Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 39
I fyrra tóku á þriðja tug læknanema sig saman og
stofnuðu Lýðheilsufélag læknanema. Tilgangurinn var
að vera upplýsandi og fræðandi varðandi lýðheilsutengd
töálefni, bæði hvað varðar læknanema og úti í
samfélaginu. Hugmyndin var líka sú að innan félagsins
hefðu læknanemar tækifæri til að koma hugsjónum
sinurn og hugmyndum í framkvæmd. Fyrsta árið gekk
tnjög vel og voru skrifaðar greinar í Fréttablaðið, haldinn
blóðgjafamánuður og stofnað til Bangsaspítala. Núna á
öðru starfsári var haldið áfram að fullum krafti og hér
a eftir fylgir lýsing á því helsta sem fram hefur farið á
Vegum félagsins.
Málþing Lýðheilsufélags læknanema
Hvað eiga læknanemar, læknar, forstjóri Lýðheilsustöðvar,
bjúkrunarfræðinemar, framkvæmdastjóri SÁÁ,
félagsfræðinemar, þingmenn og íjölmargir aðrir
mætir einstaklingar sameiginlegt? Jú, að hafa skoðun
a »,áfengisfrumvarpinu“ svokallaða, en það er (fyrir þá
sem ekki hafa kynnt sér) frumvarp til laga um að leggja
niður einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins með
annað áfengi en sterkt áfengi. Það er ekki orðum aukið
að varla fannst sá fjölmiðill sem ekki íjallaði um málið,
enda bjartari tímar þar sem bensínlítrinn kostaði 130
kr., krepputal var fyrir aumingja og Ólafur F. ekki orðinn
borgarstj óri. Því ákváðu 4 röskir og ráðvandir læknanemar
1 lýðheilsufélaginu að hamra sjóðheitt járnið og var slegið
upp með látum málþingi þann 30.nóvember sl. í Öskju.
Hugmyndin var að nálgast frumvarpið á hlutlausan
niáta og reyna effir fremsta megni að ná sem breiðustum
nrnræðufleti. Því voru fengnir framsöguaðilar sem ýmist
voru með eða á móti. Sumir þeirra höfðu hagsmuna að
gæta sbr. Sigurð Jónsson framkvæmdastjóra Samtaka
verslunar- og þjónustu, aðrir stóðu í framlínu þeirra sem
fást við áfengismisnotkun sbr. Valgerði Rúnarsdóttur
lækni á Vogi og Bjarna Össurarson yfirlækni á geðdeild
lsh og enn aðrir vildu standa vörð um hag neytenda
sbr. Sigurð Kára Kristjánsson, alþingismann og fyrsta
flutningsmann frumvarpsins, sem ásamt Ragnheiði
Elínu Árnadóttur þingmanni mælti með frumvarpinu og
Huðfríði Lilju Grétarsdóttur varaþingmanns sem mælti
§egn því. Mæting var stórgóð og mál manna að vel hafi
tekist til í alla staði.Það er sannarlega hvatning fyrir þá
Sem skipulögðu málþingið til að halda áfram á sömu
braut. Það hefur verið í deiglunni í nokkurn tíma að halda
málþing um líffæragjafir á íslandi hjá Lýðheilsufélaginu
°g það er aldrei að vita hvað við drögum fram úr erminni
að ári liðnu. Þangað til, segið „nei“ við eiturlyfjum og
borðið 5 skammta af ávöxtum á dag.
Hjáll Vikar Smárason
3- árs læknanemi
að danskri fyrirmynd með nokkrum breytingum. Við í
Lýðheilsufélagi læknanema höfum staðið fyrir þremur
Bangsaspítaladögum þar sem tekið var á móti börnum
á aldrinum 4-6 ára auk þess sem við tókum þátt í 50 ára
afmælishátíð Barnaspítala hringsins þar sem tekið var
á móti börnum á öllum aldri. Starfsemin hefur vakið
mikla lukku meðal barnanna og fengið góða og jákvæða
umfjöllun í fjölmiðlum.
Tilgangur Bangsaspítalans er í meginatriðum sá að reyna
að uppræta hræðslu og kvíða meðal barna sem tengist
heilbrigðisstofnunum og starfsfólki þess og þá einna
helst læknum. Það er gert með því að leyfa börnunum
að koma á Bangsaspítalann með „veika“ bangsa og eru
þau þar í hlutverki foreldra. Mikilvægt er að foreldrar
barnanna komi sem minnst að þessu ferli. Þannig þarf
barnið að stíga úr sínu örugga umhverfi og standa á
eigin fótum. Barnið fer því einsamalt með bangsanum
sínum inn á skoðunarherbergi með bangsa-lækninum,
þarf þar að segja frá sjúkrasögu bangsans og einnig að
meðtaka upplýsingar um meðferð. Meðferð sem veitt er
á Bangsaspítalanum er helst í formi ráðlegginga, plástra,
umbúða eða „þykjustulyfja". Ferlið á Bangsaspítalanum
er því eins og um alvöru spítala sé að ræða.
Umhverfi Bangsaspítalans er mjög mikilvægt en reynt er
að hafa það sem líkast raunveruleikanum. Þar eru öll tæki
og tól til staðar, skoðunarbekkur, læknir í slopp o.s.frv.
Læknavaktin í Smáranum og Barnaspítali Hringsins hafa
reynst okkur mjög vel og leyft okkur að nota húsnæði sitt
fyrir Bangsaspítalann og þökkum við þeim kærlega fyrir
stuðninginn.
Hlutverk læknanema er stórt í þessu verkefni. Þeir leika
bangsa-lækna og koma fram við börnin eins og um
alvöru sjúkling sé að ræða. Þetta gefur læknanemum gott
tækifæri til að æfa sig í samskiptum við sjúklinga sem og
að koma fram við börn í læknishlutverkinu.
Auk þess að bjóða börnum af leikskólum til okkar á
Bangsaspítalann þá höfum við nýverið tekið upp á því að
fara í heimsóknir f viðkomandi leikskóla. Þar ræðum við
við börnin um spítala og hvað þar fer fram auk þess að gefa
þeim sýnishorn af starfsemi Bangsaspítalans. í samvinnu
við leikskólakennara er heil vika í leikskólanum tileinkuð
Bangsaspítalanum. Sameiginlegur bangsi leikskólans
er sagður vera „veikur" eða „slasaður“ og það er síðan
barnanna að ákveða hvað það nákvæmlega er sem hrjáir
bangsann. Með þessu móti fáum við börnin til að hugsa
um heilsufarstengd málefni auk þess sem byggð er upp
eftirvænting fyrir komandi heimsókn á Bangsaspftalann.
Njáll Vikar Smárason
3. árs læknanemi
Arndís Auður Sigmarsdóttir
5. árs læknanemi
Bangsaspítali Lýðheilsufélags læknanema
Hugmyndin að bangsaspítala er fengin frá Alþjóðlegum
Samtökum læknanemafélaga (IMSIC) og hafa slíkir
spítalar verið starfræktir um áraraðir á vegum
aðildarsamtaka í mörgum löndum heims með góðum
arangri. Bangsaspítali Lýðheilsufélags læknanema er
Af því sem að ofan er skrifað má ætla að Bangsaspítalinn
sé mjög alvörugefin starfsemi með háleit markmið en það
sem er aðalmálið í þessu öllu saman er að allir sem að
koma skemmti sér stórkostlega!
Arndís Auður Sigmarsdóttir
5. árs læknanemi
Læknaneminn
39