Úrval - 01.10.1963, Síða 29
„JUJU“, SVARTIGALDUR SVERTINGJA
41
eru hinar óhugnanlegu vörur
hans til sýnis, kameljón i búr-
um, hungruð að sjá, þurrkaðar
froskpöddur, hauskúpur af kött-
um og fuglum, líffæri úr geitum
og kindum. Þetta er efniviðurinn
í hina mörgu „juju“-gripi Art-
hurs.
Hann getur útbúið „juju“-gripi
handa manni, og kosta þeir frá
nokkrum shillingum hver og
eiga að vernda mann frá slysum,
veikindum eða skyndilegum
dauðdaga. Sumir gripirnir eru
ætlaðir til þess ráða niðurlögum
óvina.
Um gervalla Vestur-Afríku
rikir hið forna vald „juju“-
svartagaldurs galdralæknanna
— enn yfir lífi milljónanna.
Jafnvel menntaðir Afríkubúar
með víðan sjóndeildarhring geta
ekki að fullu losnað við óttann,
sem þeim stafar af „juju“, þótt
þeir kunni að neita því.
Þrátt fyrir menntun Nkrumah
forseta við bandaríska og brezka
háskóla, trúir hann að sögn á
verndarmátt „juju“. Margir
Ghanabúar álíta, að göngustaf-
urinn, sem hann ber alltaf, hafi
að geyma „juju“, sem verndi
hann fullkomlega gegn skotum
og eitri.
Vald „juju“ er ekki fólgið í
hinum raunverulegu töfragrip-
um, sem álitnir eru vera aðset-
ursstaður „juju“-hæfileikans og
venjulega eru bornir um háls-
inn eða geymdir í húsvegg.
Vald svartagaldursins liggur
grafið i hjörtum og huga þess,
sem á hann trúir.
Og það leikur alls enginn vafi
á þvi, að „juju“ er áhrifarikt.
Oft eru afleiðingarnar ógnvekj-
andi og hryllilegar.
í Accra er geðveikrahæli, en
það er ekki fullt af mönnum og
konum, sem bilað hafi á geðs-
munum vegna álags nútímalífs.
Sjúklingarnir eða a.m.k. margir
þeirra, eru hin ólánsömu fórnar-
dýr „juju“, sem hefur síður en
svo misst marks.
Ég ræddi um „juju“ (sem þýð-
ir raunverulega „lítil brúða“)
við yfirlækni hælisins, afriskan
sállækni, sem lært hefur i Lund-
únum.
Hann er alinn upp í rökkur-
heimi galdralæknanna og liefur
síðar tileinkað sér þekkingu nú-
tímavísindamanna á starfsemi
mannshugans, og þvi var hann
færari um að skilja „juju“ en
nokkur annar.
Þetta sagði hann við mig:
„Juju“ bítur aðeins á þá, sem
trúa á það. Ég hef séð þennan
svartagaldur eyðileggja bæði
karla og konur, sem sóru þess
dýran eið, að þau tryðu ekki á
mátt hans. En fólk trúir enn á
þann mátt, i fylgsnum hjartans.