Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 41
Greining
Sjúklingur hefur einkenni frá tractus corticopyramidalis
oieð máttminnkun í vinstri ganglim auk skyntruflunar
með hyperpathiu (allodynia) neðan Th4 frá tractus
spinothalamus í mænu. Segulsneiðmyndir af höfði sýna
auk þess útbreiddar segulskinbreytingar í heilavef og
1 mænu á þremur stöðum. Útlit breytinganna er talið
samsvara demyeliserandi sjúkdómi. í mænuvökva eru hvít
blóðkorn hækkuð en glúkósi innan viðmiðunarmarka.
Þar sést einnig próteinhækkun, oligoklónal bönd og IgG
hækkun (með IgG index hærri en 1,7). Heildarmynd
einkenna, taugaskoðunar og rannsókna er því talin
uppfylla skilmerki multiple sclerosis (heila- og
mænusiggssj úlcdóms).
Meðferð og gangur
Sjúklingur hafði viðvarandi skyntruflanir í hægri
líkamshelmingi sem svöruðu hvorki verkjalyfjameðferð
né meðferð með taugaverkjalyfjum (pregabalín). Um
hálfu ári eftir greiningu fékk sjúklingur sjóntaugabólgu
(optic neuritis), sem erþekkt einkenni MS-sjúkdóms. Var
bólgan meðhöndluð með sterakúr. Ríflega 7 mánuðum
eftir greiningu var hafin meðferð með interferon-þl
(Avonex*) og hefur sjúklingur verið án nýrra einkenna
síðan.
Finnboga Jakobssyni taugalækni er þökkuð aðstoð og
yfirlestur tilfellisins.
Heiðursverðlaun
læknanema 2008
Heiðursverðlaun læknanema er
arlegur viðburður. Að þessu sinni
hlaut Gunnlaugur Geirsson prófessor
1 réttarlæknisfræði verðlaunin.
Gunnlaugur Geirsson varð stúdent
úr MR 1960. Útskrifaðist úr
læknadeild 1967. Eftir kandídats- og
aðstoðarlæknisvinnu hér heima fór
hann til Bandaríkjanna í sérnám og
lauk sérfræðiprófi í líffærameinafræði
með frumumeinafræði sem
undirgrein 1974. Hann stundaði
nám í Medical College of Virginia
Hospital, Department of pathology í
Richmond, New England, Deaconess
Hospital, Department of pathology
1 Boston í Massachusetts, Strong
iHernorial Hospital, University of
Rochester, Department of Pathology í
Rochester í New York og var research
fellow í frumumeinafræði við The
fHemorial Hospital for Cancer and
Allied diseases í New York. Þegar
hann kom heim úr sérnámi vann
hann á rannsóknarstofu Háskólans
* líffærameinafræði (1974-1977) og
var yfirlæknir frumurannsóknarstofu
Krabbameinsfélagsins í rúman áratug
(1976-1987). Tók hann þá við starfi
ibrstöðumanns rannsóknarstofu í
réttarmeinafræði og prófessorsstöðu
við Hl (1986). Einnig var hann
rekstraraðili rannsóknarstofu
í frumumeinafræði (1986) og
vefjameinafræði (1991).
Hann hefur einnig sinnt ýmsum
kennslustörfum og trúnaðarstörfum,
varð m.a. formaður norrænna
réttarlækna 1997. Auk þessara starfa
var hann ráðgjafi á vegum WHO á
Filippseyjum 1985 og sinnti störfum
á vegum stríðsglæpadómstólsins í
Haag í Kosovo 1999.
Réttarlæknisfræðikúrsinn er kenndur
á haustmisseri 6. árs. Þegar síga fer á
seinni hluta námsins er kúrsinn mjög
áhugaverð viðbót við læknanámið.
Kúrsinn er afar vel skipulagður. Það
var vel ígrundað hvað var kennt á
þessum stutta tíma. Gunnlaugur
hefur gríðarlega reynslu eftir að hafa
starfað á þessum vettvangi til fjölda
ára. Meðal þess sem kúrsinn fjallar
um er dauðinn, hvernig borið skal
kennsl á lík, dánarorsök, að greina
áverka, að varðveita vettvang og margt
fleira. Efnið er þannig áhugavert
en vandmeðfarið, sérstaklega þar
sem dæmi voru tekin af íslenskum
sakamálum. Gunnlaugur fjallaði
um þessi viðkvæmu mál á mjög
faglegan hátt. Kúrsinn var byggður
að mestu upp á spjalli um starfið með
áherslu á praktísk atriði fyrir lækna.
Einnig sýndi hann okkur mikið af
myndum til að skýra mál sitt. Hann
hefur einnig skrifað sjálfur mjög
gott kennsluefni fýrir læknanema
á íslensku. Það sem einkennir
Gunnlaug er einstaklega rólyndisleg
og prúðmannleg framkoma. Hann
er einkar góður kennari og hélt
algjörlega athygli nemenda í mjög
áhugaverðum tímum.
Við þökkum Gunnlaugi kærlega fyrir
ómetanlegt starf í gegnum árin í þágu
læknanema.
Sigríður Birna Elíasdóttir
5. árs læknanemi
Ólöf Jóna Elíasdóttir
6. árs læknanemi
Læknaneminn
41