Læknaneminn - 01.04.2008, Blaðsíða 3
'OOYj
3. Efnisyfirlit
3. Ritstjórapistill
4. Geilo 2008
5. Sjúkratilfelli
6. Af starfi Félags læknanema
12. Úr völundarhúsi valdsins
18. Kennsluverðlaun læknanema
2008
20. Já, einkavæðing er svarið
22. Markaðsvæðing er ekki svarið
26. Er ráðningarkerfi læknanema
réttlætanlegt?
32. 3. árs verkefni í Calgary Kanada
34. Geysilega ánægjulegur starfstími
39. Lýðheilsufélagið
40. Sjúkratilfelli
41. Heiðursverðlaun læknanema
2008
42. IMSIC
44. Á hundrað ára afmæli Klepps
52. Áhrif fæðu á frásog lyfja sem
tekin eru inn um munn
53. Unglæknaverðlaun
54. Áverkar á höndum
61. Ástráður - forvarnastarf
læknanema
62. Valtímabil í Malaví
65. Tilfelli
67. Blóðgjafamánuður Háskóla
íslands
68. Magnakerfið
71. Kandidatar 2007
72. Valtímabilið
76. Nám í læknadeild
78. Innganga í Læknafélag Islands?
79. Sjúkratilfelli framhald
80. Stereóísómerur og tengsl við
klíníska lyíjafræði
82. Rannsóknarverkefni 3. árs
læknanema 2007
Læknaneminn Vatnsmýrarvcgi 16,101 Rvk.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Jóel Kristinn Jóelsson.
Athugasemdir og fyrirspurnir joelj@hi.is.
Ritstjórn Karl Erlingur Oddason, Kristín María Tómasdóttir,
Ragnar Pálsson, Sigríður Birna Elíasdóttir.
Umbrot og hönnun Bergur Finnbogason.
Prentvinnsla Prentheimar ehf.
Upplag 1650 eintök.
Dreift til allra félagsmanna FL og félagsmanna LÍ á íslandi
Auglýsingar Ritstjórn og Markaðsmenn ehf.
Forsíða Bergur Finnbogason
Ritstjórapistill
Félag læknanema er öflugt
hagsmunafélag læknanema við
Háskóla íslands. Félagið sinnir
hagsmunamálum læknanema í
víðum skilningi: Stuðlar að góðum
anda innan deildarinnar með öflugu
félagslífi, eflir þekkingu og víðsýni
læknanema með fræðslufundum
og milligöngu um samskipti
við erlenda læknaskóla, fer með
hagsmuni læknanema út á við
gagnvart þjóðfélagi og stjórnsýslu
Háskólans og síðast en ekki síst beitir
félagið sér í baráttu læknanema fyrir
bættum kjörum á vinnumarkáði.
Starf félagsins er öflugt og þeir sem
að stjórn þess koma eiga hrós skilið
fyrir vaska framgöngu í óeigingjörnu
starfi sínu.
Kjarabarátta læknanema hefur
lengi verið erfið og flókin í
framkvæmd. Þannig er ekkert
viðurkennt stéttarfélag sem gætir að
sérhagsmunum læknanema. Sem
dæmi má nefna að þeir Ijölmörgu
nemar sem starfa á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi fá greitt kaup
sem hlutfall af launum kandidata. Til
að svo geti orðið þarf læknaneminn
að greiða stéttarfélagsgjöld til
Læknafélags fslands sem um leið er
fagfélag sem viðkomandi fær ekki
innöngu í. Sérhagsmunir okkar fá því
engan hljómgrunn við gerð þeirra
kjarasamninga sem læknanemum er
greitt eftir.
Undanfarin misseri hefur innganga
Félags Iæknanema í Læknafélag
íslands verið í farvatninu. Slík
tilhögun myndi opna læknanemum
mikilvægan vettvang til að vinna að
bættum kjörum sínum. Fyrirkomulag
þar sem læknanemar og aðrir
háskólanemar eru teknir inn undir
verndarvængsinnaframtíðarfagfélaga
er vel þekkt í löndunum í kringum
okkur og sýnir fallega hugsjón.
Síðastliðinn vetur var gerð tilraun til
að fá inngönguna í gegn og um það
greidd atkvæði á aðalfundi LÍ eins
og lesa má um annars staðar í þessu
blaði. Meirihluti greiddra atkvæða
dugði ekki til að koma tillögunni
í gegn þar sem aukins meirihluta
var þörf. í kjölfarið var málið sett í
nefnd þar sem umræður strönduðu
ítrekað á málum sem ekki verður séð
að hafi átt heima á þeim vettvangi.
Þannig spunnust miklar umræður
um sumarafleysingar læknanema,
málefni sem einmitt mætti ræða og ná
sátt um á vettvangi LÍ ef læknanemar
ættu þar sæti.
59. árgangur Læknanemans er
kominn út. í þessu blaði hefur ritstjórn
leitast við að hafa efnisval ijölbreytt
og efni vandað. Þeim sem skoðað
hafa eldri árganga blaðsins dylst ekki
að efnistök og yfirbragð blaðsins
hefur breyst mikið á skömmum tíma.
Það þarf ekki að leita langt aftur
til að finna Læknanemann fullan
af þungu fræðilegu efni. Þróunin
verður að teljast góð en blikur eru á
lofti. Það reynist æ erfiðara að afla
fræðilegra greina í blaðið. Að hluta
til er skiljanlegt að greinahöfundar
reyni sitt ítrasta til að birta skrif
sín í virtum fagtímaritum. Nýlega
hefur Læknablaðið verið tekið til
skráningar í alþjóðlega gagnagrunna
yfir ritrýnt fræðiefni og þessi breyting
á landslaginu hér innanlands hefur
reynst Læknanemanum þungt
högg. Það er þó ástæða til að minna
læknanema og aðra lesendur á
að Læknaneminn er stærsta og
mest dreifða blað landsins með
læknisfræðilegt efni og hér er um
tilvalinn vettvang að ræða til að stíga
sín fyrstu spor fram á hinn fræðilega
ritvöll.
Að vera læknanemi er bæði áhugavert
og skemmtilegt. Það er einlæg
von ritstjórnar að blaðið sé gott
innlegg í fjölbreyttan heim íslenskra
læknanema. Að lokum er vert að
þakka þeim fjölmörgu hæfileikaríku
einstaklingum sem lögðu sitt af
mörkum við gerð blaðsins.
Jóel Kristinn Jóelsson
5. árs læknanemi
Læknaneminn
3