Úrval - 01.10.1963, Blaðsíða 30
42
ÚR VAL
Og „juju“ þarfnast ekki annars
til þess að vaxa og magnast.
Afríkubúum reynist það mjög
erfitt að uppræta þessa djúp-
stæðu trú, sem sáð hefur verið
til í bernsku. „Juju“ getur drepið
mann eða gert hann vitskertan,
og gerist þetta á mjög einfaldan
hátt. Einhvern veginn verður að
takast að skýra fórnardýrinu frá
því, að svartigaldur hafi verið
framinn gegn honum. Ef til vill
byrjar þetta með hvisli mann frá
manni, eða fórnardýrinu er að-
eins sýnt merki sem tákn um
slíkt, ef til vill nokkur sprek,
sem raðað hefur verið á vissan
hátt á jörðinni fyrir utan hús
hans eða kofa. „Juju“ hefur
alls engin áhrif, ef fórnardýrið
veit ekki um það eða hefur að
minnsta kosti ekki einhvern
grun um það.
Strax og fórnardýrið fréttir af
svartagaldrinum, finnur það til
nokkurs ótta. Stig óttans er kom-
ið undir þvi, hversu djúpum
rótuiii „juju“-trúin stendur í
hjarta fórnardýrsins, hversu
mjög' það trúir á vald „juju“
Óttinn fær hjarta fórnardýrs-
ins til þess að slá nokkru hrað-
ar, og brátt vex blóðþrýstingur
þess. Þetta veldur verkjum og
kippum, sem eru í sjálfu sér
alveg meinlausir og fórnardýrið
hefði ekki tekið eftir við venju-
legar aðstæður. En nú er fórnar-
dýrið þegar tekið til að gá að
hvers kyns merkjum um, að
„juju“ sé farið að hafa sin áhrif,
og jafnvel vænta þeirra merkja.
Auðvitað verða þessi merki nú
greinilegri því, að þetta er víta-
hringur. Fyrr eða síðar verður
blóðþrýstingur fórnardýrsins
hættulega milcill, og hann heldur
áfram að vaxa, þangað til eitt-
hvað verður undan að láta.
Fórnardýrið fær þá heilablóð-
fall og annað hvort deyr það
eða verður farlama aumingi alla
ævi.“
Þannig getur „juju“ ráðið nið-
urlögum manns, sem er í mörg
hundruð mílna fjarlægð, svo
framarlega sem sáðkornum ótt-
ans hefur fyrst verið sáð í huga
hans.
Afríski sállæknirinn hélt
áfram máli sínu og sagði:
„Stundum lítur út fyrir, að mað-
ur hafi dáið af völdum „juju“
þótt hann sé í rauninni aðeins
fórnardýr einhvers afrísks eit-
urs. Þegar galdralæknirinn
kemst að því, að „juju“ hefur
ekki haft nein áhrif á fórnardýr
hans, kann hann að grípa til
þess ráðs að setja eitur í mat
þess til þess að falla ekki í áliti.
Þá getur hann lialdið því fram,
að það hafi verið svartigaldur
hans, sem ráðið hafi niðurlög-
um mannsins?'
En„juju“-morð eru samt sjald-