
lands sem þeir starfa í. Góð dæmi
eru frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi
og Bretlandi. Mörg fagfélög háskóla-
menntaðra manna veita nemum á
seinni hluta náms aðild að félögum
sínum. Dæmi um slík fagfélög eru
félög hjúkrunarfræðinga, sjúkra-
þjálfara, lögfræðinga og kennara. Ef
ég vitna beint í röksemdafærslu Félags
ísienskra hjúkrunarfræðinga: „Rökin
fyrir þessari breytingu eru einkum
að auka tengsl hjúkrunarfræðinga
og nema, að efla félagsvitund
hjúkrunarfræðinema innan sinnar
fagstéttar og síðan að opna þann
möguleika að félagið semji um kaup
og kjör fyrir hjúkrunarfræðinema,
sem aftur getur verið ávinningur
fyrir alla féiagsmenn.” Eva Nilsson
Bágenholm formaður sænska
læknafélagsins bætir um betur og
segir: „Okkur er mjög í mun að hafa
sterka nemendahreyfingu innan
okkar félags því þau eru framtíðin!”
Aðalfundur Læknafélags ísfands,
september 2007
Skiptar skoðanir voru á ályktuninni
og voru margir fylgjandi inngöngu
læknanema en sumum þótti sem
verið væri að gengisfella Lækna-
félagið og á sama tíma væri verið að
blessa sjálfstæða vinnu læknanema
á landsbyggðinni. Stuðningur
stjórnarmeðlima FUL, fráfarandi
formanns LÍ og fleiri skiptu miklu máli
og kunna læknanemar þeim þakkir
fyrir stuðninginn. Þrátt fyrir mikla
vinnu stjórnar Félags læknanema og
góðan stuðning margra fundarmanna
fór svo að 22 voru með tillögunni en
18 voru á móti. Þar sem 2/3 atkvæða
þurfti til þess að breyta lögum gengu
lagabreytingarnar ekki í gegn þrátt
fyrir meirihluta.
Vilji til að sætta andstæð sjónarmið
Vilji var þó meðal fundarmanna
til þess að reyna að sætta andstæð
sjónarmið og því var ákveðið að
stofna nefnd um inngönguna. I
nefndinni eiga sæti: Friðbjörn
Sigurðsson, Sigurður Böðvarsson,
Elínborg Bárðardóttir og Sigrún
Perla Böðvarsdóttir. Undirritaður
átti sæti í nefndinni en sagði sig úr
henni, vegna óánægju með vinnu
nefndarinnar, eftir að hafa leitað
álits stjórnar og félagsmanna Félags
læknanema. Nefndinni er ætlað að
leggja fram tillögu fyrir næstkomandi
aðalfund Læknafélags íslands.
Á síðasta aðalfundi Læknafélags
íslands neitaði mikilvægur hluti
fundarins læknanemum inngöngu.
Því munu læknanemar standa einir
í komandi kjarasamningum. Er það
umhugsunarefni fyrir læknanema
hvernig hagsmunabarátta þeirra
verður rekin í framtíðinni. Mikilvægt
er að sjá hvaða niðurstaða kemur
úr nefndarstarfi og hvernig næsti
aðalfundur Læknafélags íslands mun
fara áður en næstu skref verða telcin.
78
Læknaneminn